Íslendingur - 31.08.1928, Blaðsíða 3
ISLENDJNOUR
3
Vinnuíöt, haldbest og ódýrust * Brauns íerslun.
r------------------—
0. Nilssen & Sön * |s. tm
er besta veiðafæraverksmiðjan á Norðurlöndum. Býr til
m. a. hinar viðurkendu »Geysis*-fiskilínur, af öllum
stærðum, bikaðar og óbikaðar. Einnig tauma, kaðla,
netagarn, net, herpinætur, nætur smáar og stórar. Enn-
fremur dufl, lóðarbelgi, kork, flár, neta- og nótasteina, og
yfir höfuð alt, er að veiðarfærum lýtur.
Umboðsmaður verksmiðjunnar á Norðurlandi er:
Þórsteinn Sigvaldason.
\ I
K O L.
í dag fæ jeg farm af D. C. B. kolum, sem seljast á kr 35.—
smálestin á bryggju meðan á uppskipun stendur. — Einnig
Hnetukoks kr. 50.— smálestin.
Oerið svo vel að panta kolin í síma 146.
Axel Krístjánsson.
Vetrarfrakkar,
nýjasta tíska, lægsta verð, nýkomnir í
BRAUNS VERSLUN.
Páll Sigurgeirsson.
Ný innkeyptar vörur e™:ú
komnar hjá Ryel, í stærra og fjölbreyttara úrvali en sjest hefir
hjer á Akureyri, og vegna mjög hagstæðra innkaupa, beint frá verk-
smiðjunum, er verðið afariágt. — Gríðarstórt úrval fýrirfinst af alls-
konar herra, ungl. og drg. fatnaði, með okkar ágæta sniði. Athugið
fötin hjá Ryel, og þið sjáið hinn feikna mun á okkar fatnaði og hin-
um algenga verksmiðjufatnaði. Afar-fjöibreytt úrval er ennfremur á
boðstólum af fallegum gardínutauum frá 0,60 m, afmældar gardínur
hv. og misl, frá 4,90 fagið með kappa. Allskonar fallegar og mjög
ódýrar álnavörur, dömu- herra- og barnasokkar ótal teg. Allskonar
nærfatnaður, golftreyjur, peysur, borð- og dívanteppi, matardúkar og
mjög ódýrir kaffidúkar, manchettskyrtur, flibbar, bindi, axlabönd,
röndóttar herrabuxur, vinnubuxur frá 5,25, sportbuxur frá 8,75 og
ótal margt fl.
Sannir sparnaðarmenn athuga bæði verð og
vörugæði, og bestu og smekklegustu vörurnar
fyrir lægst verð eru ætíð hjá
Baldvin Ryel.
Frú Lula Mysz-Gmeiner,
próf. við hljómlistaskólann i Beilín,
hefir haldið 2 hljómleika, síðastl. laug-
ardag og þriðjudag. Bæði sinn hefir
aðsókn verið mikil, og er það sjald-
gæft á þessum tíma árs, að fólk fjöl-
menni á 2 hljómleika með stuttu
bili á milli, þar sem mestmegnis er
um sömu áheyrendur að ræða. Petta
kemur af því, að þessi söngkona hug-
tekur áheyrendurna með söng slnum.
Pað er ekki listin tóm eða góður
skóli, sem gerir söngmanninn, heldur
góður barki, sál og list, og frú próf.
Gmeiner hefir þetta alt í ríkum mæli.
Jeg hefi sjaldan heyrt sungið af jafn-
mikilli tilfinningu. Hljóðin eru fögur,
mjúk og hljómmikil; jafnvel veikasta
pianissimo fyllir salinn, og meðferðin
yndisleg. Um skilninginn ætla jeg
ekki að tala. Pað er alkunna, að
Germanir rista dýpra í músik en aðrar
þjóðir heimsins, og þessi kona hefir
öll einkenni Germana: hún syngur
með lílrama og sál.
Alt söng frúin ágætlega, og tæp-
lega hægt að gera þar upp á milli,
þótt viðfangsefnin væru næsta ólík.
Aðdáanlega þótti mjer frúin syngja
Wohin og Von ewiger Liebe eftir þá
Schubert og Brahms og Herr Oluf
eftir Loewe var glæsilega sungið.
Síðara kvöldið söng frúin Erlkönig
svo dásamlega vel, að jeg hefi aldrei
heyrt hann líkt eins vel sunginn og
hefi jeg þó heyrt hann oft prýðilega
sunginn. Pá söng hún og Der Tod
und das Mádchen innilega fagurt.
Parf eigi um það að fjölyrða: alt sem
frúin söng var þrungið af tilfinningu
og listasmekk. Meðferðin á íslensku
lögunum var afbragð, og eigi tiltöku-
mál, þótt framburði væri dálítið ábóta-
vant. Aldrei hefi jeg haft jafnmikið
yndi af, að heyra Kirkfuhvol og
Draumalandið var aðdáanlegt.
Undirleikur hr. Haesers var afburða-
góður, og má segja, að hjer væri
hvað eftir öðru, langt fram úr þvf,
sem við eigum að venjast. Sólóspil
hans var frábært, og mun hann sjald-
an hafa leikið betur.
Mörgum munu þessi hljómleika-
kvöld þeirra frú Mysz Gmeiner og
br. Haesers minnisstæð, sem ein hin
unaðsríkustu á æfinni.
V. St.
■■
Úr heimahögum.
Kirkjan. Messað á sunnudaginn kl. 12
í Lögmannshlíð og kl. 5 s. d. á Akureyri.
Börn, sem á að ferma í haust, tali við
prestinn eftir messu.
Kirkjuvigsla. Ásunnudaginn var hinnýja
kirkja í Hrísey vígð með mikilli viðhöfn.
Vígsluathöfnina framkvæmdi prófasturinn í
Eyjafjarðarsýslu, sjera Stefán Kristinsson
Völlum, sem jafnframt er prestur hins nýja
safnaðar. Honum til aðstoðar voru 6 prest-
ar aðrir. Mikill mannfjöldi var gestkom-
andi í Hrísey vígsludaginn. Varðskipið
Óðiun flutti fólk hjeðan úr bænum og af
Hjalteyri út eftir, og voru yfir 200 manns
r þeirri för, m. a. söngflckkur (karlakór)
hjeðan innan að, undir stjórn lngimundar
Árnasonar, er annaðist kirkjusönginn,
Hríseyjarkirkja er hið prýðilegasta hús,
■bygt úr steini. Er aðalkirkjan 10,7X7,25 m,
kórinn 4X3,75 m og forkirkjan 3X3,25 m
að stærð. Blá hvelfing er í kirkjunni,
skorin sundur með gullnum listum í reiti,
jafnt aðalkirkja og kór. Ekkert loft er í
kirkjunni. Er söngflokknum ætlaður stað-
ur niðrf að norðanverðu næst kór. Turn
mikill er á kirkjunni, svo hún sjest lang-
an veg og sker sig úr öðrum húsum. Hafa
Hríseyingar hinn mesta sóma af kirkju
sinni.
Stórhjsi er O. C. Thorarensen lyfsali í
þann veginn að byggja á lóðinni sunnan
við Brauns verslun i Hafnarstræti, og ætl-
ar að flytja þangað lyfjabúð sína, er það
er fullgert. Húsið á að vera þrílyft stein-
steypuhús, 30 álnir á lengd og 16 á breidd
og austur úr því norðanverðu á að liggja
einlyft álma 30 álna löng. Verður húsið
hið veglegasta. Yfirsmiðir þess verða þeir
byggingameistararnir Jón Guðmundsson
og Einar Jóhannsson.
Þormóður Sigurðsson cand. theol. frá
Ystafelli hefir verið settur prestur að Þór-
oddsstað. Var hann vígður þangað 19. þ.
m. Samtímis var Knútur Arngrímsson
vígður til Húsavíkur.
Súlan er nú hætt síldarathugunum sín-
um, en ráðgert er að hún hefji póstflug
kringum landið upp úr helginni, og haldi
því uppi nokkra daga. Er þetta reynslu-
flug til þess að vita, hvernig það gefst að
koma pósti á sem flesta staði sama dag-
inn. Undir reynsluflugi þessu ^er það
mikið komið, hvort leknar verða upp reglu-
bunduar póstflugferðir næsta sumar.
Akureyrarbió. Alþýðusýningar byrja
þar á sunnudaginn kemur kl. 5 síðd., og
verða framvegis á hverjum sunnudegi á
sama tíma. Verðið er nrikið lægra en
á kvöldsýningunum: barnasæti 25 au.
en önnur sæti 75. aura, nema hin fáu
stoppuðu sæti á 1 krónu. Sjerstaklega
eru þessar sýnii gar hentugar fyrir "börn
Á þessari fyrstu alþýðusýningu verður
myndin »Demantar« sýnd í síðasta skiftið
og auk hennar »Frjettablaðið«. Eru það
niyndir af viðburðum senr gerst liafa út
um heiminn. Sýnir það í þetta sinn m.
a. myndir af flugsiysinu mikla í Kaup-
mannahöfn, þar sem fslendingurinn Leifur
Guðmundsson misti lífið.
Silfurbrúðkaup átti í fyrradag Baldvin
Jónsson verslunarstjóri og frú hans, leik-
konan Svava Jónsdóttlr.
Mannbjörg. Nova bjargaði á leið sinni
hingað milli Færeyja og islands bátkænu
nreð 8 mönnum á. Var það skipshöfn af
norskri mótorskútu, er skyndilega hafði
sokkið nokkrunr mínútum áður. — Hefði
Novu ekki borið þarna að, var mönnun-
um dauðiun vís.
Barnaskólabyggingin. Á síðasta bæjar-
stjórnarfundi var samþykt tilboð um lán
til barnaskólabyggingarinnar fyrirhuguðu,
að upphæð 100,000 kr. danskar. Á lánið
að veitast til 25 ára og útborgast með 95°/o.
Ársvextir eiga að vera 5°/o og umboðs-
laun 2°/\ Bæjarstjóri útvegaði láristilboðið
Sildveiðin. Rúmlega 93‘ /a þúsund tunnur
eru nú komnar í salt og tæp 27 [þúsund
krydduð á öllu landinu, og 230 þús. mál
í bræðslu. Á sama tínra í fyrra höfðu um
160 þús. tn. verið saltaðar og um 60 þús,
kryddaðar, og unr 400 þús. mál farið i
bræðslu, og samtímis árið þar á undan
höfðu aflast 74 þús. tunnur af saltsíld, 24
þús. tn. kryddsíld og S0 þús bræðslumál,
Álitið er að Norðmenn hafi veitt utan
landhelgi ánróta mikið og nú hefir verið
saltað og kryddað í landi.
Kolaskip eru nýkomin til Ragnars Ól-
afssonar og Axels Kristjánssonar. Hafa
kolin verið seld á bryggju fyrir 35 kr. snrá-
lestin.
Fisksalan. Verð á fiski, einkum stór-
--------------------S
Barnaprjónaföt
Bláar karlmannapeysur,
KarLmannaföt, mikið úrval,
Yfirfrakkar koma með
s,s. Island,
Hamborg.
x.____________________r1
Coxton Shoe Co.
býr eingöngu til karlmannaskófatn*
að, sem útilokar alla samkepni,
bæði hvað verð og gæði snertir.
Biðjið um sýnishorn og verð*
tilboð frá /. S. Kvaran Akureyri,
einkasala verksmiðjunnar hjer á landi.
fiski og mitlifiski, hefir farið hækkandi
hjer innanlands síðustu vikurnar. Mun það
verð, sem síðast liefir verið selt fyrir, vera
frá 126 kr. til 130 kr. pr. skpd. Sem
stendur er mikil eftirspurn eftir stórfiski.
Útflutningur á fiski er mjög ör. Hafa 9
eða 10 skipsfarmar farið frá landinu í
þessum mánuði.