Fréttablaðið - 07.04.2011, Blaðsíða 35
FIMMTUDAGUR 7. apríl 2011
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá París
Eftir heldur daprar vikur sem hafa einkennst af hörmungum í Japan og óróleika í arabalöndum
virtist skyndilegur vorhiti smita
Parísarbúa á laugardag. Skyndi-
lega fylltust búðir og götur af
fólki í leit að léttari klæðnaði til
daglegra nota. Verðandi brúðir
freistuðu þess að finna kjóla fyrir
borgaralega brúðkaupið og líka
tilvonandi tengdamömmur sem
eru að fara að gifta börnin sín
því vorið og sumarið er hér tími
brúðkaupa.
Litirnir í sumar eru sterkir
og að sjálfsögðu tilbreyting frá
öllum dökku vetrarlitunum en
ekki síður frá hinum týpísku
fölu sumarlitum í pastel sem svo
gjarnan einkenna sumartísk-
una. Nú eru þeir fúksíubleikir,
gulrauðir eða sítrónugulir
og er jafnvel blandað saman
fleiri en einum. Látleysi er
ekki lykilorðið í sumar því
í viðbót við sterka liti er
mikið um munstrað efni
og oft í afgerandi litum.
Þar getur allt eins verið
um að ræða rómantískt
blómamunstur með
litlum frelsisblómum
upp í heilu blómagarðana á
flíkinni. Svo má nefna ýmis
konar grafísk munstur í anda
síðhippaáranna með skörpum
línum. Blúndur og útsaumur eru
enn áberandi hjá mörgum hönn-
uðum eins og hefur verið og oft
eru stórar heklaðar blúndur
saumaðar á annað efni.
Stuttbuxur verða áfram ómiss-
andi og, líkt og bermúdabuxur hjá
herrunum, notaðar í staðinn fyrir
síðbuxur, sem í eina tíð þótti ekki
fínt í daglegu borgarlífi. Nú þykir
ekkert athugavert við að vera í
stuttbuxum alla daga og ef sólin
hverfur eru bara notaðar munstr-
aðar sokkabuxur við, sem ætti
að gleðja íbúa á norðurslóðum.
Önnur góð frétt fyrir þá sem búa
við lágan sumarhita er perfektó-
leðurjakki sem er ómissandi í
sumar, stuttur og dálítið rokk-
aralegur, til dæmis í rauðu leðri
hjá Jean-Paul Gaultier, fínn til að
halda á sér hita ef ekki rignir.
Nýjungarnar eru ekki
margar hjá tískuhúsunum
í sumar en ein þeirra er
kragalaus jakki, bæði frá
Carven og Stellu McCartney.
Hins vegar sagði mér inn-
kaupastjóri hjá einu af
stóru magasínunum í París
að kragalausir jakkar og
frakkar væru alltaf erfiðir
í sölu því viðskiptavinirnir
spyrðu alltaf hvað ætti að
setja um hálsinn.
Annað merkilegt: þó að
hælar séu enn svimandi
háir eru strigaskór í stíl
Converse inni líka, hinar
frægustu stjörnur spóka sig í
þeim, jafnvel þær sem ganga
um með fimm þúsund evru
Hermès-töskur. Sumir hanna
slíka skó fyrir þekkt skómerki
en aðrir framleiða sína eigin,
eins og Lanvin eða Dolce et
Gabbana. bergb75@free.fr
Sólarlitir og fjörleg munstur í sumaryl
Plokkaðar augabrúnir virðast á
nokkru undanhaldi ef marka má
útlit nokkurra þekktra tískufyrir-
mynda.
Frjálslegar óplokkaðar auga-
brúnir eru að ryðja sér til rúms
og má sjá stjörnurnar skarta
myndarlegum augabrúnabrúsk-
um þessa dagana.
Þeirra á meðal eru systurnar
Mary-Kate og Ashley Olsen, sem
eru þekktar fyrir ríka tískuvit-
und. Þær hafa lengst af verið með
vandlega mótaðar augabrúnir en
virðast nú hafa sagt skilið við
plokkarann og koma til dyranna
eins og þær eru klæddar. Útkom-
an minnir eilítið á útlit fyrri tíma
þegar minnstu smáatriði voru
ekki jafn útpæld og nú.
Óplokkaðar
augabrúnir
Systurnar Mary-Kate og Ashley Olsen
eru að safna augabrúnum.
NORDICPHOTOS/GETTY
AUSTURSTRÆTI 8 - 10 • SÍMI 534 0005
ÁÐUR 12.800
NÚ 6.400
Stærðir 36–41
50% AFSLÁTTUR AF
VÖLDUM SKÓM
Í GYLLTA KETTININUM
VORSPRENGJA
30 %
Afsláttur
af öllum
vörum.
7 - 10
apríl