Fréttablaðið - 19.04.2011, Blaðsíða 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar – mars 2011
Þriðjudagur
skoðun 16
SÉRBLAÐ
í Fréttablaðinu
Allt
veðrið í dag
19. apríl 2011
91. tölublað 11. árgangur
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
Heilsa er samkvæmt skilgreiningu Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar (WHO) ekki einungis fólgin í að vera sjúk-
dómalaus heldur er um að ræða almenna velferð einstak-
lings; líkamlega, andlega og félagslega.
Sveinbjörn Fjölnir Pétursson heldur úti hópi atvinnulausra sem taka að sér aukahlutverk í myndum.Poppar upp hvunndaginn
ÍSLENSKT
HUNDANAMMI
Fæst í Bónus, Samkaup,10-11, Fjarðarkaup og InspiredKeflavíkurflugvelli
gott í þjálfun og í leik
VINSÆLVARA
Sunnudaga og
sunnudagskvöld á Stöð 2.
VETRARRÍKI Heldur var kuldalegt um að litast í höfuðborginni í gær. Snjór lá yfir öllu og samkvæmt spám mun veðrið haldast
svipað fram eftir vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Brauð í forgrunni
Vefsíðan braudbrunnur.is
geymir allt um brauð og
bakstur á Norðurlöndum.
tímamót 24
viðarparket
Verðdæmi:
Eik 3ja stafa kr. 3.990 m2 Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Lactoghurt
daily
þ j g
innar og komið á jafnvægi.
Ráðlagður dagskammtur er 1 hylki á dag.
Lactoghurt fæst í apótekum.
S
1
1
3
0
1
3
Einstök blanda mjólkursýrugerla
Góðar gjafir
Björgvin Halldórsson
fékk tvo rándýra gítara í
sextugsafmælisgjöf.
fólk 38
UPPLÝSINGAMÁL Harðlega er gagn-
rýnt að í frumvarpi um ný upplýs-
ingalög er gert ráð fyrir að upplýs-
ingar sem eru lokaðar í þrjátíu ár í
dag geti verið lokaðar fyrir almenn-
ingi í sextíu ár. Þá er gert ráð fyrir
að þjóðskjalavörður geti gert ein-
stök skjöl óaðgengileg í 110 ár, sem
er langt umfram þá venju sem skap-
ast hefur.
Í umsögnum um frumvarpið er
bent á að ýmsar breytingar á upp-
lýsingalögunum miði frekar að því
að takmarka aðgang almennings að
upplýsingum en að tryggja gegnsæi,
sem þó eru meginrökin fyrir endur-
skoðun laganna að sögn Jóhönnu
Sigurðardóttur forsætisráðherra.
Margir hafa skilað umsögnum
til allsherjarnefndar Alþingis, sem
hefur frumvarpið til meðferðar.
Meðal þeirra er Svanhildur Boga-
dóttir borgarskjalavörður. Hún
víkur að því að við gildistöku endur-
skoðaðra upplýsingalaga breytist
ákvæði annarra lagabálka, þar á
meðal laga um Þjóðskjalasafnið.
Þar gerir ný grein ráð fyrir heimild
stjórnvalda til að skjal verði fyrst
aðgengilegt þegar liðin eru 60 ár
frá því að það varð til ef það þykir
nauðsynlegt til að vernda „virka
almannahagsmuni“.
Svanhildur segir í umsögn sinni
að ákvæðið sé óljóst og teygjanlegt
og geti orðið til þess að það sé geð-
þóttaákvörðun stjórnvalds að loka
skjölum í 60 ár. „Þetta er ekki í sam-
ræmi við gegnsæi eða opið þjóð-
félag,“ segir Svanhildur, sem telur
einkennilegt að skjöl geti varðar
þjóðaröryggi í meira en þrjá ára-
tugi. „Líklegra er að með þessu
ákvæði hefðu stjórnvöld möguleika
á að fela ákvarðanir sem teknar
hefðu verið varðandi öryggi ríkis-
ins, varnarmál eða samskipti við
önnur ríki.“
Samkvæmt frumvarpinu getur
þjóðskjalavörður ákveðið að synja
beiðni um aðgang að yngri skjöl-
um en 110 ára vegna einka- eða
almannahagsmuna.
Svanhildur segir þetta ákvæði
með ólíkindum og ótrúlegt sé að
gera það að geðþóttaákvörðun eins
manns að loka ákveðnum skjölum
svo lengi. Erfitt sé að sjá hvaða
einkamálefni eða almannahags-
munir geti átt í hlut og verðskuldi
slíka leynd. „Aftur býður þetta upp
á túlkun og geðþóttaákvarðanir,
sem ekki er rétt í gegnsæu nútíma-
þjóðfélagi,“ segir Svanhildur.
Sagnfræðingafélag Íslands tekur
undir þetta sjónarmið í umsögn um
þetta atriði. Að mati félagsins er
um opna heimild þjóðskjalavarðar
að ræða sem ekki er útskýrð frek-
ar eða skilyrt í greinar gerð. Stjórn
Sagnfræðingafélagsins mælir með
því að ákvæðið verði fellt burt.
„Hér er að mati stjórnar alltof langt
gengið og má hafa í huga að sam-
kvæmt þessu gætu skjöl frá árinu
1901 verið hulin leynd á þessu ári á
grundvelli almannahagsmuna. Það
verður að teljast fráleitt,“ segir í
umsögn félagsins. - shá
Hægt að loka á skjöl í 110 ár
Með breytingum á upplýsingalögum er gert ráð fyrir að stjórnvald geti lokað á skjöl í mun lengri tíma en nú
er. Þjóðskjalaverði verður gert kleift að loka á skjöl í allt að 110 ár, án þess að ráðfæra sig við nokkurn mann.
Samkvæmt þessu
gætu skjöl frá árinu
1901 verið hulin leynd á
þessu ári á grundvelli al-
mannahagsmuna. Það verður
að teljast fráleitt
UMSÖGN SAGNFRÆÐINGAFÉLAGS ÍS-
LANDS UM BREYTINGAR Á LÖGUM UM
ÞJÓÐSKJALASAFN ÍSLANDS
BJART MEÐ KÖFLUM víða
um land í dag og vindur fremur
hægur af suðvestri. Hiti verður frá
frostmarki að 5 stigum.
VEÐUR 4
1 5
4
11
FÓLK Hópur yfir 130 atvinnulausra hefur
tekið að sér aukahlutverk í kvikmyndum,
sjónvarpsþáttum og auglýsingum.
Sveinbjörn Fjölnir Pétursson heldur utan
um hópinn, sem hefur starfað við kvik-
myndir á borð við Gauragang og Djúpið. Þá
lék hópurinn einnig í myndinni Eldfjallið
sem á eftir að frumsýna og í spennumynd-
inni Svartur á leik. Fyrstu hlutverkin sem
Sveinbjörn og félagar fengu voru í Spaug-
stofunni veturinn 2009 til 2010. Fljótlega
eftir það fóru fleiri að falast eftir kröftum
þeirra.
Að sögn Sveinbjarnar Fjölnis gefur auka-
leikarastarfið ekki mikið í aðra hönd. Það er
heldur ekki markmiðið með starfinu.
„Í mínum huga snýst þetta um að vera
virkur, kynnast fólki og taka þátt í skemmti-
legum verkefnum,“ segir Sveinbjörn Fjölnir.
Frami hópsins hefur borist víða því nýlega
var tekið viðtal við Sveinbjörn sem birt
verður í New York Times Magazine.
Sveinbjörn Fjölnir segir nóg af hlutverk-
um að fá. „Ég þyrfti hins vegar að vera með
300 til 400 á skrá til að vel ætti að vera,“
segir hann. - sg / sjá Allt í miðju blaðsins
Um 130 einstaklingar fengu óvænt hlutverk í kvikmyndum og sjónvarpi:
Atvinnulausir í aukahlutverk
SVEINBJÖRN
FJÖLNIR
PÉTURSSON
VEÐUR Líkur eru á að sumar og
vetur frjósi saman. Samkvæmt
gamalli trú boðar það gott
sumar. Síðasti vetrardagur er á
morgun. Heldur litlar breyting-
ar verða á veðrinu næstu daga,
samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofu Íslands.
Áframhaldandi sunnanátt
verður ríkjandi, 8-13 metrar á
sekúndu og fremur kalt – hiti á
bilinu núll til fimm stig og geng-
ur á með rigningu eða éljum.
Á laugardag er gert ráð fyrir
vaxandi suðaustanátt um landið
vestanvert en fremur hægri
austlægri átt austantil. Milt
verður í veðri.
Þá lítur út fyrir að nokkuð
hvasst verði á páskadag
og annan dag páska. Þá er
spáð stífri suðvestlægri átt
með áframhaldandi vætu og
kólnandi veðri. Það er því ekki
gert ráð fyrir góðu skíða- eða
ferðaveðri. - kh
Lítil breyting á veðrinu:
Vetur og sumar
frjósa saman
Akureyri og FH í úrslit
Akureyri og FH
munu berjast um
Íslandsmeistaratitilinn í
handbolta í ár.
sport 34