Fréttablaðið - 19.04.2011, Síða 6
19. apríl 2011 ÞRIÐJUDAGUR6
Betra brauð með
pastaréttinum!
REYKJAVÍK Meirihlutinn í stjórn
Reykjavíkurborgar „toppar sjálfan
sig í vondum vinnubrögðum“ með
hugmyndum um sameiningu sviða,
að því er fulltrúi Vinstri grænna
sagði á miklum hitafundi mennta-
ráðs í gær.
Á fundinum, sem var auka-
fundur vegna fyrirhugaðrar sam-
einingar menntasviðs, leikskóla-
sviðs og þess hluta íþrótta- og
tómstundasviðs sem sér um tóm-
stundamál, viðruðu full trúar
minnihlutans og áheyrnar fulltrúar
hagsmunahópa miklar áhyggjur af
þróun mála.
Til dæmis sögðust fulltrúar for-
eldra í Börnin okkar og SAMFOK
harma forgangsröðun meirihlut-
ans sem og „hvernig málefni barna
í borginni eru fótum troðin“.
Þykir þeim bakland leik- og
grunnskóla sett í uppnám á sama
tíma og fyrir dyrum standa miklar
breytingar á sviðunum, með fyrir-
huguðum sameiningum skóla, leik-
skóla og frístundaheimila.
Þá lýsa leikskólastjórar í bókun
sinni yfir þungum áhyggjum af
sameiningu sviða „á sama tíma
og skólar í borginni þurfa á sterku
baklandi til að takast á við fyrir-
hugaðar sameiningar“ og grunn-
skólastjórar segja tillöguna setta
fram án umræðu í menntaráði og
sakar meirihlutann um að vinna
ekki eftir verklagsreglum mennta-
ráðs og það sé óásættanlegt.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokks sagði
í samtali við Fréttablaðið að ljóst
sé að skólamál séu ekki í fyrsta
sæti hjá meirihlutanum þrátt fyrir
fögur fyrirheit.
Í bókun sjálfstæðismanna
segir að „aðförin að skólakerfi
borgarinnar“ haldi nú áfram.
Tillögurnar séu „án nokkurrar
heildar hugsunar um það hvernig
spara eigi og hvers vegna“.
Fulltrúar meirihlutans svöruðu
því til í bókun að þessi sameining
sviða væri „forsenda samfellu í
þjónustu við börn, ungmenni og
fjölskyldur þeirra“ og stjórnkerfis-
breytingar með fækkun sviða
væri „eðlileg þróun á þjónustu við
borgar búa“.
Meirihlutinn vísaði einnig frá
ásökunum um að hugmyndirnar
hefðu ekki verið kynntar með
fyrir vara. Breytingar af þessu tagi
hafi verið ræddar í stjórnkerfis-
nefnd þar sem allir flokkar hafi
fulltrúa, sviðsstjórar og skrifstofu-
stjórar hafi komið að vinnunni og
niðurstöður greininga bentu til
þess að „samhljómur væri um
sameiningu þeirra sviða sem koma
að lærdóms- og uppeldisumhverfi
barna“ og þær niðurstöður hafi
verið kynntar á sameiginlegum
fundi borgarráðs og stjórnkerfis-
nefndar „fyrir margt löngu“.
Borgarráð samþykkti í gær að
fela borgarstjóra að undirbúa til-
lögu um sameiningu sviðanna.
thorgils@frettabladid.is
Sameiningu sviða
mótmælt á hitafundi
Fulltrúar minnihluta og hagsmunahópa átelja vinnubrögð meirihlutans við
fyrirhugaða sameiningu sviða í borginni. Segja tímasetningu slæma og aðdrag-
anda allt of stuttan. Meirihlutinn segir málin hafa verið rædd í langan tíma.
ENN DEILT UM SKÓLAMÁL Hart var deilt um sameiningu sviða
borgarinnar á fundi menntaráðs í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ALÞINGI Alls voru 106 börn og
unglingar á biðlistum eftir þjón-
ustu barna- og unglingageðdeild-
ar Landspítalans (BUGL) í mars
síðastliðnum. Fimmtán biðu inn-
lagnar á barnadeild, tólf á bráða-
móttökudeild unglinga og 79
börn og unglingar voru á biðlista
göngudeildar. Bráðainnlögnum
á unglingadeildina hefur fjölgað
verulega að undanförnu með til-
heyrandi álagi og lengri bið.
Þetta kemur fram í svari vel-
ferðarráðherra við fyrirspurn
Guðmundar Steingrímssonar.
Í því segir að ekki hafi tekist
að vinna varanlega á biðlista
eftir þjónustu BUGL með
aukafjárveitingum og átaks-
verkefnum. - bþs
Bráðainnlögnum fjölgar mjög:
106 bíða eftir
þjónustu BUGL
HEILBRIGÐISMÁL Björt Ólafsdóttir
var kjörin formaður Geðhjálpar
á aðalfundi félagsins á laugar-
dag. Tekur hún við af Sigur-
steini Mássyni.
Í tilkynn-
ingu frá Geð-
hjálp segir að
Björt þekki
vel til geðheil-
brigðismála,
einkum mál-
efna barna
og unglinga,
af starfi for-
eldra sinna að
Torfastöðum í Biskupstungum
og sem starfsmaður geðdeilda
Landspítalans um árabil. Hún
starfar nú sem stjórnunar-
ráðgjafi hjá Capacent.
Í stjórn Geðhjálpar eru nú
aðeins konur; Björt Ólafsdóttir
formaður, Auður Geirsdóttir,
Auður Styrkársdóttir, Bjarney
Lúðvíksdóttir, Björk Agnars-
dóttir, Lena Hákonardóttir og
Margrét Ómarsdóttir. - bþs
Bara konur í stjórn Geðhjálpar:
Björt formaður
BJÖRT
ÓLAFSDÓTTIR
VIÐSKIPTI Fjarskiptafyrirtækið
Vodafone hagnaðist um 355 millj-
ónir króna í fyrra samanborið við
288 milljóna hagnað árið á undan.
Sala dróst saman um tæpan
milljarð á milli ára, nam rúmum
12,6 milljörðum króna í fyrra
samanborið við 13,5 milljarða árið
á undan.
Skuldir námu 16,2 milljörðum
króna í árslok, sem er um sjö
hundruð milljónum lægri upphæð
en árið á undan. Skuldir eru að
megninu til í íslenskum krónum.
Eigið fé nam rúmum 3,7 milljörð-
um króna, sem er tæpum 300 millj-
ónum minna en í hittifyrra. - jab
Efnahagur Vodafone batnar:
Hagnaðist um
355 milljónir
DÓMSMÁL Tæplega tvítugur piltur
hefur verið dæmdur í sex mán-
aða skilorðsbundið fangelsi fyrir
tilraun til ráns.
Pilturinn fór í október á síðasta
ári inn í verslun 10/11 í Garðabæ,
með hulið andlit og vopnaður
hnífi. Hann ógnaði starfsmanni
verslunarinnar með hnífnum og
skipaði honum að afhenda sér
peninga. Starfsmaðurinn snerist
til varnar og leiddi það til átaka á
milli hans og piltsins sem urðu til
þess að sá síðarnefndi hætti við
og fór út úr versluninni.
Pilturinn játaði sök. Hann
hefur ekki áður gerst sekur um
refsiverða háttsemi. - jss
Með hulið andlit og hníf:
Dæmdur fyrir
tilraun til ráns
Fangelsi fyrir að stela pela
Kona á fimmtugsaldri hefur verið
dæmd í 30 daga skilorðsbundið
fangelsi fyrir að stela einni flösku af
Jack Daniel´s viskíi úr Vínbúðinni í
Skeifunni. Hún hafði áður hlotið skil-
orðsbundinn dóm fyrir þjófnað.
DÓMSTÓLAR
STJÓRNMÁL Félag VG í Borgar-
byggð lýsir yfir stuðningi við
ríkisstjórnina og harmar að
Ásmundur Einar Daðason hafi
sagt sig úr þingflokki flokksins.
Í ályktun sem samþykkt var
á fundi félagsins í fyrrakvöld
segir meðal annars að kjósend-
ur Ásmundar hafi treyst á að
hann myndi vinna með flokkn-
um.
Mikilvægt sé að þingmenn
VG starfi í samræmi við stefnu
flokksins og vinni saman að
framkvæmd hennar. - bþs
Félag VG í Borgarbyggð:
Harmar úrsögn
Ásmundar
Menntasvið
16,6 milljarðar
Leikskólasvið
9,4 milljarðar
Íþrótta- og tómstundasvið
6,4 milljarðar
Velferðarsvið
9,8 milljarðar
Umhverfis- og
samgöngusvið
4,2 milljarðar
Menningar- og
ferðamálasvið
2,9 milljarðar
Skipulags- og byggingarsvið
0,5 milljarðar
Framlög
2,2 milljarðar
Sameiginlegur kostnaður
4,8 milljarðar
Borgarráð hefur falið
borgarstjóra að vinna
að tillögum að sam-
einingu menntasviðs,
leikskólasviðs og tóm-
stundahluta íþrótta- og
tómstundasviðs.
Heimild: Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar
Heildarútgjöld
56,8 milljarðar
Útgjöld Reykjavíkurborgar 2011
Rúmur helmingur heildarútgjalda borgarsjóðs árið 2011 er vegna þeirra sviða sem
á að sameina samkvæmt tillögum meirihlutans. Menntasvið, leikskólasvið og tóm-
stundahluti íþrótta- og tómstundasviðs verða að skóla- og tómstundasviði.
SKÓLAMÁL Stjórnendur þeirra leikskóla sem sameina á
í Reykjavík krefjast þess að fallið verði frá hugmynd-
um um sameiningu, þar sem innan veggja skólanna
ríki gjörólík hugmyndafræði. Ekkert réttlæti sé falið
í því að börn í 25 af 76 leikskólum borgar innar taki á
sig afleiðingar af niðurskurði leikskólasviðs.
Sameining í skólakerfi Reykjavíkurborgar var
afgreidd af borgarráði í gær og kemur til loka-
afgreiðslu á fundi borgarstjórnar í dag, eftir margra
mánaða harðar deilur.
Frá upphafi hafa fulltrúar minnihlutans og flestir
hagsmunahópar verið mótfallnir hugmyndunum þar
sem faglegur og fjárhagslegur ávinningur sé óljós.
Meirihlutinn hefur hins vegar haldið sínu striki
og sagt nauðsynlegt að leggja út í umfangsmiklar
aðgerðir svo ekki þurfi að skera frekar niður í innra
starfi skóla.
Tólf þúsund manns skrifuðu undir áskorun til
borgaryfirvalda um að draga í land með áformin, og
mikill meirihluti umsagna um tillögurnar voru nei-
kvæðar.
Meirihlutinn segist hafa tekið tillit til hluta
umsagna, en ekki hafi verið hægt að koma til móts
við alla. - þj
Tillögur að sameiningu í skólakerfi Reykjavíkurborgar til lokaafgreiðslu:
Vilja hætta við allar sameiningar
EFNAHAGSMÁL Seðlabankinn mun
annað hvort lækka stýrivexti um
fjórðung úr prósenti eða halda
þeim óbreyttum í 4,25 prósentum á
næsta vaxtaákvörðunarfundi bank-
ans á morgun, að mati fjögurra
greiningardeilda og fyrirtækja.
Hagfræðideild Landsbankans og
ráðgjafarfyrirtækið IFS Greining
telja bæði innistæðu fyrir lækkun
stýrivaxta. Landsbankinn segir
ástæðuna fyrir því þá að gengi
krónunnar hafi haldist stöðugt
og að undirliggjandi verðbólga sé
lág. Þá bendi tölulegar upplýsing-
ar Hagstofunnar til að hagvöxtur
hafi enn ekki látið á sér kræla.
Spá IFS greiningar litast
af niður stöðu þjóðaratkvæða-
greiðslunnar í Icesave-kosningun-
um á dögunum. Fyrirtækið telur að
sú ákvörðun meirihluta kjósenda
að fella samninginn geti tafið fyrir
losun gjaldeyrishafta og aukið lík-
urnar á stöðnun hagkerfisins. Á
móti telur IFS Greining að þetta
kunni að verða síðasta vaxtalækk-
un peningastefnunefndar Seðla-
bankans og vísar til þess að Evr-
ópski seðlabankinn hafi í síðustu
viku hækkað stýrivexti.
Greining Íslandsbanka og Arion
banka telja hins vegar báðar líkur
á að stýrivöxtum verði haldið
óbreyttum. - jab
Greiningardeildir telja stýrivexti annað hvort lækka eða standa í stað um sinn:
Óvissa eftir Icesave-kosningu
HVAÐ GERIR SEÐLABANKINN? Tvær
greiningardeildir segja svo mikla óvissu í
efnahagslífinu eftir að Icesave-samning-
arnir voru felldir að tryggast sé að halda
stýrivöxtum óbreyttum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Kemur verð á eldsneyti í veg
fyrir að þú ferðist innanlands?
Já 85,9%
Nei 14,1%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Ert þú ennþá á negldum
dekkjum?
Segðu skoðun þína á vísir.is
KJÖRKASSINN