Fréttablaðið - 19.04.2011, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 19. apríl 2011 11
LÖGREGLUMÁL Tilkynning barst
lögreglunni á Vestfjörðum
undir síðustu helgi um mann
sem væri hugsanlega í hjarta-
stoppi í afgreiðslu Breiðafjarðar-
ferjunnar við Brjánslæk á Barða-
strönd. Svo heppilega vildi til
að nærstaddir sáu hvað var að
gerast og hófu strax lífgunar-
tilraunir og náðu að koma við-
komandi í gang aftur. Má því
segja að skyndihjálparkunnátta
þeirra sem á staðnum voru hafi
bjargað þarna mannslífi, að sögn
lögreglu. Læknir og sjúkrabíll
frá heilsugæslunni á Patreksfirði
komu síðan á staðinn og í fram-
haldi var viðkomandi fluttur með
þyrlu til Reykjavíkur. - jss
Skyndihjálp til bjargar:
Hjartastopp í
ferjuafgreiðslu
ATVINNUMÁL Skráð atvinnuleysi
var 4,5% af áætluðum mann-
fjölda á Vestfjörðum í síðasta
mánuði og er það lítils háttar
fjölgun frá fyrri mánuði. Þetta
kemur fram á vef Bæjarins besta.
Meðalfjöldi atvinnulausra í
mánuðinum var 160, 96 karlmenn
og 64 konur, og fjölgaði um þrett-
án manns á atvinnuleysisskrá frá
því í febrúar. Í lok mánaðarins
voru þó 177 án atvinnu, 100 karl-
menn og 77 konur. Flestir voru án
atvinnu í Ísafjarðarbæ, eða 109,
57 karlmenn og 52 konur.
Næst kemur Bolungarvík, þar
sem 26 voru skráðir atvinnu-
lausir, sextán karlmenn og tíu
konur. Í Súðavíkurhreppi voru
tólf á skrá og fjórtán í Vestur-
byggð.
Atvinnuleysi á Vestfjörðum:
Flestir atvinnu-
lausir á Ísafirði
STJÓRNMÁL Framkvæmdastjórn
Landssambands framsóknar-
kvenna lýsir yfir algjörri van-
þóknun á skopmyndateikningu,
sem birt var í Morgunblaðinu á
laugardag og sýnir Siv Friðleifs-
dóttur alþingismann sem vændis-
konu.
Stjórnin telur að blaðið og
teiknarinn hafi farið langt yfir
velsæmismörk og vegi að þing-
konunninni með afar ósmekk-
legum hætti.
Í yfirlýsingu sem teiknarinn
sendi frá sér í gær kemur fram
að hann hafi beðið Siv afsökunar.
Framsóknarkonur mótmæla:
Lýsa vanþókn-
un á skopmynd
ÞINGMAÐUR Skopmyndin sýndi Siv Frið-
leifsdóttur alþingismann með óviðeig-
andi hætti. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MENNINGARMÁL „Með sanni má segja að hér
í bæ hafi byggst upp eitt af fáum lista-
mannasamfélögum á Íslandi,“ segir bæjar-
ráð Hveragerðis, sem ætlar að styrkja gerð
heimildarmyndar um götu í bænum sem
kölluð er Skáldagata.
Það er Morten Ottesen sem gerir mynd-
ina um Skáldagötu, sem réttu nafni heitir
Frumskógar. Við þá götu bjuggu meðal
annarra á fimmta, sjötta og sjöunda áratug
síðustu aldar Jóhannes úr Kötlum skáld,
rithöfundarnir Kristmann Guðmundsson
og Kristján frá Djúpalæk og Gunnlaugur
Scheving listmálari. Ríkharður Jónsson
myndlistarmaður átti þar sumarhús. Í
næstu götu, Bláskógum, bjuggu síðan fleiri
listamenn.
Ódýrar lóðir og möguleikinn á að kynda
húsin með jarðhita voru meðal þeirra
ástæðna sem lágu að baki ásókn listamanna
í að byggja sér heimili í Hveragerði. Bæjar-
ráðið segir hugmyndir Mortens metnaðar-
fullar og að þær geti orðið til að tryggja
varðveislu menningararfs Hvergerðinga.
Heildarstyrkur bæjarins til gerðar
myndar innar er metinn á 600 þúsund
krónur. Annar helmingur hans á að felast í
vinnuframlagi bæjarstarfsmanna, aðstöðu
og tækjum en hinn helmingurinn verður
beinn fjárhagslegur stuðningur. - gar
Hveragerðisbær styrkir mynd um Frumskógana sem kallaðir voru Skáldagata:
Gera heimildarmynd um skáldanýlendu
HVERAGERÐI Skáld og aðrir listamenn þyrptust til
Hveragerðis um miðja tuttugustu öldina til að búa sér
heimili fjarri skarkala höfuðuborgarinnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
AKUREYRI Uppsöfnuð skuld
Skautahallarinnar á Akureyri við
Norðurorku nam 3,8 milljónum
króna um síðustu áramót. Leggur
íþróttaráð bæjarins til við bæjar-
ráð að aukafjárveiting, til greiðslu
skuldarinnar, verði samþykkt.
Vikudagur á Akureyri segir frá.
Fram kemur að á síðasta fundi
íþróttaráðs hafi framkvæmda-
stjóri íþróttadeildar lagt fram
yfirlit yfir orkukostnað í Skauta-
höllinni síðustu ár sem sýni að
hann hafi aukist umfram framlög
bæjarins. - bþs
Orkukostnaður Skautahallar:
Skuldar tæpar
fjórar milljónir
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
6
2
6
6
Kynntu þér páskaopnun allra Vínbúða á vinbudin.is
Miðvikudagur 20. apríl opið 11-19
Skírdagur LOKAÐ
Föstudagurinn langi LOKAÐ
Laugardagur 23. apríl opið 11-18
Páskadagur LOKAÐ
Annar í páskum LOKAÐ
VÍNBÚÐIRNAR
UM PÁSKANA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU OG AKUREYRI