Fréttablaðið - 19.04.2011, Blaðsíða 21
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
Heilsa er samkvæmt skilgreiningu Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar (WHO) ekki einungis fólgin í að vera sjúk-
dómalaus heldur er um að ræða almenna velferð einstak-
lings; líkamlega, andlega og félagslega.
Þ
egar Sveinbjörn Fjölnir
Pétursson missti vinn-
una sumarið 2008 fór
hann strax að taka þátt í
öllu sem í boði var fyrir atvinnu-
leitendur. Hann kom einnig fram
í Kastljósi og fjallaði um málefni
atvinnuleitenda, sem varð til að
vekja athygli Spaugstofumanna
á honum. „Þeir hringdu og báðu
mig að hóa saman hópi atvinnu-
leitenda sem gætu verið aukaleik-
arar í þáttunum,“ segir Svein-
björn, en hópur 25 atvinnulausra
starfaði með Spaugstofunni
veturinn 2009 til 2010.
Þetta starf aukaleikaranna
mæltist vel fyrir og fljótlega
fóru fleiri að falast eftir kröftum
þeirra. „Við höfum starfað við
kvikmyndir á borð við Gaura-
gang, Djúpið og Eldfjallið en
tvær þeirra á eftir að frumsýna.
Þá munum við líklega vera með í
Svartur á leik,“ segir Sveinbjörn
en hópurinn hefur einnig verið
í Áramótaskaupinu, Hlemma-
vídeói, Tíma nornarinnar, Pressu
2 og Makalaus.
Aukaleikarastarfið gefur ekki
mikið í aðra hönd enda er það
ekki markmiðið með starfinu. „Í
mínum huga snýst þetta um að
vera virkur, kynnast fólki og taka
þátt í skemmtilegum verkefnum,“
segir Sveinbjörn glaðlega og
bætir við að atvinnuleitendur séu
tilvaldir í hlutverk aukaleikenda
þar sem þeir séu lausir á þeim
tímum sem tökur fari fram.
„Ég lofaði fólki að við myndum
ná langt og enda annaðhvort í
Hollywood eða Bollywood,“ segir
Sveinbjörn glettinn og telur
drauminn ekki óraunhæfan. „Við
munum til dæmis birtast í grein
í New York Times Magazine á
næstunni,“ upplýsir hann.
Í dag er Sveinbjörn með um 130
manns á skrá hjá sér. „Ég þyrfti
hins vegar að vera með 300 til
400 á skrá til að vel ætti að vera,“
segir hann og auglýsir eftir fleiri
atvinnuleitendum. Þeir sem hafa
áhuga geta sent tölvupóst á auka-
leikarar@gmail.com.
solveig@frettabladid.is
Sveinbjörn Fjölnir Pétursson heldur úti hópi atvinnulausra sem taka að sér aukahlutverk í myndum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Poppar upp
hvunndaginn
ÍSLENSKT
HUNDANAMMI
Fæst í Bónus, Samkaup,
10-11, Fjarðarkaup og Inspired
Keflavíkurflugvelli
gott í þjálfun og í leik
VINSÆLVARA
Sölustaðir:
10 -11, Inspired í Flugstöðinni, Samkaup, Nettó, Kaskó, Fjarðarkaup, Skeljungsbúðirnar, Olís, N1,
Kaupfélag V- Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga,Verslunin Vísir, Bláa lónið, Hreyfing, Krambúðin,
Fiskbúðin Freyja, Melabúðin.
ÍSLENSK FÆÐUBÓT
BITAFISKUR
-næring fyrir líkama og sál
Sunnudaga og
sunnudagskvöld á Stöð 2.