Fréttablaðið - 19.04.2011, Blaðsíða 23
Einar Farestveit & co
hf. að Borgartúni 28
býður upp á kaffivélar af
ýmsum toga. Sjálfvirku
espresso-kaffivélarnar frá
Saeco eru þar fremstar í flokki
en einnig er fyrirtækið með
vélar frá KitchenAid, Severin,
Gaggia og Spidem.
„Einar Farestveit hefur selt kaffi-
vélar í öll þau 47 ár sem fyrir tækið
hefur starfað,“ segir Þráinn Bj.
Farestveit verslunarstjóri. Til að
byrja með voru það þó hefðbundn-
ar uppáhellingarvélar en síðustu
tíu ár hefur Einar Farestveit sér-
hæft sig í sérhæfðari espresso-
vélum. „Við komumst í kynni við
ítalska framleiðslu fyrirtækið
Saeco sem kom á markað með
sjálfvirkar kaffivélar sem möl-
uðu kaffi og helltu upp á,“ segir
Þráinn og bætir við að þær vélar
hafi fljótlega orðið mjög vinsælar
meðal almennings. „Það má segja
að með þessum vélum hafi kaffi-
húsamenningin færst inn á heim-
ili landsmanna,“ segir hann.
Þráinn segir Saeco ávallt hafa
verið eitt sterkasta merki í sjálf-
virkum espressovélum hér á landi
og þær vélar séu til á fjölmörgum
heimilum og í fyrirtækjum.
„Stöðug þróun er í gangi í þess-
um vélum og mikið lagt upp úr
því að betrumbæta þær. „Í dag
eru þær til dæmis með keramikk-
vörnum og stálkötlum til uppáhell-
ingar og eru þess vegna hljóðlát-
ari. Þessi ferill skilar sér í mun
betra kaffi,“ upplýsir Þráinn.
Hann segir Íslendinga njóta
þess að nostra við að búa til hina
ýmsu kaffidrykki sem er auðvelt
með Saeco-vélunum. „Þú getur
búið til drykki á borð við espresso,
cappuccino, latte, latte macchiato
og frappo. Þannig getur þú boðið
gestum upp á kaffi sem jafnast á
við það sem í boði er á kaffihús-
um.“
Þráinn segir sjálfvirkar vélar
vinsælar meðal einstaklinga en
ekki síður stórra og smárra fyrir-
tækja. „Gríðarlegur fjöldi fyrir-
tækja býður starfsmönnum sínum
upp á að nota vélar frá Saeco og er
ánægjan mikil. Við höfum fengið
til okkar vélar í yfirhalningu sem
hellt hafa upp á yfir sextíu þúsund
bolla, sem er ekkert smáræði,“
segir hann glaðlega.
Einar Farestveit selur einnig
kaffivélar frá öðrum merkjum
og af öðrum gerðum. Þar ber
helst að nefna Severin-kaffikönn-
una sem sýður vatnið fyrir uppá-
hellingu. Auk þess er hægt að fá
ýmsa fylgihluti sem tengjast kaffi-
gerðinni. „Við seljum gott kaffi frá
Kimbo á Ítalíu, erum með bragð-
efni, súkkulaði- og kanilkvarnir,
flóunar könnur og ýmsan annan
búnað,“ segir Þráinn og segir
starfsmenn Einars Farestveit
boðna og búna að aðstoða fólk við
valið. Nánari upplýsinga má leita á www.ef.is.
Þitt eigið kaffihús heima
„Það má segja að með þessum vélum hafi kaffihúsamenningin færst inn á heimili landsmanna,” segir Þráinn Bj. Farestveit verslunarstjóri. MYND/STEFÁN
● SEVERINKAFFIKANN
AN Sjálfvirkar kaffikönnur eru
æði mismunandi að gæðum.
Bestar
eru þær
sem sjóða
vatnið
fyrir
uppá-
hellingu.
Severin
ka5700
kaffikann-
an sem
sýður
vatnið
er sú
vél sem
kemst
næst því að líkja eftir gömlu
góðu uppáhellingunni en
mörgum finnst kaffið best eftir
þeirri uppskrift. Severin Cafe
Caprice kaffikannan hefur verið
á markaði hér á landi í hátt í
tuttugu ár.
● FLÓUNARKANNAN
LÉTTIR VERKIÐ. Sérstök list
er að flóa mjólk svo vel sé. Sér-
stakar flóunar-
könnur
létta kaffi-
unnendum
hins vegar
lífið og gera
öllum kleift
að flóa mjólk
að hætti
bestu bar-
þjóna.
kaffivélar
Mest seldu sjálfvirku kaffivélarnar
á Íslandi um árabil
Verð frá kr. 49.990