Fréttablaðið - 19.04.2011, Side 27
ÞRIÐJUDAGUR 19. apríl 2011
Fyrirtækið SegVeyjar í Vest-
mannaeyjum er fyrsta Segway-
leigan á landinu.
„Eftirspurnin er svolítið bundin
við blíðuna en við fáum miklar fyr-
irspurnir og um leið og hjólin sjást
á götunum,“ segir Bjarni Ólafur
Guðmundsson, sem á fyrir tækið
SegVeyjar í Eyjum ásamt konu
sinni Guðrúnu Mary Ólafsdóttur.
Þau leigja út tíu hjól.
Segway-hjól eru rafdrifin og
þeim er stjórnað með hreyfingum
líkamans. Hjólin eru umhverfis-
væn og hljóðlát. „Við reiknum
með að komast svona 28-33 kíló-
metra, því hér eru brekkur og oft
einhver mótvindur en fólk kemst
upp á Eldfell, út á Stórhöfða og inn
í Herjólfsdal og út á Eiði, og getur
rúntað í bænum, allt á sömu hleðsl-
unni,“ lofar Bjarni Ólafur og segir
akkúrat engan vanda að stjórna
hjólunum. „Fólk er svona frá tíu
sekúndum upp í fimm mínútur að
ná valdi á þeim.“
Hann segir fólk hæglega kom-
ast um alla eyjuna á einum degi en
upplagt sé að kaupa sér einhvers
staðar kaffibolla á leið sinni. „Svo
er taska framan á stýrinu þannig
að hægt er að taka með sér nesti
og setjast niður úti á Stórhöfða eða
inni í Dal.“
Heimsíða fyrirtækisins er www.
segwaytours.is - gun
Á rafhjóli
um Heimaey
„Fólk er svona frá tíu sekúndum upp í
fimm mínútur að ná valdi á hjólunum,“
segir Bjarni Ólafur í SegVeyjum.
Menningar- og sögutengd göngu-
ferð, söngur Bogomil Font og
vatnsleikfimi er meðal atriða í
páskadagskrá Bláa lónsins.
Bogomil Font mun flytja suð-
rænar kalypsóvísur með íslenskum
textum við undirleik Davíðs Þórs
Jónssonar á bökkum Bláa lónsins
laugardaginn 23. apríl. Menningar-
og sögutengd gönguferð verður á
annan í páskum. Hún hefst klukk-
an 13 við bílastæði Bláa lónsins
og er hluti af menningar- og við-
burðadagskrá Grindavíkur. Góður
skófatnaður er æskilegur og smá
nesti. Leiðsögumaður er Sigrún
Jónsdóttir Franklín.
Vatnsleikfimi verður einnig á
annan í páskum fyrir baðgesti Bláa
lónsins. Hún hefst klukkan 15 og
16.30 og er í boði Hreyfingar. Nói
Síríus gefur börnum sem borða á
veitingastaðnum LAVA páskaegg
meðan birgðir endast. - gun
Páskafjör í Bláa lóninu
Vatnsleikfimi verður í lóninu á annan
í páskum. MYND/HARI
Komu Norrænu til Seyðisfjarðar
verður flýtt í sumar. Ferðaþjón-
ustuaðilar á Austurlandi eru
óhressir með breytinguna og
telja að hún muni koma niður á
ferðaiðnaðinum.
Siglingum Norrænu verður flýtt
í sumar vegna viðlegutakmark-
ana í Hirtshals á Jótlandi í Dan-
mörku. Afleiðingarnar eru þær
að far þegar með flugrútum frá
Egilsstöðum til Seyðisfjarðar sem
ætla með Norrænu eiga á hættu að
missa af ferjunni.
„Undir eðlilegum kringum-
stæðum ætti þetta að nást en ef
fluginu seinkar aðeins missa far-
þegarnir af ferjunni, það er klárt
mál,“ segir Bergur Tómasson, sem
rekur Rútuþjónustu Seyðisfjarð-
ar. „Rúturnar fara frá Egilsstaða-
flugvelli klukkan níu á morgnana
og eru um hálftíma til Seyðis-
fjarðar. Þaðan fer ferjan klukk-
an tíu á fimmtudögum en ekki um
hádegi eins og áður. Fluginu má
því ekki seinka.“
Ferðaþjónustuaðilar á svæðinu
eru óhressir með breytta áætlun
Norrænu og hafa áhyggjur af því
að hún komi niður á þeim í sumar.
„Þetta dregur úr líkum á því að
bíllausir ferðamenn sem ætla með
ferjunni gisti annars staðar en á
Seyðisfirði nóttina fyrir brott-
för og ekki getur bærinn tekið
endalaust við fólki,“ segir Sigur-
björg Flosadóttir, sem rekur Gisti-
heimilið Eyvindará í Héraði. „Og
þá er líklegt að við munum þurfa
að fara upp fyrir allir aldir til að
sinna þeim sem láta sig hafa það
að gista hjá okkur.“
Hvorki Rútuþjónusta Seyðis-
fjarðar né Norræna sjá fram á
að geta samræmt áætlanir sínar
betur í sumar. „Þetta er bara
svona. Áætlun okkar rakst saman
við áætlanir annarra ferja í Dan-
mörku og við urðum því að gera
þessar breytingar og þar við
situr,“ segir Jóhann Jónsson,
framkvæmdastjóri Austfars, sem
þjónustar ferjuna á Seyðisfirði.
„Fólk verður því bara að vera á
svæðinu.“
Bergur, hjá Rútuþjónustu
Seyðis fjarðar, segir rúturnar
taka mið af komutíma flugvéla til
Egilsstaða. Á meðan flugáætlanir
standast haldist áætlanir rútanna
áfram óbreyttar. „Þannig að allt
útlit er fyrir að þetta verði svona
í sumar.“ - rve
Norræna fyrr á ferð
Siglingum Norrænu verður flýtt í sumar vegna viðlegutakmarkana í Hirtshals á Jót-
landi.
Skráðu þig inn – drífðu þig út
Ferðafélag Íslands
FERÐIR MEÐ
FERÐAFÉLAGI ÍSLANDS
Gengið á draugaslóð 1. júlí
Fararstjóri:
Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur
Fjörður og Látraströnd
14. júlí
Fararstjóri:
Sigríður Bergvinsdóttir
Björg, víkur og firðir
16. júlí
Fararstjóri:
Örlygur Steinn Sigurjónsson
Öxarfjörður út og suður
19. júlí
Fararstjóri:
Olga Gísladóttir
Ferðafélag barnanna fjölskyldu-
ferð um Laugaveginn
19. júlí
Fararstjórar:
Þórður Ingi Marelsson og Fríður Halldórsdóttir
Jarlhetturslóðir
21. júlí
Fararstjóri:
Ólafur Örn Haraldsson
Héðinsfjörður og Hvanndalir
21. júlí
Fararstjóri:
Ívar Arndal og Daði Garðarsson
Eyjabakkar - Snæfell.
Á hreindýraslóðum
23. júlí
Fararstjóri:
Hjalti Björnsson
Söguferð um Árneshrepp
26. júlí
Fararstjóri:
Guðmundur Hallvarðsson og Lára Ingólfsdóttir
Mörkinni 6 | Sími: 568 2533 | Fax: 568 2535 | Netfang: fi@fi.is
Hin fagra og forna Albanía
25 sept. - 5 okt.
Albanía hefur nú loksins opnast fyrir erlendum ferðamönnum.
Enn hefur alþjóðafæðingin ekki náð að festa þar rætur og er lítt
sjáanleg. Þar má sjá ævaforna menningu, söguna á hverju horni,
gríðarfallega náttúru og fagrar strendur og kynnast einstakri
gestrisni heimamanna þar sem gömul gildi eru í hávegum höfð.
Verð: 246.600 kr. á mann
miðað við tvo í herbergi
Innifalið: Flug, hótel,
allar ferðir, íslenskur
fararstjóri og hálft fæði.