Fréttablaðið - 19.04.2011, Page 32
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir og afi,
Halldór Halldórsson
fyrrverandi slökkviliðsmaður
Keflavíkurflugvelli,
Sautjándajúnítorgi 7, Garðabæ,
lést á hjartadeild Landspítalans 10. apríl.
Útförin mun fara fram miðvikudaginn 20. apríl
kl. 13.00 frá Vídalínskirkju í Garðabæ.
Vigdís Ketilsdóttir
Halldór Halldórsson Rannveig Rögnvaldsdóttir
Anton Ketill Halldórsson
Ólöf Björk Halldórsdóttir Jónas Friðrik Hjartarson
og barnabörn.
Minn elskaði sonur, eiginmaður, faðir,
tengdafaðir, afi og bróðir,
Ragnar J. Ragnarsson
lést laugardaginn 9. apríl. Útförin fer fram frá
Dómkirkjunni miðvikudaginn 20. apríl kl. 13.00.
Stasía Jóhannesson
Steinunn Magnúsdóttir
Ragnhildur Ragnarsdóttir
Birgir Ragnarsson Hlíf Þorgeirsdóttir
Eyþór Ragnarsson Torfhildur Sigurðardóttir
Dennis D. Jóhannesson Hjördís Sigurgísladóttir
Linda Ragnarsd. Jóhannesson
Jónbjörn, Ragnar, Þórey, Irja, Rakel, Daníel Snær,
Dagur Steinn.
50 ára afmæli
Helga
Ragnarsdóttir,
fótaaðgerðarfræðingur og fl ugfreyja,
verður 50 ára 22. apríl. Við hjónin bjóðum
ætting jum og vinum að koma á skírdag 21.
apríl milli kl. 17.00 og 21.00 á heimili okkar
að Norðurvöllum 34, Kefl avík, og eiga með
okkur góða stund.
Helga og Óskar
Móðir mín og amma,
Ása Beck
andaðist laugardaginn 16. apríl á Landspítalanum á
Fossvogi.
Magnús Haukur Jökulsson
Þórunn Elín Magnúsdóttir.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur hlýhug og samúð við
andlát og útför
Eberhardts
Marteinssonar
Hvassaleiti 17, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Skógarbæjar fyrir góða umönnun.
Marteinn Eberhardtsson Steinunn Ragna Hauksdóttir
Einar Eberhardtsson Hellen S. Helgadóttir
Karen Eberhardtsdóttir
Hilmar Eberhardtsson
barnabörn og langafabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Báru Marsveinsdóttur
Sólveig Magnúsdóttir Erling Sigurðsson
Birna Lúðvíksdóttir
Marsveinn Lúðvíksson
Erna Lúðvíksdóttir Einar Jónsson
Erla Lúðvíksdóttir Kristján Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum
þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar ástkærs
eiginmanns míns, föður, tengdaföður
og afa,
Ragnars Valdimarssonar
Lindasíðu 29, Akureyri.
Sigrún Ásdís Ragnarsdóttir
og fjölskylda.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðbjörg Þórhallsdóttir
áður til heimilis að Kirkjuvegi 1,
Keflavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Hlévangi, Keflavík,
föstudaginn 15. apríl. Útför hennar verður gerð frá
Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 27. apríl kl. 15.00.
Þórdís Þormóðsdóttir Karl Steinar Guðnason
Úlfar Þormóðsson Anna Kristín Arngrímsdóttir
Hrönn Þormóðsdóttir Hallbjörn Sævars
Logi Þormóðsson
Anna Björg Þormóðsdóttir Erling Kristinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
Sigurður Sturluson
frá Þverdal, Aðalvík,
Faxabraut 13-15, Keflavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Hlévangi föstudaginn
15. apríl. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
miðvikudaginn 27. apríl kl. 13.00.
Kolbrún Sigurðardóttir
Jóhanna Guðrún Sigurðardóttir
Hansína Sigurðardóttir Pétur Jónsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Þökkum allar þær fallegu og
hlýlegu kveðjur sem okkur
bárust vegna andláts
Thors Vilhjálmssonar
rithöfundar.
Margrét Indriðadóttir
Örnólfur Thorsson Margrét Þóra Gunnarsdóttir
Guðmundur Andri Thorsson Ingibjörg Eyþórsdóttir
Margrét Edda Örnólfsdóttir
Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir
Gunnar Thor Örnólfsson
Svandís Roshni Guðmundsdóttir
Sólrún Liza Guðmundsdóttir.
„Núna hef ég mest dálæti á súrdeigsbrauði, en því miður
fengum við lítið að smakka á meðan löngunin óx til að baka
margt af því norræna brauðmeti sem rannsóknin fjallar
um,“ segir Lilja Árnadóttir, fagstjóri Munasafns Þjóðminja-
safns Íslands, nýkomin heim frá Stokkhólmi þar sem niður-
stöður voru kynntar úr samnorrænni rannsókn um brauð,
bakstur og brauðneyslu á Norðurlöndum.
Löng hefð er fyrir samstarfi safna á Norðurlöndun, en
Lilja situr í NORSAM, samráðshópi norrænna safna sem
efnt hefur til afmarkaðra samstarfsverkefna á sviði sam-
tímavarðveislu og rannsókna.
„Söfn leita nú í ríkari mæli leiða til að skrásetja og rann-
saka hluti á meðan þeir enn eru lifandi, öfugt við það sem
áður tíðkaðist þegar einblínt var á það sem liðið var,“ segir
Lilja, en auk Þjóðminjasafns tóku Árbæjarsafn, Minja safnið
á Akureyri, Byggðasafnið í Árnessýslu og Minjasafnið á
Hnjóti þátt í verkefninu og fengu frjálsar hendur um val
á viðfangsefni.
„Flest völdu það sem einkennir þeirra heimaslóðir, eins
og laufabrauð, hverarúgbrauð og vestfirskar hveitikökur,
en einnig brauðmeti innflytjenda og heimabakstur, enda
ætlunin að sýna fram á menningar- og samfélagslegan fjöl-
breytileika þar sem brauð er í forgrunni,“ segir Lilja, og
margt skemmtilegt kom upp úr brauðkistu hinna Norður-
landaþjóðanna.
„Það sem var skemmtilegt nú er að eistnesk söfn tóku
þátt í verkefninu með sína inngrónu brauðmenningu þar
sem fólk lifði á rúgbrauði öldum saman í gegnum hörm-
ungar. Þá var einnig fjallað um skurðarhnífa í bakaríum,
brauðsölu í stórmörkuðum, trúarlega siði og hjátrú brauðs,
mikla öldu súrdeigsbrauða, kransakökur og danskt sæta-
brauð til átu á pálmasunnudag, en þar er uppskriftin leynd-
armál. Menn berjast því við að halda í hefðirnar og viðhalda
kunnáttunni, enda gómsætur bakstur og oftast léttur í fram-
kvæmd,“ segir Lilja.
Í maí verða niðurstöður brauðrannsókna settar á braud-
brunnur.is, en nú þegar má taka þar forskot á sæluna með
fróðleik, frásögnum, sýningum, viðtölum og girnilegum
uppskriftum.
„Danskir og sænskir brauðbrunnar njóta mikilla vin-
sælda, en þar kallast þeir brauðbankar. Við tókum með-
vitaða ákvörðun um að nota ekki orðið banki og vildum frek-
ar vísa í uppsprettu einhvers góðs,“ segir Lilja.
Hún bætir við að brauðmenning Norðurlandanna sé lituð
Miðjarðarhafsmenningu, en íslenskan bakstur einkenni
fátækt af mjöli og hversu seint korn barst hingað til lands.
„Laufabrauð, hverarúgbrauð og vestfirskar hveitikökur
eru séríslensk fyrirbæri og allt sló það í gegn þegar við
gáfum smakk á samfundi í Danmörku. Samvinna af þessu
tagi er mikill innblástur og íslenskum söfnum mikilvægt
að horfa aðeins út um gluggann og fá að læra af öðrum,
en einnig að finna hversu mikið erindi við eigum í öðrum
löndum og margt fram að færa með okkar menningararfi.
Það er stóra gulrótin og blómið í afrakstrinum.“
thordis@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
BRAUÐBRUNNUR.IS: GEYMIR ALLT UM
BRAUÐ OG BAKSTUR Á NORÐURLÖNDUM
Við kunnum
brauð að baka
BRAUÐMÓT LIÐINNA TÍMA Lilja Árnadóttir með íslensk útskorin brauð-
mót sem lögð voru ofan á brauðhleif fyrir bakstur. Með því myndaðist
fagurt munstur eða áletrun í brauðið, en myndin er spegilmynd.
Bakstur með brauðmótum tíðkaðist á Íslandi í gamla daga.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI