Fréttablaðið - 19.04.2011, Síða 34
19. apríl 2011 ÞRIÐJUDAGUR26
BAKÞANKAR
sr. Sigurðar
Árna
Þórðarsonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Jæja, við förum á svið
eftir fimm mínútur...
ertu búinn að gera
eitthvað til að laga
andremmuna?
Haha! Ertu
búinn að
lesa Rocky í
dag? Þar er
sko særður
hundur, snilld!
Þessi sem
teiknar sig
og vini sína
með dýra-
höfuð?
Já! Myndirðu
ekki vilja vera
persóna í
myndasögu? Að
lesa í blaðinu
allt sem við
gerum?
Hvað ætti sú
myndasaga
að fjalla um?
Að við sitjum
á barnum
allan daginn
og blöðrum?
Halló!
Kiss er
besta
hljómsveit
allra tíma!
Þú ert
hálfviti,
vakn-
aðu Jói!
Það gæti
verið flott...
við þurfum
bara að finna
sæmilegan
teiknara!
Veit ekki! Ég
myndi pott-
þétt fá risanef
hjá honum,
þeir þurfa
alltaf að ýkja
allt!
Herbergi Palla
er farið að líkjast
hreiðri meira en
svefnherbergi!
Rétt.
Þar að auki borðar hann eins
og dýr, hann rymur að okkur
og hann flakkar um með sér
líkum í hópum!
Hvað
ertu að
segja?
Ég held að
við séum að
ala upp villtan
táning!
Ég tek eina af
þessum þegar
ég er með
höfuðverk.
Ég er
tilbúinn að
prófa allt.
Vá! Þetta er ótrúlegt!
Mér líður strax betur!
Hvað var
þetta... Extra
sterkar? Súper
sterkar? Extra-
súper sterkar?
Nei,
betra
en það.
MÖ
MM
UPI
LLU
R!
Fyrir
tilfa
llan
di h
öfuð
-
verk
þeg
ar m
aðu
r á
tvö
eða
flei
ri bö
rn.
LÁRÉTT
2. íþrótt, 6. fæddi, 8. sægur, 9.
dæling, 11. golf áhald, 12. afkima, 14.
yfirstéttar, 16. skst., 17. festing, 18.
sprækur, 20. hljóta, 21. dugnaður.
LÓÐRÉTT
1. fjármunir, 3. einnig, 4. nennuleysi,
5. orlof, 7. niðurlag, 10. guð, 13.
samræða, 15. lítill, 16. andmæli, 19.
ónefndur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. golf, 6. ól, 8. ger, 9. sog,
11. tí, 12. skoti, 14. aðals, 16. no, 17.
lím, 18. ern, 20. fá, 21. iðni.
LÓÐRÉTT: 1. góss, 3. og, 4. letilíf, 5.
frí, 7. lokaorð, 10. goð, 13. tal, 15.
smár, 16. nei, 19. nn.
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA STRAX
„Critics choice“
Time Out, London
„Þessi leiksýning hefur allt
sem þarf til að skapa vel
heppnað og
eftirminnilegt leikverk.“
I.Þ., Mbl.
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
fim. 12/5 kl. 20 – lau. 21/5 kl. 20 – fös. 27/5 kl. 20
Ég klippti rósarunna mína um helgina. Gaddarnir stungu illa og særðu. Ég
henti snarlega frá mér greinunum, en þá
hríslaðist um mig viska japansks ljóðs um
þjáningu og viðbrögð. Þrenna lausnar úr
vanda, sorg, þjáningu er: Faðma, bera og
sleppa. Hvernig getur fólk snúið hörm-
ungum til góðs? Það er íhugunar virði í
kyrruviku.
JAPANAR hafa orðið fyrir stórkostlegum
áföllum og lært áfallavisku. Japanska
skáldið og alþýðufræðarinn Miyasawa
Kenji samdi ljóð um rósaburð, sem opin-
berar þjáningarþrennu og bataferli. Ljóðið
tjáir: Ímyndaðu þér, að þú haldir á föln-
uðum, dauðum rósum. Þyrnarnir
stinga og freistandi er að sleppa
blómunum, sem særa illa. En í
stað þess að gefast upp gengurðu
af stað og í átt til eldstæðisins.
Þar hendir þú rósavendinum í
glóðina. Í þeim kviknar, eldur-
inn lifnar, lýsir þér og vermir
líka.
Í þessu ljóði um burð og
brennandi rósir birtast stig
glímu manna við sorg og þján-
ingu. Í fyrsta lagi, að taka eða
umfaðma það, sem særir. Það
þýðir, að viðurkenna og nefna
ógnarefnið. Síðan tekur við ferðin í og með
þjáningunni. Í þriðja lagi og að lokum er
ákvörðun og vörpun meinvalds í eldinn. Þá
verður bál. Hiti vex og yljar. Að faðma og
bera til bruna er ferli sorgar og forsenda
upprisu. En til að logi glæðist verður að
sleppa.
FÓLK sem flýr þjáningu bælir þrá hjart-
ans og sleppur ekki frá löngum föstudög-
um. Boðskapur kristninnar er að dauðinn
þarfnast lífs, að dauðinn dó en lífið lifir,
að sól kemur upp á sunnudegi. Hinsta verk
okkar er ekki að grafa hin látnu, heldur
vænta og gleðjast yfir, að hann og hún rísa
upp – vegna þess að rósir voru bornar alla
leið.
GUÐ kristninnar er ekki fjarlægt heims-
afl í astrónómískum ofurhvelli. Guð er
náinn fólki og öllu lífi. Altari er strípað í
mörgum kirkjum heims í lok messu skír-
dags. Biblía, bikar og ljós eru borin út.
Síðan eru afskornar rósir lagðar á nakið
borðið. Föstudagurinn verður þeim langur
og til fjörtjóns. Knúpparnir slúta líflausir
fram yfir brún og verða æpandi tákn.
Rósir á altari eru mál elskunnar. Þær eru
tákn síðusárs og meina heims og manna.
Gróa sárin – verða páskar? Kemur lausnin
heims og þín? Guð faðmar, ber og sleppir.
Eldur gýs upp í heimi. Lífið lifir.
Rósir brenndar