Fréttablaðið - 20.04.2011, Side 28
MARKAÐURINN20. APRÍL 2011 MIÐVIKUDAGUR2
F R É T T I R
Hagvöxtur jókst um 9,7 prósent í
Kína á fyrsta ársfjórðungi. Þetta
er 0,1 prósentustigs samdráttur á
milli ársfjórðunga og meiri vöxt-
ur en gert var ráð fyrir. Á sama
tíma hækkaði verðlag í kringum
tíu prósent og keyrði verðbólgu
upp. Hún mælist nú 5,4 prósent.
Niðurstaðan þykir sýna að að-
gerðir stjórnvalda til að kæla hag-
kerfið, þar á meðal snarpar stýri-
vaxtahækkanir, gangi hægt, eins
og Alistair Thornton, hagfræð-
ingur IGS Global Insight, sem
sérhæfir sig í greiningum í efna-
hags- og atvinnumálum, bendir á.
Breska viðskiptadagblaðið Fin-
ancial Times segir hagtölurnar
vísbendingu um að stjórnvöld
í Kína muni draga úr aðhaldi á
lánsfjármarkaði og lækka verð-
bólgu. Aðgerðir stjórnvalda hafi
fram til þessa ekki dregið úr að-
gangi fólks að lánsfé. Bankar lán-
uðu 680 milljarða júana, jafnvirði
11.800 milljarða íslenskra króna, í
síðasta mánuði. Það er 27 prósenta
aukning á milli mánaða.
Þrátt fyrir hita í kínverska hag-
kerfinu lofaði Wen Jiabao for-
sætisráðherra í ræðu sinni í lið-
inni viku að stjórnvöld myndu
áfram gera fólki kleift að eignast
ódýrara húsnæði. - jab
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
skrifar
„Það er mjög góð viðurkenning á því að það sem við
gerðum jafnast á við það besta sem gert er í heimin-
um. Það skiptir ekki öllu máli hvort við vinnum. Meiru
skiptir að við komumst í úrslit,“ segir Kristján Schram
hjá Íslensku auglýsingastofunni.
Hann stýrði fyrir hönd auglýsingastofunnar herferð-
inni Inspired by Iceland, samvinnuverkefni á vegum
ríkis og borgar auk fyrirtækja í ferðaþjónustu. Her-
ferðinni var hleypt af stokkunum í júní í fyrra til að
vekja athygli á landi og þjóð og vinna á móti stórkost-
legri fækkun ferðamanna vegna eldgossins í Eyja-
fjallajökli. Í fyrravor stefndi í að ferðamönnum myndi
fækka um 22 prósent á milli ára yrði ekkert að gert.
Herferðin er nú komin í úrslit í Global Effie-keppn-
inni, sem er ein virtasta viðurkenning sem markaðs-
fólki í heiminum getur hlotnast og litlu við að jafna í
auglýsingageiranum öðru en Óskarsverðlaununum.
Keppnin er haldin einu sinni á ári og verða verðlaun-
in afhent í New York í Bandaríkjunum í júní. Fram til
þessa hefur Íslenska auglýsingastofan fengið fimm til-
nefningar í erlendum samkeppnum, og ein verðlaun,
fyrir herferðina auk þess að fara með heim tvenn verð-
laun á ÍMARK-hátíðinni fyrr á þessu ári, meðal annars
fyrir bestu herferðina.
Ljóst er að Íslenska auglýsingastofan er komin í
lið með stóru strákunum en undantekningalítið hafa
stærstu stofur heims farið heim með gull, silfur eða
brons úr Global Effie-keppninni síðustu ár. Þar á meðal
eru Leo Burnett, TBWA, Ogilvy & Mather, Grey Global,
JWT og DDB. Herferðirnar sem hlotið hafa verðlaun
í gegnum tíðina eru matvörurisinn Kellogg‘s, hrein-
lætisvörufyrirtækið Dove, skyndibitakeðjan McDo-
nald‘s, íþróttavöruframleiðandinn Adidas og tækni-
fyrirtækið Apple.
Herferðirnar sem tilnefndar eru til Global Effie-
verðlaunanna eiga það sammerkt að hafa náð til
nokkurra landa en skilyrðið fyrir tilnefningu er að
þær hafi farið fram í að minnsta kosti fjórum lönd-
um og í tveimur heimsálfum. Þá er ekki síður horft á
strategíska innsæið en árangur herferðarinnar.
„Hér er verið að veita okkur viðurkenningu fyrir
þann hluta sem fór ekki fram á Íslandi. Íslendingar sáu
í raun minnst af herferðinni, kannski fimm prósent,“
segir Kristján og bendir á að bæði hafi verið horft
til skemmri og lengri tíma með herferðinni. Skamm-
tímamarkmiðið sneri að því að fjölga ferðamönnum í
fyrrasumar. Langtímamarkmiðið var að vekja athygli
á landi og þjóð með notkun samfélagsvefja, almanna-
tengsla og heimasíðu herferðarinnar.
Icelandair greindi frá því í síðustu viku að áætlað sé
að erlendum ferðamönnum hér muni fjölga um fimm-
tán til tuttugu prósent á milli ára. Það merkir að sex
hundruð þúsund erlendir ferðamenn komi til landsins
í sumar. Það er hundrað þúsund fleiri ferðamenn en
í fyrra og mesti vöxtur í ferðaþjónustu á einu ári frá
því mælingar hófust.
„Við erum stolt af því að hafa tekið þátt í þessu átaki
sem er einstakt í Íslandssögunni. Ferðamönnum fjölg-
ar enn og þær gjaldeyristekjur sem þeir færa þjóðar-
búinu eru mikils virði,“ segir Kristján.
Inspired by Iceland
í flokki með risum
Íslenska auglýsingastofan er komin í úrslit í Global Effie-
keppninni fyrir átak til að fjölga ferðamönnum hér.
STÝRIMAÐUR INSPIRED BY ICELAND Íslenska auglýsinga-
stofan hefur fengið fjölda verðlauna, bæði hér heima og erlendis,
fyrir auglýsingaherferðina Inspired by Iceland.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Bandarískir banka ættu að
fara að hætti breskra og
skilja áhættusaman rekst-
ur frá annarri starfsemi að
mati Sheilu Bair, stjórnar-
formanns bandarísku inni-
stæðutryggingastofnunar-
innar.
Bair vill herða reglur
banka og fjármálafyrir-
tækja. Breska viðskiptadagblaðið
Financial Times bendir á að eftir-
litsnefnd um banka og fjármála-
fyrirtæki í Bretlandi hafi ein-
mitt lagt þetta til í síðustu viku.
Tillagan felur í sér að ríkið eða
eftirlitsaðilar sem telja
fjármálafyrirtæki orðin
of stór geti krafist þess að
þau verði brotin upp.
Í skýrslu FDIC sem kom
út á mánudag eru birtar
nýjar reglur um yfirtöku
og slit á fjármálafyrir-
tækjum.
Ef þær hefðu gilt hefði
breski bankinn Barclays getað
tekið yfir fjárfestingarbankann
Lehmans Brothers um miðjan sept-
ember 2008. Þá hefðu kröfuhafar
litlu sem engu tapað og slitin tekið
styttri tíma en raun varð á. - jab
Vill brjóta upp bankana
SHEILA BAIR
BEÐIÐ EFTIR VIÐSKIPTAVINI
Matvöruverð hefur hækkað mikið í Kína.
Landsmenn virðast hafa nóg fé á milli
handanna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
B A N K A B Ó K I N
Samanburður á
vaxtatöflum bankanna
*Miðað er við 250.000 króna innlegg og sem skemmsta bindingu. A Bundinn í tíu daga. B Bundinn í sjö
daga. C Úttektargjald hjá gjaldkera 0,25%
Athugið að ekki er tekið tillit til árgjalds, sem getur fylgt yfirdráttarreikningum.
Hæstu Yfirdráttarvextir Yfirdráttarlán
innlánsvextir eru hæstir fyrirtækja
Markaðsreikningur
1,25%A
11,25% 11,2%
Vaxtaþrep
1,90%
11,20% 11,2%
Vaxtareikningur
1,15%B
11,20% 11,20%
MP Sparnaður 9,50 til
2,00%
11,15% 11,15%
PM-reikningur 11,10 til
2,05% 11,15% 11,20%
Netreikningur
2,10% C
11,45% 11,40%
Sparnaðarreikningur
2,10%
10,20% Ekki í boði.
Bankarnir ausa út lánsfé
ER ÞITT FYRIRTÆKI
MEÐ SAMNING?
SAGA CLASS
Úrvalsþægindi, gott rými
og fyrsta flokks þjónusta.
Fyrirtæki sem eru með samning við Icelandair njóta
þess í hagkvæmari rekstri, betri tímanýtingu og
ánægðara starfsfólki.
Hlunnindi sem fyrirtækjasamningur veitir:
Sérstakur ferðaráðgjafi hefur umsjón með hverju
fyrirtæki.
Neyðarnúmer sem er opið allan sólarhringinn – alla
daga ársins.
Afsláttur sem býðst af fargjöldum til áfangastaða
Icelandair.
Nákvæmt viðskiptayfirlit á vefnum.
+ Allar nánari upplýsingar á www.icelandair.is/fyrirtaeki
eða sendið fyrirspurnir á fyrirtaeki@icelandair.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
5
39
19
0
4
/2
01
1
Ákvörðun matsfyrirtækisins
Standard & Poor‘s á mánudag
um að lækka lánshæfiseinkunn
Bandaríkjanna úr stöðugum
horfum niður í neikvæðar olli
verulegum usla á verðbréfamörk-
uðum víðs vegar um heim í gær.
Fyrst lækkuðu verðbréf á
mörkuðum í Bandaríkjunum og
Evrópu og í kjölfarið fylgdi lækk-
un á mörkuðum í Asíu. Markað-
irnir voru þó ekki lengi að ná sér
eftir tíðindin. Í gær urðu góðar
fréttir af hagnaði bandaríska
fjárfestingabankans Goldman
Sachs til þess að þeir tóku við
sér að mestu.
Fréttirnar urðu hins vegar
einnig til þess að olíuverð lækk-
aði á heimsmarkaði, sem skýrist
af því að aukin óvissa er bæði
um framhald hagvaxtar og hver
eftirspurn eftir hráolíu verður á
næstunni. Barack Obama Banda-
ríkjaforseti viðurkenndi í gær að
vaxandi skuldabyrði ríkissjóðs
geti valdið alvarlegu tjóni í land-
inu. Hann sagðist ætla að draga
úr ríkisútgjöldum, en þó án þess
að draga úr útgjöldum til mennta-
mála, orkumála og vísinda. - gb
Lækkað lánshæfismat
olli nokkurri ólgu
UPPNÁM Í KAUPHÖLLINNI Verðbréfa-
miðlarar í kauphöllinni í New York stuttu
eftir að Standard & Poor‘s tilkynnti um
lækkað lánshæfismat. FRÉTTABLAÐIÐ/AP