Fréttablaðið - 20.04.2011, Side 57
MIÐVIKUDAGUR 20. apríl 2011 45
FÓTBOLTI Barcelona og Real Madrid
eigast við í úrslitaleik spænsku
bikarkeppninnar á Mestalla-vellin-
um í Valencia í kvöld. Um risaslag
er að ræða, eins og ávallt þegar
þessi tvö lið eiga í hlut. Þau mætt-
ust í spænsku úrvalsdeildinni um
helgina og skildu þá jöfn, 1-1. Þess
má svo geta að þau mætast tvíveg-
is í undanúrslitum Meistaradeild-
arinnar á næstu vikum.
Barcelona er svo gott sem búið
að tryggja sér spænska meistara-
titilinn enda með átta stiga forystu
á Real. Það er því kappsmál fyrir
Madrídinga að láta þennan titil sér
ekki úr greipum renna og það til
erkifjenda sinna.
„Það getur allt gerst í þess-
um leik og stemningin verður
sjálfsagt hátíðleg,“ sagði Pep
Guardiola, stjóri Barcelona. „Við
verðum fyrst og fremst að hvetja
okkar menn áfram en bera samt
virðingu fyrir andstæðingnum.“
Hann sagði að sínir menn væru
búnir að skoða leik helgarinnar
vel. „Við þurfum að spila betur,
skapa fleiri færi og láta boltann
ganga hraðar á milli okkar.“
Barcelona varð síðast bikar-
meistari árið 2009 og fór úrslita-
leikurinn þá einnig fram á sama
stað. Bið Madrídinga er talsvert
lengri, en liðið varð síðast meistari
árið 1993. Iker Casillas, sem hefur
staðið vaktina í marki Real síðan
2000, hefur unnið alla titla sem í
boði eru nema þennan.
José Mourinho, stjóri Real,
hefur unnið bikarmeistaratitil í
öllum þeim þremur löndum þar
sem hann hefur þjálfað hingað til
og getur bætt þeim fjórða í safnið
í kvöld. - esá
Barcelona og Real Madrid mætast í úrslitum spænsku bikarkeppninnar:
Fyrsti stóri titill ársins í boði
STJÓRARNIR Pep Guardiola og José Mourinho heilsast fyrir leik Barcelona og Real
Madrid um helgina. NORDICPHOTOS/AFP
HANDBOLTI Úrslitarimma Akur-
eyrar og FH um Íslandsmeistara-
titilinn í handbolta hefst á þriðju-
daginn næstkomandi. Fyrsti
leikurinn verður á Akureyri og
hefst klukkan 19.30.
Þrjá sigra þarf til að tryggja
sér titilinn og skiptast liðin á að
spila á heimavelli þar til úrslitin
liggja fyrir. Næsti leikur á eftir
verður í Kaplakrika föstudaginn
29. apríl og svo aftur á Akureyri
sunnudaginn 1. maí.
Ef þörf verður á fjórða og
fimmta leiknum fara þeir fram
dagana 4. og 6. maí. - esá
Lokaúrslit í N1-deild karla:
Rimman hefst
á þriðjudaginn
HANDBOLTI Kiel og Hamburg
munu eigast við í risaslag í þýsku
úrvalsdeildinni í handbolta í
kvöld en oftar en ekki hefur titil-
baráttan ráðist í leikjum þessara
liða í þýsku úrvalsdeildinni.
Svo gæti einnig farið nú, þó
svo að spennan sé talsvert minni.
Hamburg er í kjörstöðu á toppn-
um – með fimm stiga forystu á
næstu lið og á leik til góða.
„Hamburg er búið að tryggja
sér þetta, það liggur ljóst fyrir,“
sagði Alfreð Gíslason, þjálfari
Kiel, við þýska fjölmiðla. „Hjá
okkur snýst þetta um að tryggja
okkur annað sæti deildarinnar.“
Aron Pálmarsson leikur með
Kiel. - esá
Alfreð Gíslason:
Hamburg búið
að vinna titilinn
ALFREÐ Reiknar ekki með öðru en að
Hamburg verði þýskur meistari í vor.
NORDICPHOTOS/BONGARTS
SKEMMTILEG
SUMARLEIKFÖNG
Meira í leiðinniN1 ÞJÓNUSTUSTÖÐVAR | WWW.N1.IS
25%
AFSLÁTTURTILVALIN
SUMAR-
GJÖF!
ÚRVAL SUMARLEIKFANGA MEÐ 25% AFSLÆTTI Á NÆSTU ÞJÓNUSTUSTÖÐ N1
Vesturhrauni 3 · 210 Garðabæ.
Sími 480-0030 · www.burstagerdin.is
- Í öll anddyri
- Hvaða stærð sem er
- Afgreidd á 2 dögum
• •B
U R
S TA G E R Ð I N
ÍS
L
E N S K U R I Ð N
A Ð
U
R