Fréttablaðið - 21.04.2011, Blaðsíða 6
21. apríl 2011 FIMMTUDAGUR6
EFNAHAGSMÁL Misvísandi hagvísar
og óvissa um efnahagsþróun í kjöl-
far atkvæðagreiðslu um Icesave
gera að verkum að peningastefnu-
nefnd Seðlabanka Íslands hefur
ákveðið að halda stýrivöxtum
óbreyttum. Vextirnir eru þeir sömu
og ákveðnir voru í febrúar. Vöxtum
var ekki heldur breytt í mars.
Í rökstuðningi nefndarinnar
er bent á að verðbólguhorfur
hafi versnað, að minnsta kosti til
skamms tíma, auk þess sem raun-
vextir Seðlabankans hafi lækk-
að umtalsvert. Þá hafi niðurstaða
atkvæðagreiðslunnar um Icesave
aukið hættu á veikara gengi krón-
unnar. Á móti komi þættir sem kalli
fremur á slökun í stjórn peninga-
mála, svo sem að hagvaxtar- og
atvinnuhorfur hafi versnað. Hætta
er sögð á að hagvöxtur verði enn
minni vegna niðurstöðu atkvæða-
greiðslunnar um Icesave.
Í kynningu á niðurstöðu pen-
ingastefnunefndar sagði Már Guð-
mundsson horfur á að mæld verð-
bólga færi yfir þrjú prósent þegar
liði á árið. Væntingar heimila til
verðbólgu lægju í kringum fjögur
prósent og mælingar á verðbólgu-
álagi skuldabréfa langt fram í
tímann sýndu svipaða tölu.
Um leið benti Már á að þótt
skammtímaraunvextir væru
undir einu prósenti hefði sú slök-
un í aðhaldsstigi peningastefnunn-
ar ekki skilað sér nema að hluta til
heimila og fyrirtækja. Í Peninga-
málum, efnahagsriti bankans sem
út kom í gær, segir að hnökrar í
miðlun peningastefnunnar endur-
Verðbólga skýrist af
verðþróun erlendis
Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreytt-
um. Með lægri raunvöxtum jafngilda óbreyttir vextir slökun í stjórn peninga-
mála. Verðbólguhorfur hafa versnað. Verðbólgumarkmið nást aftur á næsta ári.
Í nýjum Peningamálum, efnahagsriti
Seðlabankans, kemur fram að hagvaxtar-
horfur landsins hafi versnað síðan í febrúar.
Breytingin er til komin vegna kröftugs vaxtar
á innflutningi. Nýjar tölur Hagstofunnar sýna
að efnahagssamdráttur í fyrra var meiri en
talið var. Þá er útlit fyrir minni hagvöxt en
vænst var á næstu tveimur árum. Yfirskrift
Peningamála nú er: „Lakari efnahagshorfur
og meiri óvissa.“
Fram kom í kynningu Þórarins G. Péturs-
sonar, aðalhagfræðings Seðlabankans, að
lakari hagvaxtarhorfur geri einnig að verkum
að horfur á vinnumarkaði hafi versnað.
Hann segir ráð fyrir því gert að atvinnuleysi
nái hámarki á öðrum ársfjórðungi þessa
árs, en verði að jafnaði 7,7 prósent á þessu
ári. Atvinnuleysi verði svo komið í fimm
prósent árið 2013 og um fjögur prósent um mitt ár 2014. „Hættan er sú að
atvinnuleysi festist meira í sessi en við höfum áður talið,“ sagði Þórarinn.
ÞÓRARINN G. PÉTURSSON
Lakari efnahagshorfur og meiri óvissa
ARNÓR SIGHVATSSON OG MÁR GUÐMUNDSSON Í máli Arnórs Sighvatssonar aðstoðarseðlabankastjóra kom fram að fundir sem
stjórnvöld hefðu átt með matsfyrirtækjum um helgina hefðu verið gagnlegir, jafnvel þótt þau kynnu að lækka lánshæfi landsins. Komið
hefði verið á framfæri upplýsingum sem ykju líkur á betra mati síðar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Sérfræðingar í bílum
Vinningshafar í spurningaleik Chevrolet
Ert þú á benni.is?
Chevrolet er 100 ára. Bílabúð Benna stendur fyrir alls konar
uppákomum á afmælisárinu; Ári slaufunnar.
Nú er lokið spurningaleiknum Veistu Chevrolet svarið, sem fór fram
á þremur stöðum á landinu: í Reykjavík, á Akureyri og
í Reykjanesbæ. 16 heppnir þátttakendur hafa verið dregnir úr
pottinum. Bílabúð Benna þakkar frábærar móttökur og óskar
vinningshöfum til hamingju.
Bílabúð Benna - Vagnhöfða 23 - Reykjavík - sími 590 2000
Gæði í 100 ár
Ár slaufunnar
Nöfn vinningshafa eru birt á benni.is
Er nafnið þitt þar?
spegli meðal annars óvissu um
fjárhagslegan styrk fjármálafyrir-
tækja, gæði eigna þeirra og auknar
álögur á bankarekstur. Aðgengi að
lánsfé sé því enn erfitt og útláns-
vextir tiltölulega háir.
Már áréttaði að verðbólga sem
verið hefði og von væri á stafaði
að töluverðu leyti af verðhækk-
unum á olíu og hrávöru erlendis.
„Það er vitanlega mikið álitamál
hversu varanlegar þessar hækk-
anir verða, en að því marki sem
þær verða tímabundnar mun þetta
ganga til baka og er eitthvað sem
við þurfum ekki beinlínis að taka
tillit til við ákvörðun peninga-
stefnunefndar, svo lengi sem þetta
hefur ekki varanleg áhrif á verð-
bólguvæntingar og smitast inn í
launamyndanir.“
Seðlabankinn gerir því ráð fyrir
að verðbólgumarkmið bankans
náist aftur á næstu ári, þó með
þeim fyrirvara að hækkanir sem
felist í drögum að nýjum kjara-
samningum virðist meiri en svo
að samrýmist verðbólgumarkmiði
til lengri tíma. „Þar með segjum
við ekki að kjarasamningar á þeim
nótum ógni verðbólgumarkmiðinu.
Það fer eftir því hvað annað ger-
ist, svo sem með gengi krónunnar,“
bætti Már við. olikr@frettabladid.is
BJÖRGUN Lítill grásleppubátur
komst í hann krappann úti fyrir
Gróttu á Seltjarnarnesi eftir
hádegi í gær. Báturinn fékk
í skrúfuna og rak í kjölfarið
stjórnlaust að landi.
Stjórnstöð Landhelgisgæsl-
unnar kallaði á nærstaddan bát,
sem brást snöggt við og tókst að
draga grásleppubátinn frá landi á
síðustu stundu. „Þetta stóð tæpt,“
segir Halldór B. Nellett, fram-
kvæmdastjóri aðgerðasviðs hjá
Landhelgisgæslunni.
Björgunarbátar Landsbjargar
voru sendir á staðinn og tóku
bátinn í tog eftir að honum hafði
verið bjargað. Þyrla Landhelgis-
gæslunnar fór einnig á staðinn.
Farið var með bátinn í Reykja-
víkurhöfn. - sh
Bátur fékk í skrúfuna:
Þetta stóð tæpt
DREGINN AÐ LANDI Björgunarbátar
Landsbjargar aðstoðuðu bátinn til
hafnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Dópaðir undir stýri
Lögreglan stöðvaði för þriggja öku-
manna á höfuðborgarsvæðinu í fyrra-
dag, því þeir voru allir undir áhrifum
fíkniefna. Þetta voru allt karlmenn
á aldrinum 30 til 50 ára. Tveir þeirra
höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og
var annar þeirra á stolnum bíl.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Brotist inn í Lundann
Brotist var inn í veitingastaðinn Lund-
ann í Vestmannaeyjum aðfaranótt
miðvikudags. Rúða í húsinu var brotin
og áfengisflöskum var stolið. Talið
er að tveir menn hafi brotist inn og
var annar þeirra enn fyrir utan þegar
lögreglan kom á staðinn.
Útkall vegna hávaða
Lögregla var kvödd að heimahúsi
í höfuðborginni í fyrrinótt vegna
hávaða. Ungir tölvuleikjaspilarar
munu hafa lifað sig um of inn í leik
sem þeir voru að spila. Þeir tóku tiltali
lögreglu vel og lofuðu að taka tillit til
nágranna sinna.
LANDHELGISGÆSLAN
TF Líf aftur komin í gagnið
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF,
er aftur komin í gagnið eftir mikla
skoðun og hefur gæslan nú tvær
þyrlur til afnota -- en aðeins eina
þyrluáhöfn eins og stendur. Þá er
eftirlitsvélin Dash komin frá Kanada
þar sem hún var í viðgerð.
LANDBÚNAÐUR Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, segir að í stað þess að
fjölga kjúklingaframleiðendum hér á landi til
þess að auka samkeppni á markaðnum, eigi að
auka innflutning á erlendum kjúklingi.
„Það liggur fyrir að það er fákeppni í þess-
ari framleiðslu og slíkt er ekki til góðs fyrir
neytendur,“ segir Jóhannes. „Hins vegar á ég
eftir að sjá hvort það standist atvinnufrelsi
stjórnarskrárinnar að setja hömlur á atvinnu-
rekstur með þeim hætti að mælast til þess að
fjölga búum og minnka þau. Um það hef ég
efasemdir.“
Starfshópur á vegum sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðuneytisins gaf nýverið út skýrslu
um alifuglarækt á Íslandi. Niðurstöður skýrsl-
unnar voru meðal annars þær að með því að
minnka og fjölga búum, myndi skapast heil-
brigðari samkeppni á markaðnum og sporna
við alvarlegum salmonellusýkingum, sem koma
frekar upp í stærri búum.
Jóhannes segir smærri bú dýrari í rekstri
sem geri þau óhagstæðari neytendum.
Fákeppni ríki bæði á kjúklinga- og svínakjöts-
markaðnum og aukinn innflutningur sé ein leið
til þess að sporna við því vandamáli.
„Í stað þess að gera framleiðsluna óhag-
kvæmari með minni búum, ætti þá ekki
að viðra samkeppnina betur með auknum
innflutningi?“ spyr Jóhannes. - sv
Formaður Neytendasamtakanna segir smærri kjúklingabú óhagstæð fyrir neytendur:
Vill sjá aukinn innflutning á kjúklingi
KJÚKLINGAFRAMLEIÐSLA Formaður Neytendasam-
takanna telur að með fjölgun kjúklingabúa muni
markaðurinn verða óhagstæðari fyrir neytendur þar
sem smærri bú eru dýrari í rekstri. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Hafa fréttir af brotum fyrir-
tækja á samkeppnislögum áhrif
á neytendahegðun þína?
Já 67%
Nei 33%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Eiga borgaryfirvöld að taka
harðar á vanrækslu húseigenda
í miðborginni?
Segðu þína skoðun á visir.is
KJÖRKASSINN