Fréttablaðið - 10.05.2011, Síða 6
10. maí 2011 ÞRIÐJUDAGUR6
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
A
T
A
R
N
A
Siemens
þvottavélar,
þurrkarar og
uppþvottavélar
á tilboðsverði.
Hreint & klárt
í maí
HJÓL FYR
IR ALLA
FJÖLSKYL
DUNA
SKIPTIMA
RKAÐUR
MEÐ NOTU
Ð REIÐHJÓ
L
20% AFSL
ÁTTUR AF
AUKABÚN
AÐI Á HJÓ
L
SKOTLAND Alex Salmond, leiðtogi
Skoska þjóðarflokksins, segir að
sjálfstæði Skotlands sé nú óum-
flýjanlegt. Flokkur hans, sem
hefur á stefnuskrá sinni aðskiln-
að Skotlands frá Bretlandi, náði
meirihluta á skoska þinginu í
kosningum á fimmtudag.
„Mín skoðun er sú að sjálfstæði
sé meira eða minna óumflýjan-
leg örlög, en tímasetningin er
auð vitað algerlega undir skosku
þjóðinni komin,“ höfðu fjölmiðlar
eftir Salmond.
Spurningin snúist eingöngu um
það hvenær efnt verði til þjóðar-
atkvæðagreiðslu í Skotlandi um
málið. Jafnvel Annabel Goldie,
leiðtogi Íhaldsflokksins á Skot-
landi, sem fékk reyndar aðeins
fjórtán prósent atkvæða, hefur
lýst sig fylgjandi því að efnt
verði til þjóðaratkvæðagreiðslu.
Hún hefur að vísu boðað afsögn
sína vegna slaks gengis Íhalds-
flokksins.
David Cameron, forsætis-
ráðherra Bretlands, sér hins
vegar enga þörf fyrir þjóðar-
atkvæðagreiðslu í Skotlandi og
sagðist undrandi á því að Goldie
skyldi ljá máls á því.
Salmond telur þó enga þörf á
að hraða þjóðaratkvæðagreiðslu,
hugsanlega vegna þess að skoð-
anakannanir benda til þess að
einungis þriðjungur Skota myndi
greiða atkvæði með stofnun sjálf-
stæðs ríkis í Skotlandi.
Hann segist stefna á að halda
hana á seinni hluta kjörtímabils-
ins, sem nú er að hefjast.
Gott kosningagengi Þjóðar-
flokksins, sem fyrir utan þjóð-
ernismálið hefur að mestu sósí-
aldemókratískar áherslur, má að
nokkru rekja til óánægju kjós-
enda bæði með núverandi sam-
steypustjórn Íhaldsflokksins og
Frjálslyndra demókrata í Bret-
landi og með fyrrverandi Bret-
landsstjórn Verkamannaflokks-
ins undir forystu George Brown.
Á síðasta þingi lagði Skoski
þjóðarflokkurinn fram frum-
varp um að efnt yrði til þjóðar-
atkvæðagreiðslu um stofnun
sjálfstæðs ríkis, en það frum-
varp var fellt á skoska þinginu.
Nú er flokkurinn kominn í meiri-
hluta og getur samþykkt þetta
frumvarp án stuðnings annarra
flokka.
Í kosningunum á fimmtudag
var einnig kosið til heimastjórn-
arþings í Englandi, Wales og á
Norður-Írlandi. Þá höfnuðu kjós-
endur með yfirgnæfandi meiri-
hluta tillögu um nýtt kosninga-
kerfi til þings í Bretlandi.
gudsteinn@frettabladid.is
Skoska þingið vill
kjósa um sjálfstæði
Alex Salmond, leiðtogi Skoska þjóðarflokksins, reiknar með því að Skotar fái að
kjósa um það á seinni hluta kjörtímabilsins hvort Skotland verði sjálfstætt ríki.
Einungis þriðjungur Skota hefur hins vegar sýnt stofnun sjálfstæðs ríkis áhuga.
ÁNÆGÐUR LEIÐTOGI Alex Salmond ætlar ekki að hraða þjóðaratkvæðagreiðslu, þótt
hann hafi nú meirihluta til þess á þingi. NORDICPHOTOS/AFP
EVRÓPUMÁL Evrópudagurinn var haldinn hátíðlegur
í gær og hélt sendinefnd Evrópusambandsins (ESB)
meðal annars hóf í Þjóðmenningarhúsinu í tilefni
dagsins.
Evrópudagurinn er haldinn ár hvert til að minn-
ast þess að hinn 9. maí árið 1950 markaði Robert
Schuman, utanríkisráðherra Frakklands og einn af
frumkvöðlum Evrópusamstarfs, upphaf þess sam-
einingarferlis sem síðar gat af sér ESB eins og við
þekkjum það nú.
Í samtali við Fréttablaðið sagði Timo Summa, sendi-
herra ESB á Íslandi, að dagurinn væri táknmynd um
evrópskan samruna og samvinnu.
„Þjóðríkin hafa sinn dag, en þetta er dagur Evrópu
þegar við fögnum og hömpum evrópskri menningu.
Þannig undirstrikum við hinn evrópska anda.“
Summa bætti þvi við aðspurður að Evrópudagurinn og
athöfnin í gær tengdist ekki aðildarviðræðum Íslend-
inga við ESB.
Summa sagði að íslensk menning hefði einnig
verið í forgrunni á athöfninni þar sem barnakór hefði
sungið íslensk lög, meðal annars.
„En það er auðvitað líka hluti af evrópskri
menningu.“ - þj
Evrópudagurinn haldinn hátíðlegur í Þjóðmenningarhúsinu:
Undirstrika hinn evrópska anda
TIMO SUMMA Sendiherra ESB á Íslandi flutti tölu á Evrópudeg-
inum sem haldinn var hátíðlegur í Þjóðmenningarhúsinu í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SVÍÞJÓÐ Of lítill svefn getur leitt
til þess að líkaminn safni sérstak-
lega mikilli næringu. Eftir aðeins
eina vökunótt eykst framleiðsla
fituhormónsins ghrelin sem til
lengdar getur leitt til þess að menn
fitni. Sambandið milli svefnleysis
og fitu hefur verið staðfest í mörg-
um rannsóknum. Ekki hefur þó
verið mikið vitað um ástæðurnar.
Nú hefur teymi evrópskra
vísindamanna bent á aukningu
á fyrrnefndu fituhormóni sem
eykur matarlystina og dregur úr
brennslu. - ibs
Hormón eykur fólki matarlyst:
Fitna af völdum
of lítils svefns
LANDBÚNAÐUR Matís mun opna átt-
undu starfsstöð sína utan höfuð-
borgarsvæðisins á fimmtudaginn
á Flúðum. Um er að ræða svo-
kallaða matarsmiðju en smiðjur
sem þessar hefur Matís byggt
upp með góðum árangri á Höfn í
Hornafirði og á Egilsstöðum.
Matarsmiðjan er rekin í
samstarfi við sveitarfélögin
í uppsveitum Árnessýslu,
Atvinnuþróunarfélag Suðurlands,
Háskólafélag Suðurlands og
Háskóla Íslands. Líkt og í öðrum
matarsmiðjum Matís er ætlunin
að bjóða áhugasömum aðilum um
vinnslu á matvörum heima í hér-
aði upp á ráðgjöf og aðstöðu til að
þróa vörur í markaðshæft form.
Ljóst er að miklir þróunar-
og nýsköpunarmöguleikar eru
í þessari framleiðslu, til dæmis
hvað varðar nýtingu á afurðum
sem falla til í hefðbundinni græn-
metisframleiðslu og á grænmeti
sem ekki selst.
Auk þess að vinna að ýmsum
garðyrkjutengdum verkefnum
mun matarsmiðjan á Flúðum
aðstoða alla þá aðila sem vilja
þróa framleiðslu á matvælum til
beinnar sölu heima í héraði. - shá
Matís opnar áttundu starfsstöð sína utan höfuðborgarsvæðisins:
Ráðgjöf og aðstaða í Matarsmiðju
AFURÐIR FRÁ FLÚÐUM Staðsetningin
ræðst af því að 80 prósent grænmetis-
framleiðslu á Íslandi eru á Suðurlandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ert þú sátt(ur) við nýgerða
kjarasamninga?
Já 38,3%
Nei 61,7%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Telur þú að íslenska evróvisjón-
lagið komist áfram í kvöld?
Segðu skoðun þína á visir.is
Mín skoðun er sú að
sjálfstæði sé meira
eða minna óumflýjanleg
örlög, en tímasetningin er
auðvitað algerlega undir
skosku þjóðinni komin.
ALEX SALMOND
LEIÐTOGI SKOSKA ÞJÓÐARFLOKKSINS
KJÖRKASSINN