Fréttablaðið - 27.05.2011, Blaðsíða 18
27. maí 2011 FÖSTUDAGUR18
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
timamot@frettabladid.is
Haldið verður upp á tíu ára afmæli Offituteymisins á
Reykjalundi á morgun. Dagskráin fer fram í samkomu-
salnum á Reykjalundi milli klukkan 13 og 15 og lofar Guð-
laugur Birgisson, sjúkraþjálfari teymisins, góðri skemmtun.
„Við erum lífsglatt fólk og viljum hafa létt yfir mann-
skapnum. Það verður slegið á létta strengi, sungið og boðið
upp á uppistand. Þetta verður regluleg afmælisveisla nema
hvað veitingarnar verða í hollari kantinum, það verða engar
rjómatertur,“ segir hann hlæjandi. „Við ætlum að bjóða sam-
starfsfólki okkar og öllum þeim skjólstæðingum sem hafa
verið hjá okkur gegnum árin að gleðjast með okkur,“ bætir
hann við en eftir tíu ára feril eru nokkur hundruð manns
í hópnum.
Guðlaugur segir offituvandamál hafa aukist og tekið
verulegan kipp síðustu tvo áratugi. Fyrstu árin sem teym-
ið starfaði voru 25 til 30 manns á ári í meðferð en síðustu
ár hafa skjólstæðingar verið í kringum 100 á ári. Meðferðin
tekur allt að þrjú ár. Fyrst fer viðkomandi á göngudeild þar
sem gerð er krafa um að hann léttist um 5-7% af líkams-
þunga. Göngudeildartíminn getur varað frá þremur og upp
í níu mánuði. Eftir það tekur við frekari stuðningur.
„Meðferðin er langt frá allri kúra- eða átakshugsun,“
útskýrir Guðlaugur. „Þarna er verið að breyta um lífsstíl
bæði hvað snertir mataræði og hreyfingu og tekið á málinu
frá mörgum hliðum. Teymið skipa skjúkraþjálfari, heilsu-
þjálfi, sálfræðingur, félagsráðgjafi, læknir, tveir hjúkrunar-
fræðingar, iðjuþjálfi, ritari og næringarfræðingur, en í
þessu felst styrkleiki meðferðarinnar. Einstaklingar sem
eru í meðferð hjá okkur eru þeir sem eru hvað verst settir.
Fólk sem hefur líkamsþyngdarstuðul (BMI-stuðul) hærri
en 35.“
Guðlaugur segir langtímameðferð með þessu sniði ekki
standa víða til boða á Íslandi. Þörfin sé hins vegar brýn og
biðlistinn langur.
„Biðin eftir fyrsta viðtali á göngudeild getur tekið allt
að 15 mánuði. Það eru 300 manns á biðlista í dag og þannig
hefur það verið síðustu ár. Eftirspurnin er gríðarleg. Árið
2007 sýndi könnun sem gerð var á vegum Lýðheilsustöðvar
að yfir 50% kvenna á Íslandi eru yfir kjörþyngd og milli 60
og 70% karla.“
Guðlaugur segir þó starf Offituteymisins bæði gefandi og
skemmtilegt. Árangurinn sjáist fljótt.
„Það er ekki auðvelt að breyta áratugagömlum lífsstíl, og
getur tekið tíma. En þegar við sjáum hvernig einstaklingur
hefur í raun öðlast nýtt líf eftir meðferðina, gerir það starf-
ið skemmtilegt. Við vonumst til að sem flestir sjái sér fært
að koma á morgun og gleðjast með okkur á þessum tíma-
mótum.“ heida@frettabladid.is
OFFITUTEYMIÐ Á REYKJALUNDI: FAGN-
AR 10 ÁRA STARFSAFMÆLI Á MORGUN
Engar rjóma-
tertur í boðinu
KREFJANDI OG SKEMMTILEGT STARF Guðlaugur Birgisson, sjúkra-
þjálfari Offituteymisins á Reykjalundi, vonast til að sjá sem flesta
skjólstæðinga teymisins frá upphafi í afmælisfagnaði á Reykjalundi á
morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KARL STEINAR GUÐNASON, fyrrverandi forstjóri, er 72 ára í dag.
„Það hefur mjög skort á vitræna umræðu um almannatryggingar.“
Sonur okkar og bróðir,
Gísli Birgir Guðsteinsson
fæddur 16. desember 1987, er látinn.
Bálför hans hefur farið fram.
Erla Björk Ólafsdóttir
Guðsteinn Einarsson
Einar Guðsteinsson
Sendum innilegar þakkir til allra þeirra
sem sýndu okkur samúð og hlýju við
andlát og útför
Benedikts Benediktssonar
kennara frá Stóra-Múla.
F.h. vina og annarra vandamanna
systkini hins látna,
Kristján Benediktsson
Anna María Benediktsdóttir
Ingiberg Benediktsson.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Kristján Kristjánsson
lögregluvarðstjóri
frá Höfða, Njarðvík,
lést af slysförum 21. maí síðastliðinn.
Þóra Ágústa Harðardóttir
Reynir Kristjánsson
Baldvin Kristjánsson
Hrafnhildur Kristjánsdóttir
tengdabörn, barnabörn, barnabarnabarn,
vinir og vandamenn.
Okkar ástkæra
Soffía S.Ó. Axelsdóttir
(Didda)
fyrrverandi bankamaður,
lést á Hjartadeild Landspítalans 17. maí síðastliðinn.
Hún verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
föstudaginn 27. maí klukkan 13.00.
Pétur Axel Pétursson Þuríður Elísabet Pétursdóttir
Pétur Jökull Pétursson Guðmundur Ketill Guðfinnsson
Stefán Björn Pétursson Védís Guðjónsdóttir
María Pétursdóttir Auður Alfífa Ketilsdóttir
Ásta Soffía Pétursdóttir
og barnabarnabörn.
Kærar þakkir til allra þeirra er sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför elskulegs eiginmanns míns, sonar
míns, föður okkar, tengdaföður, bróður
og afa,
Ragnars J. Ragnarssonar
Sérstakar þakkir færum við sr. Gunnlaugi Garðarssyni
fyrir ómetanlegan stuðning, Ólafi Nilssyni fyrir
einstaka velvild, Sigurði Björnssyni krabbameinslækni
fyrir alúð og hvatningu, Karitas, hjúkrunar- og
ráðgjafaþjónustu fyrir að vera ávallt til staðar og
krabbameinslækningadeild Landspítalans fyrir góða
umönnun.
Steinunn Magnúsdóttir
Stasía Jóhannesson
Ragnhildur Ragnarsdóttir
Birgir Ragnarsson Hlíf Þorgeirsdóttir
Eyþór Ragnarsson Torfhildur Sigurðardóttir
Dennis D. Jóhannesson Hjördís Sigurgísladóttir
Linda Ragnarsd. Jóhannesson
Jónbjörn, Ragnar, Þórey, Irja, Rakel, Daníel Snær
og Dagur Steinn.
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi
og langafi
Óskar Ingibersson
skipstjóri og útgerðarmaður
Kirkjuvegi 11, 230 Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fimmtudaginn
26. maí. Útför hans fer fram frá Keflavíkurkirkju
miðvikudaginn 1. júní kl. 14.00.
Kristín Óskarsdóttir Mark McGuinness
Karl Óskar Óskarsson Valborg Bjarnadóttir
Jóhanna Elín Óskarsdóttir
Ingiber Óskarsson Natalya Gryshanina
Ásdís María Óskarsdóttir Þorgrímur St. Árnason
Hafþór Óskarsson Heiða Gunnarsdóttir
Albert Óskarsson Ragnheiður G. Ragnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma
Guðrún Pétursdóttir
Hrafnistu, Hafnarfirði,
lést þann 20. maí síðastliðinn. Útför hennar verður gerð
frá Fossvogskirkju föstudaginn 3. júní klukkan 13.
Jón Guðnason Kolbrún Hámundardóttir
Ásdís Guðnadóttir
Guðný Sigrún Guðnadóttir
Guðrún Petra Guðnadóttir Þorsteinn Arthursson
Guðni Guðnason Rósa Sólrún Jónsdóttir
ömmu- og langömmubörn.
72