Fréttablaðið - 02.06.2011, Side 4

Fréttablaðið - 02.06.2011, Side 4
2. júní 2011 FIMMTUDAGUR4 LÖGREGLUMÁL Öryggi bæjarbúa í Vestmannaeyjum og lögreglu- manna sem þar starfa er stefnt í hættu með áformum um að fækka starfandi lögreglumönnum í eyj- unum, að því er segir í ályktun félagsfundar Lögreglufélags Vest- mannaeyja. Í dag starfa ellefu lögreglumenn í Vestmannaeyjum, þar af níu sem ganga vaktir. Fyrirhugað er að fækka lögreglumönnum í átta, þar af sex sem ganga vaktir. „Það sér auðvitað hver maður að með þessum skipulagsbreyt- ingum mun lögreglan ekki geta sinnt því hlutverki sem henni er ætlað. Ljóst er að öryggi bæjar- búa er sett í hættu sem og öryggi þeirra lögreglumanna sem eiga að starfa eftir hinu nýja fyrirkomu- lagi,“ segir í ályktuninni. Þar er bent á að lögreglan í Vest- mannaeyjum verði að vera sjálfri sér nóg til að bregðast við verk- efnum sem upp geti komið, enda ekki hægt að komast þangað á skömmum tíma. Nái breyting- arnar fram að ganga verður lög- reglustöðin lokuð hluta nætur, og aðeins einn lögreglumaður á vakt á dagvöktum um helgar. - bj Lögreglufélag Vestmannaeyja mótmælir boðaðri fækkun lögreglumanna: Öryggi bæjarbúa stefnt í hættu HERJÓLFUR Búast má við fjölgun ferða- manna til Vestmannaeyja vegna Land- eyjahafnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN IÐNAÐUR Stefnt er að því hjá nýsköp- unarfyrirtækinu Carbon Recycl- ing International (CRI) að fram- leiða vistvænt eldsneyti úr metanóli fyrir fjölorkubíla og draga úr bens- ínnotkun hér á næstu tveimur árum. Ekki eru líkur á að verðið á metanóllítranum verði mikið lægra en á bensíni. „Menn eru að reyna að finna aðra orkugjafa en bensín því það verður sífellt flóknara mál að sjá heimin- um fyrir því,“ segir Benedikt Stef- ánsson, framkvæmdastjóri við- skiptaþróunar hjá CRI. Vinna er nú í fullum gangi við byggingu fyrstu verksmiðju fyrir- tækisins við Svartsengi á Reykja- nesi. Gert er ráð fyrir að prófanir á verksmiðjunni geti hafist í lok mán- aðar og þrjátíu manns muni vinna hjá fyrirtækinu, mest tæknimennt- að fólk. Áætlað er að verksmiðjan geti framleitt fimm milljón lítra af endurnýjanlegu metanóli á ári. Um fimmtíu manns vinna við flutninga á tækjum og búnaði úr skipi sem kom frá Bandaríkjunum og lagði við bryggju í Helguvíkur- höfn á þriðjudagskvöld. Flutningar á búnaðinum hófust í gær. Heildar- þungi hans er tvö hundruð tonn. Stærsta einingin vegur 42 tonn og er 23 metra há, sem er álíka hæð og á átta hæða blokk. CRI hefur þróað aðferð til að framleiða vistvænt metanól úr kol- tvísýringi sem fenginn er úr jarð- gufunum úr túrbínum orkuvers- ins í Svartsengi. Metanólið verður blandað við bensín og má setja það á venjulegar bílvélar. Hugsanlegt er að blandan komi á markað í haust. Í fyrstu er gert ráð fyrir að aðeins þrjú prósent af metanóli fari saman við 97 prósent af bensíni. „Þetta er fyrsta skrefið í þá átt að framleiða miklu meira af met- anóli,“ segir Benedikt. Hann bætir við að í Bandaríkjunum og Evrópu sé áhersla lögð á framleiðslu fjölorkubíla, sem geti gengið fyrir blöndu alkóhóls og bensíns í nánast hvaða hlutföllum sem er. Því megi auka hlutfall metanóls í bensín- lítranum, jafnvel allt upp undir 85 prósent eins og gert sé með etanól í Svíþjóð. Nokkur þúsund slíkir bílar eru þegar á götunum hér. „Við erum að velta fyrir okkur að þróa sambærilega blöndu úr metanóli,“ segir hann. Kaupa þarf sérstakan fjölorkubíl þegar hlutfall metanólsins eykst. Þá þarf CRI að vinna með olíufélögunum að rann- sóknum og þróun á því og stærri verksmiðju. Viðræður standa þegar yfir við Landsvirkjun um byggingu stærri verksmiðju við Kröflu. jonab@frettabladid.is Stefnt að því að ýta bensíni til hliðar Framkvæmdir við verksmiðju Carbon Recycling eru á lokastigi. Búnaður var fluttur í hana í gær. Neytendur ættu að geta keypt bensín blandað vistvænu eldsneyti í haust. Stefnt er að því að auka hlut metanóleldsneytis eftir tvö ár. STÓR TÆKI FLUTT INN Í LAND Flutningaskipið BBC France lagði úr höfn með tvö hundruð tonn af búnaði fyrir metanólverksmiðju CRI um miðjan maí. Það lagðist að bryggju í fyrrakvöld. Þyngstu einingarnar vega 42 tonn. Reiknað er með því að fara þrjár ferðir með búnaðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM MEXÍKÓ, AP Tíu lögreglumenn, þar á meðal lögreglustjóri, eru í hópi 25 manna sem hafa verið hand- teknir í átaki gegn eiturlyfjaklík- unni Zetunum undanfarið. Yfirvöld í fylkinu Hidalgo í miðhluta landsins handtóku nokkra lágt setta meðlimi Zet- anna, sem bentu þeim á lögreglu- mennina. Þeir höfðu veitt glæpa- mönnum vernd gegn greiðslu. Þúsundir manna hafa látið lífið í harðvítugri baráttu gegn eitur- lyfjaklíkum um allt land síðustu misseri. - þj Eiturlyfjastríðið í Mexíkó: Spilltar löggur handteknar ORKUMÁL Alls voru veittar 27,4 milljónir króna í styrki úr Orku- sjóði í gær, en þá voru fimmtán rannsóknar- og kynningarverkefni styrkt. Alls bárust 52 umsóknir um samtals 133 milljónir króna. Hæsta styrkinn hlaut verkefni um tilraunahverfil fyrir sjávar- fallavirkjanir, alls 4,2 milljón- ir króna. Þá voru veittar fjórar milljónir króna til verkefnis um að skapa eldsneyti úr lífmassa með háhitagösun og 3,6 milljónir króna til eldsneytisframleiðslu úr örverum. - kóp Styrkveiting úr Orkusjóði: Innlendir orku- gjafar styrktir VÍSINDI Kólnandi veðurfar á Grænlandi gæti hafa orðið til þess að byggðir norrænna manna lögðust af, samkvæmt niðurstöðum vísindamanna. Víkingar námu land á Græn- landi í lok 10. aldar, en byggð þeirra lagðist af á 15. öld. Með rannsóknum á vötnum sunnar- lega á Grænlandi hefur nú verið leitt í ljós að meðalhiti þar lækk- aði um fjórar gráður á áttatíu ára tímabili við upphaf 15. aldar. Fræðimenn sem unnið hafa að rannsóknum á hitastiginu benda þó á að fleira spili inn í brott- hvarf norrænu nýbúanna, svo sem átök þeirra við Inúíta og hversu afskekkt byggðin var. - bj Víkingar flýðu kalt Grænland: Snarkólnaði á áttatíu árum SAMGÖNGUR Vegagerðin verður ekki við beiðni Ísafjarðarbæjar um aukna götulýsingu á Suðureyri og Flateyri. Á bb.is segir að Vegagerðin hafi svarað því til með bréfi að ekki sé hægt að verða við beiðninni sökum niðurskurðar. „Í umræðunni er að stytta verulega lýsingartíma eða jafn- vel að hætta alveg að lýsa ein- staka vegi. Eðlilegast er að stefna að því að vegir séu ekki notaðir sem gönguleiðir enda getur af því stafað hætta,“ segir í bréfinu Vegagerðarinnar. - þj Fjárskortur Vegagerðarinnar: Ekki fjármagn í götulýsingar KULDI Meðalhiti á Grænlandi lækkaði verulega um svipað leyti og byggð norrænna manna lagðist í eyði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FRÁ SUÐUREYRI Vegagerðin segist ekki hafa fjármagn til að auka götulýsingu á Suðureyri og Flateyri. Menn eru að reyna að finna aðra orku- gjafa en bensín því það verður sífellt flóknara mál að sjá heiminum fyrir því. BENEDIKT STEFÁNSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI VIÐSKIPTAÞRÓUNAR Í Fréttablaðinu á laugardag var rang- lega haft eftir Friðriki J. Arngrímssyni, framkvæmdastjóra LÍÚ, að munurinn á því verði sem miðað er við þegar sjómönnum eru greidd laun, í þeim tilvikum þar sem fiskur kemur frá eigin útgerð, og verði á fiskmarkaði skýrðist af sölukostnaði. Friðrik sagði að sölukostnaður væri dreginn frá þegar þessi munur væri reiknaður, ekki að sölukostnaður skýrði muninn. ÁRÉTTING GENGIÐ 01.06.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 220,7478 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 114,47 115,01 188,02 188,94 164,64 165,56 22,079 22,209 21,279 21,405 18,489 18,597 1,4077 1,4159 183,02 184,12 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is Gleraugnaverslunin þínPIPA R \ TB W A • SÍ A • 11 15 9 0 SÓLGLER með styrkleika fylgja kaupum á gleraugum í júní MJÓDDINNI Álfabakka 14 Opið: virka daga 9–18 og laugardaga 11–15 FIRÐI Fjarðargötu 13–15 Opið: virka daga 10–18 og laugardaga 11–16 AKUREYRI Hafnarstræti 95 Opið: virka daga 9–17.30 SELFOSS Austurvegi 4 Opið: virka daga 10–18 VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 22° 23° 23° 21° 23° 20° 19° 19° 21° 22° 19° 25° 32° 22° 20° 16° 20° Á MORGUN 5-13 m/s. LAUGARDAGUR 8-13 m/s, hvassara á annesjum NV-til. 7 7 4 10 10 10 12 6 8 5 5 4 6 7 8 6 5 2 7 3 4 5 12 9 8 8 7 12 13 10 9 8 GÓÐVIÐRI víðast hvar á landinu í dag þar sem vindur verður tiltölulega hægur. Einnig verður að teljast nokkuð milt í veðri miðað við fyrri vikur. Það bætir í vindinn á morg- un og áfram eru líkur á smáskúrum vestan til á landinu næstu daga. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.