Fréttablaðið - 02.06.2011, Síða 19

Fréttablaðið - 02.06.2011, Síða 19
FIMMTUDAGUR 2. júní 2011 19 Þegar ég flutti að heiman flutti ég í íbúð með annarri konu. Okkur dreymdi um að við mundum búa saman þangað til ég færi á elliheimili. En hún flutti og fór í sambýli. Svo fékk ég aðra konu til að búa með mér en það gekk ekki upp. Nú bý ég ein í íbúð á elleftu hæð með fallegu útsýni. Á fimmtudögum fæ ég aðstoð með matarinnkaup. Og um kvöldið kemur maður sem aðstoðar mig við matargerðina. Mér finnst að við eigum að fá að ráða hvern við fáum inn á heimili okkar. Það er út af því að þeir sem sinna okkur senda bara fólk og okkur líkar kannski ekki við það. Áður fyrr þá vann ég á vernd- uðum vinnustað bæði á Íslandi og í Danmörku. Í Danmörku var meira blandað á vinnustaðnum heldur en hér á Íslandi. Ég fór út árið 1977 og var þar í fimmtán ár. Ég gæti hugsað mér að búa með annarri mann- eskju sem mér líkar við og mætti hafa val um að búa með. Faðir minn var framsýnn maður. Löngu áður en farið var að tala um kjarnaíbúðir sá hann fyrir sér að framtíðin fyrir mig væri að búa í íbúð og fá notenda væna aðstoð. Ég er búin að sækja um kjarnaíbúð. Þá er fólk til staðar ef á þarf að halda. Frændur okkar í Færeyjum búast nú til að setja sér nýja stjórnarskrá. Það hefðu þeir kannski helzt átt að gera strax eftir hrunið þar 1989-93, miklu dýpra hrun en varð hér heima 2008. Hrun Færeyja varð til þess, að landsframleiðslan skrapp saman um þriðjung líkt og gerðist í Sovétríkjunum sál- ugu um svipað leyti. Fimmti hver Færeyingur flúði land, en helm- ingur hinna brottfluttu skilaði sér heim aftur nokkru síðar. Hér heima hefur landsframleiðslan til samanburðar ekki dregizt saman nema um tíu prósent frá hruni, sem er ærið samt, og fólksfjöld- inn minnkaði úr 320.000 fyrir hrun í 317.000, en hann er nú 318.500, segir Hagstofan. Hrun Færeyja varð frændum okkar þar að ýmsu leyti til blessunar þrátt fyrir erfiðleikana, sem á þeim dundu. Þeir þiggja nú mun minni fjárhagsaðstoð frá Dönum en áður, því að hrunið leiddi þeim fyrir sjónir spillinguna og ábyrgðarleysið, sem leiddi meðal annars af ríflegum fjárveiting- um Dana til Færeyja fyrir hrun. Styrkari stjórnsýsla Færeyingar brugðust við hruninu með því að skerpa myndarlega á stjórnsýslu landsins eins og Klemens Ólafur Þrastarson blaðamaður lýsti í fjórum löngum fréttaskýringum í Fréttablaðinu í október 2009. Til dæmis var reglum um sambandið milli landsstjórnarinnar og þingsins í Þórshöfn breytt þannig, að þing- menn verða nú að hætta á þingi, verði þeir ráðherrar. Tillaga um sömu tilhögun hér heima liggur nú fyrir Stjórnlagaráði. Kaj Leo Johannesen, lögmaður Færeyja, sagði við Fréttablaðið (15. októ- ber 2009, bls. 18): „Við styrktum stjórnsýsluna. Hver ráðherra var látinn bera ábyrgð á sínum gjörð- um. Áður var ábyrgðinni dreift á ríkisstjórnina í heild. Síðan 1995 hafa 20 til 25 ráðherrar þurft að segja af sér vegna þessa. Þetta er mjög mikilvægt því þetta er lítið land.“ Af þessu má ráða, að Færeyingar tóku alvarlega nauð- synina á að draga úr líkum þess, að efnahagur landsins hryndi öðru sinni af völdum bresta í stjórnsýslunni. Fýsileg ákvæði Nú hyggjast Færeyingar ganga skrefi lengra og setja sér nýja stjórnarskrá. Þar er að finna mörg fýsileg ákvæði. Um eignar- rétt segir svo í færeysku stjórn- arskrárdrögunum: „Allar ognir og øll rættindi eru vard fyri ágangi.“ Þetta hlýtur að eiga að duga meðal annars til að girða fyrir, að búfjáreigendur beiti búpeningi sínum á annarra lönd, enda eru Færeyjar iðjagrænar. Tillögum þeim, sem liggja nú fyrir stjórnlagaráði, er með líku lagi ætlað að verja land og aðrar eignir fyrir ágangi, en umhverf- isákvæðið hefst á þessum orðum: „Náttúra Íslands er friðhelg. Hverjum og einum ber að virða hana og vernda. Nýtingu sameig- inlegra auðlinda þjóðarinnar skal haga svo að þær skerðist ekki til langframa og réttur komandi kynslóða sé virtur.“ Í færeyska kaflanum um auð- lindir og umhverfi („Tilfeingi og umhvørvi“) segir svo: „(1) Myndugleikarnir varða um til- feingi landsins. (2) Tá vunnið verður úr landsins tilfeingi, skal landið antin krevja viðurlag ella tryggja øllum vinnurætt. (3) Margfeldið á landi og á havleið- um landsins, sum privat ikki eiga, er tilfeingi og ogn fólks- ins. (4) Landið tryggjar, at bæði almenna og privata tilfeingi landsins verður umsitið á sjálv- berandi hátt við umsorgan fyri umhvørvinum.“ Þetta þýðir, að þjóðin á auðlindirnar (grein 3) og tekur gjald fyrir afnot þeirra eða tryggir öllum jafnan aðgang að þeim (grein 2). Umgengni við auðlindir og umhverfi verð- ur að vera sjálfbær (grein 4). Þessi texti er í góðu samræmi við tillögur að sams konar auð- lindaákvæðum, sem liggja fyrir Stjórnlagaráði, en þar segir í upphafi: „Náttúruauðlind- ir Íslands eru sameiginleg og ævarandi eign þjóðarinnar. Þær ber að nýta á sjálfbæran hátt til hagsbóta öllum landsmönnum.“ Hvers konar land? Félagslegt réttarríki Ólíkt öðrum norrænum þjóðum hyggjast Færeyingar hefja stjórnarskrá sína á formála, eins konar viljayfirlýsingu í fyrstu persónu fleirtölu: „Vit, Føroya fólk, samtykkja hesa stjórnarskipan. Hon er grundvøllur undir stýri okkara, ið skal tryggja frælsi, trygd og trivnað. Vit bygdu landið í fornari tíð og skipaðu okkum við tingi, lógum, rættindum og skyldum. Vit hava hildið ting til henda dag og skipað okkum eftir tørvi okkara um landið alt. Føroyar hava í øldir samstarvað við onnur lond og ríki. Einki kann tó køva sjálvræði landsins ella sjálvsavgerðarrætt okkara. Landsins egnu lógir eru einans tær, sum gjørdar eru á rættan hátt í landinum sjálvum eftir fólksins vilja. Føroyar verða skipaðar eftir nútíðar tørvi og eftir siðaarvi okkara við fólk- aræði, løgræði, rættindum og skyldum. Allar lógir og siðvenj- ur skulu virða hesa stjórnarskip- an. Eingin lóg ella siðvenja má tí vera hildin at hava gildi, bara tí hon er eldri enn henda skipan ella hevur virkað í langa tíð.“ Í Stjórnlagaráði er rætt um að hafa sama háttinn á með því að hefja nýja stjórnarskrá á skýrri viljayfirlýsingu um, hvers konar land við viljum byggja. Af þessu má ráða, að Færeyingar tóku alvarlega nauðsynina á að draga úr líkum þess, að efnahagur landsins hryndi öðru sinni af völdum bresta í stjórnsýslunni. Í DAG Þorvaldur Gylfason prófessor Færeyingar setja sér stjórnarskrá Að flytja að heiman Réttindi fatlaðra Ingibjörg Rakel Bragadóttir sendiherra samnings Sameinuðu þjóð anna um réttindi fatlaðs fólks ÆTLAR VELFERÐAR- STJÓRNIN AÐ RÁÐAST Á GAMLA FÓLKIÐ OG ÖRYRKJANA? Alþýðusamband Íslands skorar á þing- menn Samfylkingar og VG að hafna áformum ríkisstjórnarinnar um að skerða áunnin lífeyrisréttindi félags- manna Alþýðusambandsins með sér- stakri skattlagningu á hreina eign lífeyrissjóðanna til greiðslu lífeyris. Fyrir liggur að réttindi þeirra opinberu starfsmanna, sem aðild eiga að LSR eða lífeyrissjóðum bæjarstarfsmanna, eru tryggð af ríki og sveitarfélögum og því lendir þessi skattlagning ein- hliða á lífeyrisþegum á almenna markaðinum. Það skýtur skökku við að skattleggja einungis þá elli- og örorkulífeyrisþega sem minnst réttindi hafa. Þetta eru einkennileg vinnu- brögð hjá ríkisstjórn sem kennir sig við velferð og hefur nýverið gefið fyrirheit um að jafna réttindi lífeyrisþega á almenna vinnumarkaðinum til sam- ræmis við aðra hópa. E N N E M M / S ÍA / N M N M 4 7 0 11

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.