Fréttablaðið - 09.06.2011, Blaðsíða 54
9. júní 2011 FIMMTUDAGUR38
bio@frettabladid.is
Undirbúningur brúð-
kaups getur verið skraut-
legur, en því fær Annie
Walker að kynnast þegar
hún tekur að sér hlutverk
aðalbrúðarmeyjar í brúð-
kaupi æskuvinkonu sinnar.
Með vinsælustu grínleik-
konu Bandaríkjanna í farar-
broddi, Kristen Wiig, fær
myndin Bridesmaids góða
dóma gagnrýnenda.
Annie Walker er einhleypur köku-
bakari sem vinnur fyrir sér í
skartgripabúð. Þegar æskuvin-
konan Lillian trúlofast og biður
Annie að vera aðalbrúðarmær
getur hún ekki neitað. Annie fær
samt hálfgert taugaáfall þegar
hún gerir sér grein fyrir ábyrgð-
inni sem fylgir hlutverkinu, enda
er tímafrekt að skipuleggja gæsap-
artí, hjálpa til við að velja kjól og
vera einstakur stuðningsmaður
verðandi brúðar.
Með nokkrum litríkum vinkon-
um og vandamönnum Lillian hefst
Annie handa við skipulagningu
samhliða því að takast á við erfið-
leika í einkalífinu, en það hrindir
af stað fyndinni atburðarás.
Aðalleikkona myndarinnar,
Kristen Wiig, hefur verið ein af
færustu grínleikkonun vestan-
hafs, en hún er hluti af Saturday
Night Live leikhópnum og lék
meðal annars í Flight of the Conch-
ords. Wiig fær mikið lof fyrir leik
sinn í myndinni og er kölluð gyðja
grínsins í dómi Rolling Stone. Í
öðrum helstu hlutverkum eru þær
Maya Rudolph, Rose Byrne, Mel-
issa McCarthy, Wendi McLendon-
Covey og Ellie Kempe. Leikstjóri
Bridesmaids er Paul Feig, sem er
með myndir á borð við Knocked
Up og sjónvarpsþættina Arrested
Development á ferilskránni.
Gagnrýnendur lofa mynd-
ina í hástert. Miðlar á borð við
Entertain ment Weekly og Wall
Street Journal gefa henni til að
mynda fullt hús stiga, en meðal-
einkunnin er 74 stig af 100 mögu-
legum. alfrun@frettabladid.is
Samkvæmt kvikmyndatímaritinu Empire er
nýjasta kjaftasagan í Hollywood sú að Paul
Walker eigi að leika aðalhlutverkið í fimmtu Tor-
tímandamyndinni. Upphaflega stóð til að Arnold
Schwarzenegger sneri aftur á hvíta tjaldið í
þessari mynd en horfið var frá þeirri
hugmynd.
Kjaftasagan um Walker á sér
eðlilegar skýringar því leikstjóri
Fast & Furious, Justin Lin, hefur
samþykkt að gera myndina og það
kemur því engum á óvart að Walker
skuli vera orðaður við hlutverkið.
Ljóst er að bandaríski leikstjórinn Quentin Tarantino
hyggst ekki svíkja aðdáendur sína með nýjustu mynd
sinni. Hann hefur nú leitað til Leonardo DiCaprio í
þeirri von að leikarinn taki að sér aðalhlutverkið í
nýjustu kvikmynd hans, Django Unchained.
Kvikmyndin segir frá heillandi en ofbeldishneigð-
um eiganda skemmtistaðarins Candyland, Calvin
Candie. Þar berast menn á banaspjótum og kvenkyns
þrælar eru notaðir sem kynlífstól. Tarantino vill
að DiCaprio leiki þennan mann. Leikstjórinn hefur
þegar fengið Christoph Waltz, sem var magnaður í
Inglourious Basterds, til að leika þýskan tannlækni
sem hefur snúið sér að hausaveiðum. Hins vegar er
Will Smith hættur við að leika þrælinn Django sam-
kvæmt síðustu fregnum. Tarantino hefur þegar látið
framleiðslufyrirtæki sitt hafa handritið en ekki er
ljóst hvenær tökur hefjast.
DiCaprio hefur hins vegar úr nægum verkefnum að
moða; hann leikur J. Edgar Hoover í vænt-
anlegri kvikmynd Clints Eastwood og gæti
leikið aðalhlutverkið á móti Carey Mull igan
í The Great Gatsby sem ástralski leikstjór-
inn Baz Luhrmann hyggst gera. Þá má ekki
gleyma því að DiCaprio er nýhættur með
ísraelsku fyrirsætunni Bar Refaeli og
að hann hefur sést með Gossip Girl-
stjörnuna Blake Lively upp á arm-
inn að undanförnu.
Tarantino leitar til Leonardo DiCaprio
MAGNAÐ TVÍEYKI Leonardo DiCaprio
og Quentin Tarantino yrðu magnað
tvíeyki. Leikstjórinn vill fá leikarann
til að leika ofbeldishneigðan
skemmtistaðareiganda í kvikmynd
sinni Django Unchained.
Witherspoon framleiðir mynd
Al Pacino er í viðræðum við handritshöfundinn og
leikstjórann Dan Fogelman um að leika í kvikmynd
hans Imagine. Myndin segir frá skallarokkara sem
fær bréf frá John Lennon, fjörutíu árum eftir að það
var skrifað, og ákveður að breyta lífi sínu með því
hafa uppi á syni sínum. Upphaflega stóð til að Steve
Carell léki í myndinni en hann forfallaðist sökum anna
á öðrum vígstöðvum.
Fogelman er einn heitasti handritshöfundur
Hollywood um þessar mundir. Hann skrif-
aði handritið að teiknimyndunum Cars og
Tangled, sem báðar nutu mikilla vinsælda,
og er einnig maðurinn á bak við handritið að
gamanmyndinni My Mother‘s Curse, sem
þau Seth Rogen og Barbra Streisand munu
leika í á næstunni. Þá er hann með nokkur
járn í eldinum, þar á meðal mynd með
Tom Cruise.
Pacino í Lennon-mynd
FJÖLHÆF Reese Witherspoon hyggst framleiða og leika
aðalhlutverkið í kvikmyndinni Who Invited Her?
Óskarsverðlaunaleikkonan Reese Witherspoon
hyggst framleiða og leika aðalhlutverkið í kvik-
myndinni Who Invited Her? Kvikmyndaverin Sony,
Paramount og Dreamworks börðust hatrammlega um
myndina en að endingu hreppti síðastnefnda fyrir-
tækið hnossið.
Who Invited Her? fjallar um konu sem hyggst troða
sér í steggjapartí góðs vinar síns. Witherspoon, sem
er ein launahæsta leikkona Hollywood, leikur næst
í gamanmyndinni This Means War, sem fjallar um
tvo CIA-leyniþjónustumennn sem verða ástfangnir
af sömu konunni. Meðal mótleikara hennar í þeirri
mynd eru Chris Pine og Tom Hardy.
Witherspoon, sem síðast lék í Water for Elephants,
gaf sér síðan smá tíma til að taka á móti Góðgerðar-
verðlaunum MTV sem hún fékk fyrir að skemmta
kvikmyndaáhorfendum með frammistöðu sinni á
hvíta tjaldinu undanfarin ár. Witherspoon bætist þar
í hóp leikara á borð við Tom Cruise, Söndru Bullock
og Jim Carrey.
BRÚÐARMÆR Í KRÍSU
LITRÍKIR PERSÓNULEIKAR Annie Walker, sem Kristen Wiig leikur, tekst á við það að vera aðalbrúðarmærin með hjálp litríkra vin-
kvenna brúðarinnar, með skemmtilegum afleiðingum.
Walker í T:5
Sminkan Heba Þórisdóttir er hluti af teyminu á
bak við myndina, en samkvæmt IMDB-vefnum er
hún yfirmaður sminkudeildar Bridesmaids. Heba
er komin með góða ferilskrá í Hollywood, en
hún hefur verið með penslana á lofti í kvikmynd-
unum Inglourious Basterds, Kill Bill 1 og 2 og The
Prestige.
Leikkonan Scarlett Johansson hefur tekið ástfóstri
við sminkuna og hefur Heba séð alfarið um útlit
hennar í myndunum He’s Just Not That Into You, The
Spirit, The Nanny Diaries og The Black Dahlia.
Heba Þórisdóttir farðar í þremur myndum sem komu
eða koma út á þessu ári, en auk Bridesmaids sá hún
um útlit Óskarverðlaunahafans Cate Blanchett í
myndinni Hanna sem frumsýnd var í vor. Hún er
einnig titluð yfirmaður förðunardeildar myndar-
innar We Bought a Zoo, þar sem Scarlett Johans-
son og Matt Damon eru í aðalhlutverkum.
ÍSLENSK SMINKA Á SETTI
> HÆTTUR Í CSI
Laurence Fishburne mun yfirgefa
CSI-sjónvarpsþáttaröðina eftir að
hafa hlaupið í skarðið fyrir
William Petersen síðastliðin
tvö ár. Áhorfið hefur dalað
á þeim tíma og því var
ákveðið að endurnýja ekki
samninginn við Fishburne.
PACINO Er í viðræðum um að leika
aldraðan rokkara sem fær gamalt bréf
frá John Lennon í hendurnar.