Fréttablaðið - 10.06.2011, Side 4

Fréttablaðið - 10.06.2011, Side 4
10. júní 2011 FÖSTUDAGUR4 GENGIÐ 09.06.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 220,7145 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 113,63 114,17 186,53 187,43 165,82 166,74 22,231 22,361 21,033 21,157 18,304 18,412 1,4184 1,4266 182,93 184,03 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is SÝRLAND Fjöldi fólks hefur flúið frá Sýrlandi til Tyrklands frá því á miðvikudagskvöld. Óttast er að árás á borgina Jisr al-Shughour sé yfirvofandi. Stjórnvöld segja að þar hafi vopnaðir hópar uppreisnar- manna drepið yfir 120 öryggis- sveitarmenn. Sjónarvottar hafa sagt að tugir þúsunda hermanna haldi sig nú í nálægum bæjum í héraðinu Idlib og að fjöldi skriðdreka hafi nánast umkringt Jisr al-Shughour. Tyrknesk yfirvöld segja að yfir 2.500 manns hafi flúið til landsins frá Sýrlandi. Settar hafa verið upp flótta- mannabúðir fyrir fimm þúsund manns í bænum Yayladagi og áætl- að er að reisa aðrar í nálægum bæ. Forsætisráðherra Tyrklands, Recep Tayyip Erdogan, segir að flóttafólki verði áfram hleypt inn í landið. Hann hvatti þó sýrlensk stjórnvöld til þess að gera þær breytingar sem mótmælendur vilji, til þess að koma á ró. Embættismenn í Sýrlandi hafa hins vegar neitað því að um fólks- flótta úr landinu sé að ræða, heldur séu þetta Sýrlendingar að heimsækja ættingja sína sem eigi heima hinum megin við landa- mærin. Navi Pillay, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, sagði í gær að yfirvöld í Sýrlandi væru að reyna að berja almenning til hlýðni. Mót- mæli í landinu hafa nú staðið í ellefu vikur. Pillay segir að 1.100 karlar, konur og börn hafi látist síðan mótmælin hófust. Hún kvað morð á þrettán ára gömlum dreng, sem virtist hafa verið pyntaður og svo skotinn, sýna að stefna stjórn- valda við að bæla niður mótmælin með öllum ráðum væri siðlaus og ólögleg. - þeb Þúsundir hafa flúið frá Sýrlandi yfir til Tyrklands af ótta við stigvaxandi átök í landinu: Siðlausar og ólöglegar aðgerðir stjórnvalda ERDOGAN Forsætisráðherra Tyrklands segir að tekið verði við öllu flóttafólki frá Sýrlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SKIPULAGSMÁL Allt að 300 nýjar stúdentaíbúðir munu brátt rísa á háskólasvæði Háskóla Íslands. Í ályktun frá Stúdentaráði Háskóla Íslands (SHÍ) er tíðind- unum fagnað þar sem þörfin fyrir íbúðunum sé mikil. Mörg hundruð stúdentar eru á biðlista eftir íbúðunum og getur Félagsstofnun stúdenta nú annað þeirri eftirspurn, að því er segir í ályktuninni. - sv SHÍ fagnar nýjum íbúðum: Nær 300 nýjar stúdentaíbúðir VIÐSKIPTI Stefnt er að því að kröfuhafar N1 taki félagið yfir eftir að fjárhagslegri endur- skipulagningu lýkur í næstu viku. Kröfuhafar taka bæði yfir móður félagið BNT, olíu- verslunina N1 og fasteignafélagið Umtak. Stefnan er sett á að skrá fyrirtækið á hlutabréfamarkað eftir um ár. Samkvæmt drögum að sam- komulagi sem lá fyrir um endur- skipulagninguna í apríl breyta lánardrottnar skuldum N1, fast- eignafélagsins Umtaks og móður- félagsins BNT í hlutafé. Skuldir N1 námu 19,3 milljörð- um króna í lok júní í fyrra að við- bættu 9,2 milljarða gjaldföllnu láni BNT sem N1 var í sjálfskuld- arábyrgð fyrir. Skuldir BNT og Umtaks eru í erlendum mynt- um og námu um sextíu milljörð- um króna seint á síðasta ári. Við endur skipulagninguna verður eigið fé um fimmtíu prósent og fara skuldir niður í um 8,5 millj- arða króna. Það svarar til fjór- falds rekstrarhagnaðar N1. Hermann segir skuldastöðuna hæfilega að endurskipulagningu lokinni. Hann bendir á að erfitt sé að henda reiður á verðmæti N1 nú um stundir. Skýrist það ekki síst af því að eignir Umtaks verða lagðar inn í N1 og verður greitt fyrir með hlutafé. Sömuleiðis verður hluta af skuldum BNT breytt í hlutafé. „Staðan mun væntanlega ekki skýrast fyrr en félagið verður skráð á markað. Þá munu menn Stefnt að yfirtöku á N1 eftir helgina Olíuverslunin N1 og fasteignafélagið Umtak verða eitt félag að lokinni fjárhags- legri endurskipulagningu. Skuldir sameinaðs félags lækka um rúman helming. Stefnt er að skráningu fyrirtækisins á hlutabréfamarkað eftir ár. VIÐ DÆLUNA Engar mannabreytingar eru fyrirhugaðar eftir yfirtöku kröfuhafa á N1, að sögn forstjórans Hermanns Guðmundssonar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Væntanlegir eigendur N1 Hluthafar Eignahlutur Arion banki 39% Íslandsbanki 31% Lífeyrissjóðir 21% Aðrir kröfuhafar 9% ■ Eignarhaldsfélagið BNT var stofnað í febrúar árið 2006 í tengslum við kaup eigenda Bílanausts og fleiri fjárfesta á Olíufélaginu ESSO. Kaupverð nam 10,2 milljörðum króna. ■ Rekstur Bílanausts og Olíufélagsins var sameinaður undir merkjum N1 árið 2007. ■ Allar fasteignir sameinaðs félags voru færðar inn í fasteignafélagið Umtak og varð það dótturfélag N1. ■ Bræðurnir Benedikt og Einar Sveinssynir, kenndir við Eng- eyjarættina, áttu helmingshlut í BNT í gegnum fjárfestingarfélögin Mátt og Hafsilfur. Staða félaganna veiktist verulega eftir bankahrunið, ekki síst eftir að Íslandsbanki tók yfir stóran hlut Máttar í Icelandair Group. ■ Fram kemur í rannsóknarskýrslu Alþingis að Máttur og BNT voru umsvifamiklir lántakendur Glitnis með tæplega 100 milljóna evra lán hvor við fall bankans. Það jafngildir í kringum 32 milljörðum króna. ■ Nokkurn veginn sömu stjórnar- menn eru í BNT og N1. Stjórnin mun fara frá þegar endurskipu- lagningu lýkur. Eina breytingin áður varð þegar Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og sonur Benedikts Sveinssonar, sagði starfi sínu lausu sem stjórnar- formaður BNT og N1 í desember 2008 til að helga sig stjórn- mál- um. N1 í hnotskurn sjá hvernig markaðurinn verð- metur fyrirtækið,“ segir Her- mann. Horft verður til fyrir- hugaðrar skráningar Haga og gengis félagsins á markaði. jonab@frettabladid.is EINAR SVEINSSON VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 24° 24° 22° 18° 21° 19° 17° 17° 22° 15° 25° 30° 32° 15° 17° 15° 19° 3 Á MORGUN Fremur hægur vindur. SUNNUDAGUR Fremur hægur vindur. 8 5 7 8 9 9 3 8 7 2 6 2 5 37 6 4 10 5 9 5 12 10 7 9 8 13 9 6 7 6 AÐ SKÁNA NA-læg átt um mestallt land í dag en þurrt að mestu um landið N-og A-vert. Á laugardag hlýnar um allt land með einhverjum skúrum S-lands. Á sunnudag kólnar lítillega aftur N-og A-lands með vætu þar yfi r daginn. Snjólaug Ólafsdóttir veður- fréttamaður ORKUMÁL Gengið hefur verið frá samningum um kaup Nevada Geothermal Power (NGP) á eignum Iceland America Energy (IAE), sem býr yfir jarðhitarétt- indum í sunnanverðri Kaliforníu. Kaupin eru gerð í framhaldi af viljayfirlýsingu frá í febrúar. Orkuveita Reykjavíkur, í gegnum dótturfélagið Reykja- vik Energy Invest, á um 80 pró- sent í IAE og eru jarðhitarétt- indin helsta eign fyrirtækisins. Fyrir hlutinn fást um 77 milljónir króna, 690 þúsund dalir, og lið- lega sex milljónir hluta í NGP. - shá OR fær 77 milljónir króna: Jarðhitaréttindi seld í Kaliforníu JARÐVARMI Þátttaka í jarðvarma- verkefnum er ekki úr sögunni með sölu eigna í Kaliforníu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.