Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.06.2011, Qupperneq 42

Fréttablaðið - 10.06.2011, Qupperneq 42
10. júní 2011 FÖSTUDAGUR26 26 menning@frettabladid.is Tónleikaröðin Þriðjudagskvöld í Þingvallakirkju hefur göngu sína í fimmta sinn 14. júní næst- komandi. Á fyrstu tónleikunum koma fram þau Helga Aðalheiður Jóns- dóttir blokkflautuleikari og Þórarinn Sigurbergsson gítar- leikari. Barokktónlist verður þar í öndvegi. Viku síðar, 21. júní, leika systurnar Pálína og Mar- grét Árnadætur dúó fyrir fiðlu og selló. Þar verða meðal annars verk eftir Haydn og Beethoven á efnisskránni. 28. júní koma fram Kolbeinn Bjarnason flautuleikari og Guðrún Óskarsdóttir sembal- leikari og á lokatónleikunum 5. júlí flytur miðaldasönghópurinn Voces Thules tóna aftan úr öldum. Kveikjan að tónleikunum er stofnun Minningarsjóðs Guð- bjargar Einarsdóttur frá Kára- stöðum til eflingar tónlistarstarfi við kirkjuna. Tónleikarnir hefjast klukkan 20. Aðgangur er ókeyp- is en tekið er við frjálsum fram- lögum við kirkjudyrnar. - kg Þriðjudagskvöld í Þingvallakirkju ÞINGVALLAKIRKJA Tónleikaröðin hefur göngu sína í fimmta sinn á þriðjudag. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR FÖSTUDAGSFIÐRILDI HINS HÚSSINS Á KREIK Listahópar Hins hússins, alls sextán talsins, troða upp víðs vegar í miðbænum frá klukkan 12 til 14 í dag. Meðal atriða eru ljóðabrot sem rituð verða á götur, dansatriði á Ingólfstorgi og pappakassakastalagerð í Lækjargötu. Myndlist ★★★★★ Kona/Femme Louise Bourgeois Listasafn Íslands Louise Bourgeois (1911-2010) var mikilvægasta og áhrifamesta lista- kona samtímans. Sýning á verkum hennar er fjöður í hatt Listasafns Íslands og mikill fengur fyrir íslenskt myndlistarumhverfi. Henni fylgir eiguleg sýningarskrá, vel til fundið hjá Listasafninu að fá Kristínu Marju Baldursdóttur til að skrifa um persónuleg kynni sín af list Bourgeois. Sýningarstjóri er Laura Bechter. Bourgeois er fædd og upp- alin í Frakklandi og lagði þar stund á myndlistarnám en flutt- ist til Bandaríkjanna á fjórða ára tugnum. Hún varð meðal annars fyrir áhrifum af list súrr- ealistanna og gætir þess í mörgum verka hennar. Á ferli sínum hefur hún endurnýjað sig sífellt. Á síð- ustu áratugum ævi sinnar gerði hún m.a. stórar, aflokaðar innsetn- ingar sem hún kallaði klefa og sótti List sem lætur engan ósnortinn LOUISE BOURGEOIS Enginn ætti að láta sýningu á verkum hennar framhjá sér fara að mati Rögnu Sigurðardóttur. þar sérstaklega til sársaukafullra bernskuminninga. Hér er m.a. inn- setningin Klefi (Svartir dagar) frá 2006 sem var síðasti klefinn sem hún gerði. Risastórir köngulóar- skúlptúrar hennar eru frægir og í Listasafninu er líka einn slíkur, magnað verk. Erfið bernska Bourgeois setti mark sitt á verk hennar. Heimilis- líf bernskunnar var þrungið svik- um og baktjaldamakki sem hún gleymdi aldrei. Textíll, vefnaður og saumaskapur eru stór þáttur í list hennar en foreldrarnir ráku fyrirtæki sem seldi og gerði við ofin teppi, sem barn hjálpaði hún til við vinnuna. Hin síspinnandi könguló táknar hennar eigin móður og ef til vill einnig hana sjálfa. Hlutskipti konunnar er annað meginþema, sér í lagi sársauki, einangrun og vanmáttur sem hún veigrar sér aldrei við að taka á og vinna úr. Á þessari sýningu er kvenlíkaminn sérstaklega áberandi. Í meðförum Bourgeois verður líkaminn nær ópersónu- legt fyrirbæri, hún einangrar einstaka þætti og skoðar þá með augum jafnt myndhöggvarans, sál- fræðingsins og konunnar. Áhrif Bourgeois á listamenn yngri kynslóða eru gríðarleg og sýnileg. Velgengni og styrkur hennar hefur m.a. sýnt svo ekki verður um villst að list sem hefur konuna og hið kvenlega að við- fangsefni er brýn og áleitin í sam- tímanum. Þannig eru sýningar hennar líka. Sársaukinn er alls staðar en frábær útfærsla hennar og úrvinnsla á viðfangsefninu lyftir verkum hennar yfir alla til- finningasemi og snertir áhorfand- ann djúpt. Óhætt er að segja að enginn megi láta þessa sýningu á verkum Bourgeois framhjá sér fara. Von- andi fáum við síðan að sjá sem allra mest af list íslenskra kvenna í safninu líka, sem fyrst. Af nægu er þar að taka þegar kemur að list sem á erindi við samtímann. Ragna Sigurðardóttir Niðurstaða: Sýning á heims- mælikvarða, á verkum frægustu listakonu heims. Verk frá öllum ferli listakonunnar gefa ágæta mynd af verkum hennar og viðfangsefnum. List Bourgeois er sársaukafull en laus við tilfinningasemi, veigrar sér aldrei. Sýning sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Nú er fjör ! OPIÐ Virka daga frá kl. 10-18 Lau frá kl. 11-17 Verðdæmi: 100x200 cm kr. 69.900,- 120x200 cm kr. 75.900,- 140x200 cm kr. 79.900,- Fullt af spennandi tilboðum ! Ótrúlegt verð - Frábærar kantstyrkingar - Svæðaskipt

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.