Fréttablaðið - 14.06.2011, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 14.06.2011, Blaðsíða 1
veðrið í dag MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar – mars 2011 Þriðjudagur skoðun 12 SÉRBLAÐ í Fréttablaðinu Allt 14. júní 2011 136. tölublað 11. árgangur Guðinn sem brást Nú geisar orrustan um söguna. Hvernig hrunið skal túlkað, skrifar Guðmundur Andri Thorsson. umræða 13 Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 2 Inntökupróf í læknisfræði og sjúkraþjálfun í læknadeild Háskóla Íslands fara fram í dag og á morg- un. Nærri 400 manns þreyta prófið sem er mesti fjöldi frá upphafi en þetta er í níunda sinn sem inn- tökuprófið er haldið. V ið viljum fá til okkar sem flesta fót-boltakrakka, bæði stráka og stelpur, á aldrinum 13 til 17 ára,“ segir Mar-grét Lára Viðarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu. Hún, ásamt einkaþjálfaranum Silju Úlfarsdóttur, byrjar með afreksskóla í Sporthúsinu þann 20. júní. „Mikill hugur er í krökkum í dag. Margir vilja ná langt og verða jafnvel atvinnumenn. Við viljum hjálpa þeim að ná sem lengst,“ segir hún. Margrét Lára Viðarsdóttir knattspyrnukona og Silja Úlfarsdóttir einkaþjálfari opna afreksskóla Huga að heildinni Sölustaðir: 10 -11, Inspired í Flugstöðinni, Samkaup, Nettó, Kaskó, Fjarðarkaup, Skeljungsbúðirnar, Olís, N1, Kaupfélag V- Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga,Verslunin Vísir, Bláa lónið, Hreyfing, Krambúðin, Fiskbúðin Freyja, Melabúðin. ÍSLENSK FÆÐUBÓTBITAFISKUR-næring fyrir líkama og sál Opnunartími:mánud.-föstud. kl. 11:00 - 18:00 LOKAÐ LAUGAR ÚTSALA MIKIÐ ÚRVAL AF FLOTTUMFATNAÐI FYRIR 17. JÚNÍ VOR OG SUMARLISITI 2011 Skemmtilegur ferðafélagi viðarparket Verðdæmi: Eik 3ja stafa kr. 3.990 m2 Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 w w w. f o r l a g i d . i s NÝ KILJA Skáldverk og ljóð 01.06.-07.06.11 FÓLK „Ég þurfti að vinna á móti ákveðnu hugtaki sem nú er orðið þekkt í samfélaginu og kallast Gnarrismi. Það fannst mér mjög óréttlátt því ekkert sem ég sagði eða gerði í kosningabaráttunni var tengt því sem hann gerði,“ segir Haraldur Freyr Gíslason Polla- pönkari og nýkjörinn formaður Félags leikskólakennara, um við- brögð við framboði sínu. Haraldur tekur starfið með trompi og nú fer fram atkvæða- greiðsla um boðun verkfalls leik- skólakennara sem kemur til fram- kvæmda 22. ágúst. „Ég fyrirgerði ekki rétti mínum til að berjast fyrir bættum kjörum, þótt ég hafi ákveðið að mennta mig í þessu fagi,“ segir Haraldur. - fsb / sjá síðu 14 Nýr formaður leikskólakennara: Sakaður um Gnarrisma HARALDUR FREYR GÍSLASON Polla- pönkarinn er orðinn formaður Félags leikskólakennara. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA LÉTTIR TIL Í dag verður hæg N-læg átt en hvassara á NV-landi. Einhver væta NA-lands og á Vest- fjörðum í dag. Von á skúrum SV- lands seinni partinn. VEÐUR 4 4 10 4 5 10 Vinnur með Nilla Gísli Örn Garðarsson leikur í stuttmynd netstjörnunnar Nilla. fólk 26 Verða að ná í stig í dag Íslenska U21 landsliðið spilar annan leikinn sinn á EM þegar liðið mætir Sviss. sport 22 ÁNÆGÐUR MEÐ FENGINN Mikill fjöldi fólks reyndi fyrir sér í veiði við Reynisvatn í gærdag og fram á kvöld. Þrátt fyrir góðar aðstæður voru ekki allir eins heppnir og Tindur Ingólfsson, sjö ára veiðimaður, sem fékk þennan myndarlega þriggja punda regnbogasilung. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL DANMÖRK Danskir háskólanemar eyða einungis um 28,5 klukku- stundum á viku í nám sitt. Það kemur fram í niðurstöðu könnun- ar við Árósaháskóla. Alls tóku um 11 þúsund stúd- entar þátt í könnuninni, en í sam- anburði við könnun sem gerð var árið 2008 virðast ungmennin nú eyða hálfri klukkustund minna á viku í fyrirlestra og undirbúning. Þessi niðurstaða er áfall að sögn talskonu samtaka atvinnulífsins í Danmörku. Afleiðingarnar gætu orðið þær að í framtíðinni muni dönsk fyrirtæki frekar leita að hæfu starfsfólki erlendis. - þj Latir stúdentar í Danmörku: Námið rúm- lega hálf vinna VEÐUR Veðurspár gera ráð fyrir talsvert hlýrra veðri á Suðvestur- landi á næstu dögum en annars staðar á landinu. Hiti gæti farið niður í þrjár gráður á Austur- og Norðurlandi í vikunni. „Það er gert ráð fyrir því að það sé meira eða minna norðaustanátt, svo sem ekkert mjög kalt loft, en meðan það blæs af svölu haf- inu fyrir norðan þá verður aldrei neitt verulega hlýtt,“ segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur. Hann segir þó ekkert í umhverf- inu benda til þess að hret sé yfir- vofandi, þó líkur séu á að norðaust- anáttin ríki fram að helgi. „Þessi norðaustanátt er fremur óhagstæð að sumarlagi. Bæði er svalt loft oft vætusamt og sólar- lítið.“ Þetta eigi sérstaklega við á Norður- og Norðausturlandi. Þar sé hitinn í ökkla eða eyra á þess- um tíma sumars. Ef vindur sé af landi og loft að sunnan sé miklu hlýrra. „Hins vegar er þetta hag- stæð vindátt á höfuðborgarsvæð- inu, sem gefur bæði að það verði léttskýjað og sól og ágætis hiti.“ - þeb Norðaustanátt veldur kulda á Norður- og Norðausturlandi næstu daga: Verður hlýjast á Suðvesturlandi NEYTENDUR Framleiðendur ýmiss konar neytendavöru á alþjóða- markaði hafa undanfarin misseri tekið á það ráð að minnka innihald neytendapakkninga en halda verði óbreyttu. Þetta kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins BBC, en fjölmargar vörur af þessu tagi eru fluttar inn hingað til lands og hafa því bein áhrif á íslenska neytendur. Til dæmis nefnir BBC að sápu- stykki hafi minnkað sem og sæl- gætisstykki. Þannig hafi súkku- laðistykki frá Cadbury‘s minnkað um 20 grömm og Toblerone hafi minnkað um einn þríhyrning. Fyrirtækin bera við stórhækkuðu hráefnisverði á heimsmörkuðum og þetta sé eina leiðin til að forð- ast hækkanir, en neytendafrömuðir segja þetta fela í sér hækkun og sé villandi fyrir almenning. Þuríður Hjartardóttir, fram- kvæmdastjóri Neytendasamtak- anna, segir í samtali við Frétta- blaðið að þótt þess háttar mál hafi ekki komið inn á borð samtakanna nýlega, sé ástæða til þess að brýna fyrir neytendum að fylgjast með magneiningaverði. „Þegar fólk er að bera saman verð almennt, skiptir máli að bera saman verð í samræmi við magn, til dæmis lítraverð eða kílóverð frekar en stykkjaverð.“ Finnur Geirsson, forstjóri sæl- gætisgerðarinnar Nóa Siríus, segir svona nokkuð ekki hafa viðgengist hjá sínu fyrirtæki þó vissulega hafi hráefni hækkað í verði. Framleið- endur erlendis séu eflaust að bregð- ast við þeirri þróun. „Við höfum verið að samræma okkar pakkningastærðir, en það hefur verið til að auka hagkvæmni í framleiðslu, en ekki verið í þeim til- gangi að hækka útsöluverð miðað við magn.“ - þj Pakkningar minnka en verð helst óbreytt Víða erlendis hafa framleiðendur neytendavöru mætt hækkandi hráefnisverði með því að minnka vöruna en halda verði óbreyttu. Neytendasamtökin hvetja íslenska neytendur til að vera á varðbergi og fylgjast vel með magneiningaverði.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.