Fréttablaðið - 14.06.2011, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 14.06.2011, Blaðsíða 19
FASTEIGNIR.IS 14. JÚNÍ 201124. TBL. Fasteignasalan Torg er með glæsilegt og fjölskylduvænt einbýlishús til sölu í einu vinsælasta hverfi Garðabæjar. Húsið stendur við Lynghæð í Garðabæ. Komið er inn í forstofu með steinskífum á gólfi og fataskáp. Inn af forstofu er herbergi, þvottahús og gestasnyrting. Úr forstofunni er komið inn í fyrsta svefnherbergið af fjórum. Beint af augum úr forstofunni er haldið áfram inn í húsið. Þegar komið er inn í aðalrýmið tekur við eldhús á vinstri hönd. Þar er sérhönnuð og sérsmíðuð viðarinn- rétting með innbyggðu eldhúsborði og skápa í enda- skápum. Borðhæðir eru misháar til að auðvelda alla þá fjölbreyttu vinnu sem þar fer fram. Tvöfaldur am- erískur ísskápur fylgir. Stofa og borðstofa taka við af eldhúsinu. Innbyggð- ur, steyptur arinn skilur þær að. Úr stofu er útgengt á stóran sólpall til suðurs. Yfir í svefnherbergisálmuna er farið í gegnum sjón- varpsrými. Þá er komið að rúmgóðu baðherbergi, flísa- lögðu í hólf og gólf með baðkeri, sturtu og góðri inn- réttingu. Herbergin eru þrjú í þessari álmu, tvö barna- herbergi með fataskápum í báðum. Síðan tekur við rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum og útgengt á sólpall til vesturs. Parket er á herbergjum og stofu. Bílskúrinn er stór, rúmir 42 fermetrar með tveim- ur rafstýrðum hurðum. Garður er í góðri rækt og tveir sólpallar eru við húsið. Fjölskylduvænt einbýli Við húsið eru tveir sólpallar og garður í góðri rækt. heimili@heimili.is Sími 530 6500 FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN MEIRI FRÓÐLEIKUR Meiri Vísir.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.