Fréttablaðið - 18.06.2011, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 18.06.2011, Blaðsíða 70
18. júní 2011 LAUGARDAGUR42PERSÓNAN Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir Aldur: 31 árs. Starf: Ég er nýorðin framkvæmda- stjóri Lindex á Íslandi. Búseta: Ég bý á Selfossi. Fjölskylda: Maki er Albert Þór Magnússon og við eigum synina Daníel Viktor, 9 ára, og Magnús Val, 2 ára. Stjörnumerki: Sporðdreki. Lóa Dagbjört opnar Lindex-verslun á Íslandi í haust. „Það er alltaf gaman þegar vel geng- ur og ég ætla ekki vera hræsnari og segja að keppnin skipti mig ekki máli. Það er komið í mig smá keppnisskap en auðvitað er það málefnið sjálft sem á að fá alla athyglina,“ segir Myrra Leifs- dóttir listakona, sem er eini Íslending- urinn í topp 20 af 2.500 keppendum í auglýsingasamkeppni á vegum Samein- uðu þjóðanna. Fréttablaðið hefur áður fjallað um keppnina en í fyrra vann Íslendingurinn Stefán Einarsson og situr í dómnefnd þetta árið. Þemað í keppninni í ár er ofbeldi gegn konum eða No to violence to women og mega allir Evrópubúar taka þátt. Bæði dómnefnd og almenn- ingur hafa áhrif á úrslitin en allir geta farið inn á vefsíðu keppninnar og kosið. Auglýsing Myrru er sérstök en þar má sjá babúsku sem brotnað hefur í marga mola og eftir stendur minnsti hlut- inn einn og yfirgefinn. „Þetta er frek- ar táknræn nálgun á málefninu. Bæði tengt menningu og hvernig ofbeldið fer gegnum lag eftir lag á fórnarlambinu,“ segir Myrra, sem sjálf er að hefja nám í Listaháskólanum í haust en keppnina sá hún á heimasíðu skólans. Auglýsing hennar rokkar á milli 3. og 18. sætis en hægt er fara inn á slóðina http://competi- tion.create4theun.eu/entry/166128 til að skoða hennar framlag og annarra kepp- enda. - áp Auglýsing Myrru vinsæl MEÐ SMÁ KEPPNISSKAP Framlag Myrru í keppninni gengur vel, en hún hefur aldrei starfað við auglýsingar áður. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR TÁKNRÆN NÁLGUN Auglýsing Myrru sýnir babúsku sem fórnarlamb og hvernig ofbeldið sker sig gegnum hvert lagið á fætur öðru. „Ég er ekki beint þekktur fyrir að vera mikill íþróttamaður en jógaæfingar virðast henta mér ágætlega,“ segir Snorri Helgason tónlistarmaður, en hann uppgötvaði nýlega hvað hugleiðsluíþróttin fer vel saman við tónlistarbransann, sem oft á tíðum getur tekið á líkama og sál. Snorri hefur verið búsettur í London undanfarið ár ásamt unnustu sinni, Hildu Gunnarsdóttur fata- hönnuði. Þar er hann að koma sinni eigin tónlist á framfæri. Það var einmitt á tónleikum í Þýskalandi með hljómsveitinni Hjaltalín sem Snorri var hvattur til að fara að hreyfa sig. „Ég var að gera nokkrar hnébeygjur og liðka mig til svona rétt áður en ég steig á svið þegar það heyrðist mikið brak úr hnján- um á mér. Krakkarnir létu mig heyra það og sögðu að svona brak væri ekki eðlilegt í ungum manni eins og mér,“ segir Snorri glettinn, en hann stundar nú jóga af miklum móð og finnur mun. „Brakið er samt ekki farið enn þá en mér finnst þetta þægilegt. Ég ætla ekki að verða neinn jógagúru en held að ég sé að ná því að vera ekki kaldhæðinn og fara í þetta með opnum huga, sérstaklega þegar kennarinn segir okkur að „anda heiminum inn og áhyggjum út“.“ Snorri er væntanlegur til landsins innan skamms til að fylgja útgáfu plötu sinnar Winter Sun eftir en hún kemur út í júlí. Hann kemur fram á LungA hátíðinni um miðjan júlí og Innipúkanum um versl- unarmannahelgina en í næstu viku kemur út nýtt lag með Snorra sem nefnist River. „Við ætlum okkur að vera áfram í London en tón- listarbransinn hér er nokkuð harður enda mikið framboð af svipaðri tónlist. Ég finn samt að hlut- irnir eru að komast í rútínu og ég er farinn að spila á réttu stöðunum.“ - áp Snorri Helga sendur í jóga STUNDAR JÓGA Snorri Helgason er á leiðinni til landsins í júlí til að fylgja eftir útgáfu á plötunni Winter Sun. Framhald verður á ævintýrum fjármálastarfsmannsins Ástríðar. Framleiðslufyrirtækið Saga Film og Stöð 2 hafa náð samningum um að gera þáttaröð númer tvö en fyrsta serían sló eftirminnilega í gegn og var tilnefnd til fjölda Eddu-verðlauna. Ilmur Kristjánsdóttir leikkona er afar ánægð með að önnur þátta- röð um Ástríði verði að veruleika. „Ég er mjög ánægð, það er kominn tími á kvenkynsefni í sjónvarpi, það hefur verið svo svakaleg karla- slagsíða undanfarið.“ Ilmur var þó bara nýbúin að heyra af þessari ákvörðun og segir handritsvinnu nú eiga að fara á fullt. „Við erum bara aðeins búin að hittast og ræða málin, ég get því ekki mikið sagt þér. Ég geri hins vegar fastlega ráð fyrir því að Silja [Hauksdóttir] eigi eftir að leikstýra þessu.“ Ilmur reiknar jafnframt með því að Ástríður verði ekki lengur í starfi hjá fjármálafyrirtækinu sínu. „Nei, það er allavega ein af hug- myndunum, að hún verði atvinnu- laus í byrjun þáttanna.“ Ilmur var stödd í Halifax þegar Fréttablaðið náði tali af henni og gat því ekki verið viðstödd Grímu- verðlaunin sem voru afhent við hátíðlega athöfn á fimmtudags- kvöld. Hún var tilnefnd sem leik- kona ársins fyrir Fólkið í kjallar- anum en leikstjóri sýningarinnar, Kristín Eysteinsdóttir, fékk hins vegar ekki tækifæri til að lesa ræðuna sem Ilmur sendi henni því Unnur Ösp Stefánsdóttir bar sigur úr býtum fyrir Elsku barn. Ilmur er stödd í kanadísku borg- inni við upptökur á ferðaþætti sem sýndur verður á Stöð 2, en eins og frægt er orðið þeyttust Ívar Guð- mundsson og Arnar Grant um alla Evrópu í sambærilegum þætti. Ilmur staðfestir að hún sé kven- kyns-útgáfan af þeim tveim. Hún var í það minnsta að fara á brim- bretti með kanadískum heims- meistara í íþróttinni en hún hefur heimsótt Glasgow, París, Boston, Helsinki og Seattle, þar sem hún fór meðal annars í áheyrnarprufu hjá grunge-sveit. freyrgigja@frettabladid.is ILMUR KRISTJÁNSDÓTTIR: KOMINN TÍMI Á KVENLEGT SJÓNVARP ÁSTRÍÐUR SNÝR AFTUR KARLLÆGT SJÓNVARP Ilmur Kristjánsdóttir segir að sjónvarpsdagskráin hafi verið með karlaslagsíðu að undanförnu og það sé því sérstakt gleðiefni að gera eigi þáttaröð númer tvö af Ástríði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.