Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.06.2011, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 22.06.2011, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 22. júní 2011 Nýverið var undirritaður sótt-ur heim að morgni og færður í yfirheyrslu af starfsmönnum emb- ættis sérstaks saksóknara (ESS) í tengslum við rannsókn embættisins á starfsemi VÍS. Handtakan kom mér verulega á óvart, enda var ég fullviss þá og er enn að ekkert ólög- legt átti sér stað í starfsemi VÍS þau ár sem ég tengdist félaginu. Við skýrslutöku hjá ESS voru born- ar á mig fjarstæðu kenndar sakir, í raun svo fráleitar að ég get ekki orða bundist. Á hrunárinu 2008 skilaði VÍS 242 milljóna króna hagnaði eftir skatta. Til samanburðar þá tapaði Tryggingamiðstöðin 17,6 milljörð- um og Sjóvá tapaði 30,2 milljörðum. Ástæða þessa mikla munar er ekki tilviljun. Þegar Exista keypti allt hlutafé í VÍS á árinu 2006 átti VÍS fyrir stóran eignarhlut í Kaupþingi banka. Eftir kaupin var ákveðið að geyma öruggustu eignir sam- stæðunnar í VÍS en áhættusamari eignir (t.d. hlutabréf í Kaupþingi) í móðurfélaginu Exista. Lögum sam- kvæmt þurfa tryggingafélög alltaf að eiga næga sjóði til að geta mætt framtíðartjónum. VÍS átti eftir þessa breytingu öruggar eignir til að mæta öllum skuldbindingum vegna áætlaðra tjóna. Til viðbótar átti VÍS tæpa 10 milljarða króna í eiginfé í árslok 2008. Öldungis frá- bær staða eftir mesta eignahrun í sögu þjóðarinnar. Umboðssvik gegn sjálfum mér Þótt stefna VÍS um fjárfestingar hafi í raun aðeins fylgt erlendum viðmiðum taldi Fjármálaeftirlitið (FME) rétt að rannsaka hvort góð afkoma VÍS á árinu 2008 byggðist á hagnýtingu innherjaupplýsinga. Þeirri rannsókn var sjálfhætt. FME var þó ekki af baki dottið og nú stend ég í þeim sporum að vera sakaður um hið gagnstæða – að hafa misbeitt stöðu minni hjá VÍS þannig að fjármunir hafi tapast. ESS tók svo við keflinu af FME og gerði lýðum ljóst að meint brot mín vörðuðu hvorki meira né minna en við allan auðgunarbrota- kafla hegningar laga. Mátti ég láta segja mér tíðindin þrisvar eins og Njáll forðum enda hljóma sakirnar fyrir mér, ólöglærðum manni, líkt og ég hafi stolið peningum VÍS. Stað reyndin er þó sú að meint brot lúta ekki að því að ég hafi hagnast persónu lega heldur er ég sakaður um að hafa ekki gætt hagsmuna VÍS sem stjórnarformaður, sem heitir í lögfræði umboðssvik. Mér finnst þessi ásökun galin enda var Exista eigandi alls hlutafjár VÍS og ég var stærsti eigandi Exista. Með því að gæta ekki hagsmuna VÍS hefði ég því skaðað sjálfan mig mest. Ruglið úr rannsóknarskýrslunni FME er fullkunnugt um þessa for- sögu málsins enda hafa henni verið gerð rækileg skil í bréfa skiptum við stofnunina. Samt er ákveðið að leggja upp í það sem Ólafur Hauksson, sérstakur saksókn- ari, kallaði svo ósmekklega í við- tali við mbl.is 1. júní „óvissuferð“. ESS réttlætti ferðalagið með því að fyrir lægi kæra frá FME. Emb- ættinu ber engu að síður, áður en lagt er upp í slíka „óvissuferð“, að huga að réttmæti kærunnar og hvort hún eigi við einhver rök að styðjast. Í yfirheyrslunni varð mér fljótt ljóst að þetta hafði ESS ekki gert. Margar spurningar sem fyrir mig voru lagðar voru mér óskiljan- legar og það sem verra var spyrj- andinn virtist ekki átta sig á þeim heldur. Á einum tímapunkti í yfir- heyrslunni var Rannsóknarskýrsla Aþingis dregin upp og spurt beint upp úr henni, eins og hún væri hluti af rannsóknargögnunum. Þótt væni sjúkustu sófa saksóknarar þjóðarinnar hafi keppst við að lofa skýrsluna fyrir „mikil gæði“, sumir jafnvel sama dag og þessi mörg þúsund blaðsíðna doðrantur kom út, þá var aldrei rætt við mig né nokkurn hjá Exista við gerð henn- ar. Það er vitaskuld með ólíkindum miðað við hve miklu rými er varið í Exista í skýrslunni. Og hvað við kemur Exista er skýrslan morandi í villum og röngum ályktunum og því frábað ég mér með öllu að þurfa sitja undir slíku rugli í yfirheyrslu. Uppgjör án fordæma FME stærir sig af því hafa sent nálega 70 mál til ESS frá því að nýr forstjóri tók við. Margir hrapa sjálfsagt að þeirri ályktun að þetta sé til merkis um að hér hafi verið rekið fjármálakerfi sem byggð- ist almennt á óheiðarlegu fólki sem skirrðist ekki við að ganga á svig við lög. Mér finnst blasa við að þetta séu merki um að rann- sóknin sé komin í ógöngur. Því til enn frekari staðfestingar nefni ég þá staðreynd að 216 manns höfðu réttarstöðu sakbornings í málum sem ESS hafði til meðferðar í mars 2011. Eflaust hefur þeim fjölgað eitthvað síðan. „Uppgjörið“ hér á landi við hrunið á sér engin fordæmi erlendis. Ekkert sambærilegt á sér stað á Írlandi eða Grikklandi svo dæmi séu tekin. Þá hefur enginn forstjóri banka á Wall Street verið ákærður í kjölfar hrunsins, þótt þar hafi allir fjárfestingar bankarnir í raun orðið gjaldþrota. Enginn hefur verið ákærður vegna hinna svo- kölluðu undirmálslána í Bandaríkj- unum, en almennt eru þau talin ein helsta orsök þess óskapnaðar sem skall á fjármálamörkuðum haustið 2008. Ástæðan er ekki að lögreglu- yfirvöld í Bandaríkjunum hafi ekki verið að skoða þessi mál, heldur að illa hefur gengið að finna lögbrot. Þar leyfast ekki „óvissuferðir“ eins og ESS stundar hér. Þá má bæta því við að enginn stjórnmálamaður í heiminum hefur verðið ákærður í tengslum við hrunið nema Geir H. Haarde. Landsdómsmálið er vita- skuld þjóðar skömm enda augljós- lega pólitík í sinni ömurlegustu mynd. Óendanlega sárt Mér gremst það mjög að horfa upp á fyrrum samstarfsmenn mína missa lífsviðurværi sitt og æru vegna þess eins að þeir framfylgdu stefnu og ákvörðunum stjórna fyrirtækja þar sem ég var í fyrirsvari. Ég mun standa reikningsskil gjörða minna og óttast þau ekki. Ég hafði sjálf- ur mikla persónulega hagsmuni af rekstri og viðgangi þessara fyrir- tækja. Mig tekur það óendanlega sárt að sjá rannsakendur reyna að flækja samstarfsmenn mína, fag- menn með áratugareynslu á sínu sviði, inn í rannsókn sem er byggð á sandi. Þeir, eins og aðrir sakborn- ingar, mega búast við því að hafa stöðu sakbornings svo árum skipt- ir. Óhjákvæmilega markar slíkt þá og þeirra nánustu fyrir lífstíð. Og þegar mál þeirra verða látin niður falla þá mun hinn sérstaki saksókn- ari eflaust bregða út af vananum og sleppa því að hringja í fjölmiðla. „Óvissuferð“ sérstaks saksóknara Fjármál Lýður Guðmundsson stjórnarformaður Bakkavör Group Landsdómsmálið er vitaskuld þjóðar- skömm enda augljóslega pólitík í sinni ömurlegustu mynd. TILBOÐ AÐEINS 6.995,- PAKKATILBOÐ AÐEINS 24.900,- TILBOÐ AÐEINS 13.995,- PAKKATILBOÐ AÐEINS 29.900,- TILBOÐ AÐEINS 11.995,- KRÓKHÁLSI 5 - 110 REYKJAVÍK - SÍMI 517 8050 MÁN. TIL FÖS.- 9 TIL 18 /// LAU. - 9 TIL 16 TILBOÐ AÐEINS 16.995,- AÐEINS 24.900,- AÐEINS 19.990,- AÐEINS 5.995,- AÐEINS 8.895,- TILBOÐSVERÐ 11.895,- AÐEINS 1.695,- SILUNGAFLUGUR STRAUMFLUGUR SPÚNAR MAKRÍLL OG ORMARAÐEINS 220,- AÐEINS 290,- AÐEINS FRÁ 299,- Þu færð beituna í veiði- ferðina í Sportbúðinni. v Gríptu tækifærið og græjaðu þig upp fyrir bústaðinn. Magnaðir miðvikudagar! 4GB minnislykill fylgir öllum netlyklaáskriftum í dag Á m eða n b irg ðir e nd as t.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.