Fréttablaðið - 22.06.2011, Page 31
MIÐVIKUDAGUR 22. júní 2011
Endless Dark leggur af stað í tón-
leikaferð til Evrópu á fimmtudag-
inn.
Strax um kvöldið verður rokk-
sveitin eitt af aðalnúmerunum
á tónleikum í O2 Academy í
Islington-hverfinu í London. Eftir
það spilar hún á hátíðinni Graspop
í Belgíu og heldur síðan aftur til
Englands vegna tvennra tónleika.
„Þetta verður mjög spennandi.
Böndin sem spila á undan okkur
eiga mun fleiri fylgjendur úti. Það
verður gaman að „heddlæna“ þá
tónleika,“ segir Atli Sigursveins-
son, gítarleikari Endless Dark, um
tónleikana í O2 Academy. „Daginn
eftir förum við til Belgíu og spilum
á Graspop. Við verðum örugglega
orðnir mjög þreyttir.“
Strákarnir héldu vel heppnaða
styrktartónleika vegna fararinnar
á heimaslóðum sínum í Ólafsvík 17.
júní og aðrir slíkir verða á Sódómu
Reykjavík í kvöld kl. 21. Þar er
aðgangseyrir 1.000 krónur. Þrátt
fyrir að hafa fengið 700 þúsund
króna styrk frá styrktar sjóðnum
Kraumi á dögunum veitir Endless
Dark ekki af meiri peningum enda
er afar dýrt að koma sér á fram-
færi erlendis.
Sveitin er byrjuð að taka upp
sína fyrstu stóru plötu og er hún
væntan leg í lok þessa árs eða byrj-
un þess næsta. - fb
Endless Dark til Evrópu
Á LEIÐ TIL EVRÓPU Rokkararnir í Endless Dark eru á leiðinni til Evrópu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Sumarsýningin FLUG
Sumarsýning TRYGGVASAFNS hefur verið opnuð í Safnahúsinu Neskaupstað.
Sýningin verður opin frá kl. 13.00 til 17.00 alla daga í sumar.
Meginuppistaðan í sýningunni í ár eru myndir sem tengjast flugi af ýmsum toga, fuglar, flugvélar, flugur o.fl.
Því ber sýningin heitið FLUG.
Einnig eru á sýningunni einstakar og litríkar myndir Tryggva Ólafssonar sem tengjast börnum og leikföngum þeirra.
Listaverkabók um Tryggva
Myndskreytt póstkort
Grafíkmyndir
Til sölu í Safnahúsinu eru: