Fréttablaðið - 23.06.2011, Side 2
23. júní 2011 FIMMTUDAGUR2
EVRÓPUMÁL Leiðtogar aðildarríkja Evrópusambands-
ins mætast til reglulegrar tveggja daga ríkjaráð-
stefnu í Brussel í dag.
Helst verður rætt um efnahagsmál, þ.e. vanda
Grikklands og annarra skuldsettra ríkja ESB. Einnig
um framtíð Schengen-svæðisins í ljósi óvæntra við-
bragða Ítala, Frakka og Dana við afrísku flótta-
mannabylgjunni í vor sem leið, en þar þótti skorta
talsvert á samstarfsvilja og samheldni þjóðanna.
Rætt verður um hvernig megi stýra ytri landa-
mærum ESB betur og þar með landamærum Íslands.
Einnig um hvernig aðildarríkjum gangi að fram-
fylgja reglum um frjálsa för fólks; hvernig megi
bæta þær. Fjallað verður og um samevrópskt flótta-
mannakerfi.
Forseti framkvæmdastjórnar ESB, José Manuel
Barroso, verður viðstaddur og hefur kynnt áherslur
sínar fyrir fundinn. Barroso hefur áhuga á nýjum
tekjustofni, eða „Hróa-hattarskatti“ til að leggja á
alþjóðlega fjármagnsflutninga. Þetta yrði leið til að
ná skaðabótum af fjármálafyrirtækjum vegna fjár-
málakreppunnar.
Þá leggst Barroso gegn því að aðildarríki taki upp
landamæraeftirlit innan Schengen, sem t.d. Danmörk
hefur lagt til, og segir að framkvæmdastjórnin muni
grípa inn í, fari svo að einstaka aðildarríki vegi að
þessum grundvallaratriðum Evrópusamstarfsins. - kóþ
Ríkjaráðstefna aðildarríkja Evrópusambandsins hefst í Belgíu í dag:
Rætt um Schengen og Grikki
SAMMÁLA! Stundum fer býsna vel á með þeim Sarkozy Frakk-
landsforseta og Merkel Þýskalandskanslara. Þau sjást hér á
síðasta leiðtogafundi ESB, sem var haldinn í mars.
NORDICOHOTOS/AFP
ÞJÓNAÐ TIL BORÐS Lokað hefur verið fyrir bílaumferð í Austurstræti og geta gestir og gangandi því sest þar víða niður án þess að
eiga á hættu að lenda fyrir bíl. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
MANNLÍF „Okkur líður mjög vel
í húsinu, vinnum fimmtán tíma
vinnudag og gleymum því að fara
heim,“ segir Unnur Ósk Stefáns-
dóttir, kölluð Lukka, einn eigenda
veitingastaðarins Happs við Aust-
urstræti 22.
Húsin á horni Lækjargötu og
Austurstrætis skemmdust í elds-
voða síðasta vetrardag árið 2007.
Endurbygging þeirra hefur stað-
ið yfir á brunareitnum svokallaða
síðan þá og sér nú fyrir endann
á verkinu. Veitingastaðurinn var
opnaður við Austurstræti á þjóðhá-
tíðardaginn.
Líf færist smám saman yfir
í hin húsin. Í því sem snýr að
Lækjargötu verður skartgripa-
verslunin Leonard til húsa, versl-
un fyrir ferðamenn og skrifstofur
á efri hæðum.
Á milli hússins við Lækjargötu
og Austurstrætis er port sem opið
verður á daginn. Þar inn af er
unnið hörðum höndum að opnun
veitingastaðarins Grillmarkaðar-
ins. „Það er allt morandi í iðnaðar-
mönnum hér,“ segir landsliðskokk-
urinn Hrefna Rósa Jóhannsdóttir
Sætran, eigandi staðarins sem er á
tveimur hæðum. Eldavélar verða
hitaðar upp um helgina en stefnt er
að formlegri opnun á fimmtudag í
næstu viku.
Í framtíðinni verður hægt að
ganga inn eftir portinu á milli
Lækjargötu og Pósthússtrætis og
þaðan út bæði á Austurvöll og við
Skólabrú.
Húsið sem stóð við Austurstræti
22 markar spor í sögu landsins.
Ísleifur Jónsson dómari lét reisa
hús þar árið 1801. Stiftamtmaður-
inn Trampe greifi keypti það fjór-
um árum síðar. Jörundur hunda-
dagakonungur gerði húsið að sínu
árið 1809 þegar hann handtók
Trampe. Hús Happs er eftirmynd
af húsi Ísleifs.
Fyrirhugað er að opna sýningu
í húsinu á morgun sem sýnir lífið
í því á árum áður. Meðal annars
verða sýndar myndir af Jörundi,
eiginhandaráritun hans og teikn-
ingar af dansleik sem þar var
haldinn. „Hér var lágt til lofts
og á einni myndinni má sjá konu
festa hárkollu í ljósakrónu,” segir
Lukka. jonab@frettabladid.is
Brunareitur lifnar við
Hvert fyrirtækið af öðru er að flytja inn í húsin sem brunnu til kaldra kola
síðasta vetrardag fyrir fjórum árum. Reiturinn er hluti af sögu þjóðarinnar.
Yrsa, var þetta blóðug keppni?
„Nei, þetta er blóðdropinn sem
holar steininn.“
Yrsa Sigurðardóttir rithöfundur hlaut
í fyrradag Blóðdropann, glæpasagna-
verðlaun Hins íslenska glæpafélags fyrir
hrollvekjuna Ég man þig.
BANDARÍKIN, AP Þ i ngmenn
Kaliforníuríkis fá engin laun
greidd fyrr en þeim tekst að
afgreiða hallalaus fjárlög. Búist
er við því að þeir þurfi að minnsta
kosti viku til að ljúka verkinu.
John Chiang, fjármálastjóri Kali-
forníuríkis, tók þessa ákvörðun í
samræmi við lög sem Kaliforníu-
búar samþykktu í þjóðaratkvæða-
greiðslu í nóvember síðastliðnum.
Samkvæmt þessum lögum má
svipta þingmenn bæði launum og
dagpeningum takist þeim ekki að
afgreiða hallalaus fjárlög fyrir 15.
júní ár hvert. Launagreiðslur hefj-
ast að nýju um leið og fjárlög liggja
fyrir, en launalausi tíminn verður
þó ekki bættur með eftirágreiðslu
launa.
Lögin voru borin undir þjóðar-
atkvæði til þess að skapa þrýsting
á þingmenn, sem á hverju ári hafa
skilað fjárlögum löngu eftir að til-
skilinn frestur til þess, nefnilega
15. júní, er liðinn.
Þingmennirnir lögðu því óvenju
hart að sér í ár og fögnuðu ákaft
þegar fjárlög voru samþykkt á síð-
ustu stundu. Gleðin rann hins vegar
fljótt af þeim þegar fjármálastjór-
inn skýrði frá launasviptingunni,
enda voru þessi fjárlög ekki halla-
laus. - gb
Þingmenn í Kaliforníu sviptir launum þar til þeir skila hallalausum fjárlögum:
Refsað fyrir hallafjárlögin
KALIFORNÍUÞING Kaliforníuríki sparar
sér nokkrar milljónir króna á dag meðan
þingmenn eru launalausir.
NORDICPHOTOS/AFP
NOREGUR Tvær stúlkur, sem var
rænt í Noregi á þriðjudagsmorg-
un, fundust í gær heilar á húfi.
Faðir þeirra er í haldi lögreglu
ásamt fimm öðrum, grunaður um
að hafa lagt á ráðin um mann-
ránið.
Stúlkurnar fundust í húsi í
Hönefoss, um 50 kílómetrum
sunnan við Brandbu, þaðan sem
þeim var rænt. Faðir þeirra og
tveir aðrir voru handteknir í hús-
inu. Á þriðjudag höfðu þrír menn
verið handteknir vegna málsins.
Foreldrar stúlknanna eru frá
Írak, sem og aðrir sem eru í haldi
lögreglu. Því hafði lögreglan talið
líklegt að reynt yrði að koma
börnunum úr landi og var mikið
eftirlit á landamærum meðan
leitað var að þeim. - þeb
Sex eru í haldi í Noregi:
Stúlkurnar eru
heilar á húfi
EFNAHAGSMÁL Heildsöluverð á
mjólk hækkar um 4,25 prósent
um mánaðamótin. Verðlagsnefnd
búvara hefur ákveðið þetta. Verð
á öðrum mjólkurafurðum hækkar
um sömu prósentu nema verð
á smjöri og mjólkurdufti sem
hækka um 6,7 og 6 prósent.
Ástæður verðhækkananna eru
sagðar launabreytingar og verð-
hækkanir á aðföngum.
Henný Hinz, hagfræðingur hjá
ASÍ, sagði þessar hækkanir vera
talsvert umfram það sem launa-
hækkanir kjarasamninganna
gefa tilefni til, í samtali við Stöð
2 í gær. Þessar hækkanir og fleiri
undanfarið vekji upp ótta um að
launahækkanirnar brenni upp á
báli verðbólgunnar. - mþl
Launahækkanir hækka verð:
Verð á mjólkur-
vörum hækkar
DÓMSMÁL Efnahagsbrotadeild
ríkislögreglustjóra hefur ákært
Viggó Þórisson, fyrrverandi
framkvæmdastjóra Verðbréfa-
þjónustu Sparisjóðanna, fyrir
stórfelld umboðssvik. Frá þessu
var greint í fréttum Stöðvar 2 í
gærkvöldi.
Ákæran var gefin út hinn 9.
júní en fjögur ár eru frá því rann-
sókn málsins hófst. Brotin voru
talin felast í útgáfu tilhæfulausr-
ar ábyrgðaryfirlýsingar upp á
200 milljónir Bandaríkjadala,
jafnvirði 22 milljarða króna.
Viggó var gert að sæta farbanni í
23 mánuði vegna málsins.
Samkvæmt almennum hegn-
ingarlögum geta umboðssvik
varðað allt að sex ára fangelsi
ef sakir eru miklar, en Viggó er
ákærður til vara fyrir tilraun til
fjársvika.
Sveinn Andri Sveinsson, verj-
andi Viggós, sagði í viðtali við
Stöð 2 að umbjóðandi sinn myndi
neita sök í málinu.
Rannsóknin tók fjögur ár:
Ákærður fyrir
umboðssvik
SLYS Ungur karlmaður missti
stjórn á vélhjóli á Reykjanes-
brautinni við Innri Njarðvík um
klukkan hálf sex í gær. Þeyttist
vélhjólið út af veginum og lenti í
möl á milli akreina eins og mað-
urinn.
Maðurinn var meðvitundarlaus
þegar lögreglu- og sjúkraflutn-
ingamenn mættu á slysstað en
komst til meðvitundar í sjúkrabíl
á leiðinni á bráðamóttöku Land-
spítalans. Maðurinn er talsvert
brotinn en ekki talinn í lífshættu.
- mþl
Ungur karlmaður slasaður:
Vélhjólaslys á
Reykjanesbraut
REYKJANESBRAUT Maðurinn er ekki
talinn í lífshættu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VIÐSKIPTI Landsbankinn ætlar að
bjóða til sölu allar eignir sem
hann hefur fengið við yfirtöku
eins fljótt og unnt er í opnu og
gegnsæju söluferli á almennum
markaði. Skilyrði er þó sett um
það að salan brjóti ekki gegn lög-
vörðum hagsmunum viðskipta-
vina bankans.
Minni fasteignir, ökutæki og
lausafjármunir verða boðin til
sölu eins fljótt og unnt verður.
Hlutabréf í óskráðum fyrirtækj-
um verða seld í opnu söluferli.
- jab
Landsbankinn selur eignir:
Allt mun fara í
opnu söluferli
SPURNING DAGSINS
Dala Feta fyrir þá
sem gera kröfur
ms.is