Fréttablaðið - 23.06.2011, Page 4
23. júní 2011 FIMMTUDAGUR4
Vegna fréttar blaðsins þann 14. júní
þar sem fjallað var um að erlend
fyrirtæki hefðu í sumum tilfellum
minnkað innihald sælgætispakkninga
án þess að lækka verð, vill heild-
salan Innnes árétta að pakkningar
Toblerone súkkulaðis sem selt sé hér
á landi hafi ekki breyst að stærð.
ÁRÉTTING
ÞJÓÐKIRKJAN Séra Örn Friðriks-
son, fyrrverandi sóknarprestur
Mývetninga, skrifaði félagsmála-
yfirvöldum bréf í september árið
1998 til varnar
dæmdum kyn-
ferðisbrota-
manni. Mað-
ur i nn hafði
misnotað stjúp-
dætur sínar
kynferðislega
um langt skeið
og var dæmd-
ur í tveggja ára
fangelsi í júní árið 1995. Hann
afplánaði fangelsisdóminn á Kvía-
bryggju og var sleppt einu og
hálfu ári síðar.
Maðurinn, sem ólst upp í sókn
prestsins í Mývatnssveit, átti
tvær dætur með eiginkonu sinni
fyrrverandi. Fór hún fram á að
félagsmálayfirvöld ábyrgðust
umgengni hans við börnin þeirra
eftir að hann losnaði úr fangelsi.
Af því tilefni skrifaði séra Örn
yfirvöldum bréf þar sem hann
sagði meðal annars að maðurinn,
sem áður var skólastjóri í sveit-
inni, væri „myndarlegur maður
og vel gefinn“. Þá skrifaði Örn
að sér væri ljóst að það sem olli
hjónaskilnaði mannsins og konu
hans hefði ekki verið „meint mis-
notkun hans á dætrum hennar.“
Hann sakaði konuna um rógburð
og lygi og sagði að dómurinn yfir
manninum hafi verið hæpinn.
Hún hefði ákveðið „að reyna að
fá hann dæmdan.“
Þá skrifar séra Örn: „Hverjir
svo sem gallar [mannsins] kunna
að vera, verður það ekki af honum
skafið að hann er einstaklega ljúf-
ur og góður piltur. Honum þykir
afarvænt um dætur sínar.“
Móðir stúlknanna sendi bréf
Arnar til siðanefndar Presta-
félagsins. Nefndin áleit skrifin
ámælisverð og sagði í umsögn,
dagsettri 30. september 1999,
að bréf Arnar hefði í heild sinni
ómálefnalegt yfirbragð. „Órök-
studdar fullyrðingar í svona við-
kvæmum málum eru ámælisverð-
ar og ættu aldrei að vera lagðar
fram sem umsögn í jafnviðkvæm-
um málum eins og þessum.“
Þá var það samdóma álit nefnd-
arinnar að með óvarkárum og
órökstuddum málflutningi hefði
séra Örn brotið siðareglur. Afrit
af álitinu var sent Karli Sigur-
björnssyni biskupi, Geir Waage,
formanni Prestafélagsins, og Erni
sjálfum. Ekkert var þó frekar að
gert, enda var séra Örn hættur
störfum. Siðanefndin taldi þó að
hann félli áfram undir siðareglur
Prestafélagsins. sunna@frettabladid.is
Prestur skrifaði til
varnar barnaníðingi
Séra Örn Friðriksson skrifaði bréf til félagsmálayfirvalda árið 1998 til varnar
dæmdum barnaníðingi. Siðanefnd Prestafélagsins áleit skrif prestsins ámælis-
verð. Örn véfengdi orð ásakendanna í rannsóknarskýrslu þjóðkirkjunnar.
Í skýrslu rannsóknarnefndar kirkjuþings segir að séra Örn hafi verið einn þeirra
prófasta sem á sínum tíma lýstu yfir stuðningi við Ólaf Skúlason. Í andmælabréfi
sínu til nefndarinnar, dags. 11. maí síðastliðinn, skrifar Örn meðal annars að hann
trúi ekki konunum sem ásaka Ólaf, þær hafi líklega verið á höttunum eftir pen-
ingum. „Það er vel þekkt staðreynd, að stundum ljúga konur í slíkum málum, og
hefi ég persónulega orðið fyrir slíku,“ skrifaði séra Örn til rannsóknarnefndarinnar.
Segist sjálfur hafa verið ásakaður
MÝVATNSSVEIT Séra Örn var sóknarprestur í Mývatnssveit en hafði hætt störfum
þegar hann skrifaði bréfið til félagsmálayfirvalda. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÖRN FRIÐRIKSSON
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
27°
28°
23°
18°
21°
18°
18°
18°
24°
17°
24°
28°
35°
17°
18°
15°
19°Á MORGUN
Fremur hæg N-læg eða
breytileg átt
LAUGARDAGUR
Fremur hægur vindur
39
10 2
8
8
5
3
8 5
9 4
57
9
9
10
4
3
2
7 3
10
9
8
8
9
8
10 9
7
7
SKYN OG SKÚRIR
Ágætis veður
næstu daga. Áfram
hægur vindur
víðast hvar og
hitatölur frá 5 upp
í 15 stig. Tiltölulega
bjart á V-landi í
dag en léttast syðst
á morgun. Stöku
skúrir seinnipartinn
næstu daga. Dálítil
væta NA-lands á
morgun.
Snjólaug
Ólafsdóttir
veður-
fréttamaður
DANMÖRK Muhudiin Mohamed
Geele, sem réðist inn á heimili
skopmyndateiknarans Kurts
Westergaard
á nýársdag í
fyrra, vopn-
aður öxi, var í
gær dæmdur í
tíu ára fangelsi
fyrir landsrétti.
Geele, sem
er af sómal-
ískum uppruna,
réðist inn til
Westergaards í
reiði sinni út af hinum umdeildu
Múhameðsteikningum þess síðar-
nefnda. Westergaard náði að
fela sig inni á baðherbergi þegar
Geele réðist inn í húsið og eftir
snörp átök við lögreglu var árás-
armaðurinn handtekinn. - þj
Axarmaðurinn í Árósum:
Tíu ára fangelsi
í Landsrétti
KURT
WESTERGAARD
DÓMSMÁL Alls 65,7 prósent lands-
manna eru mótfallin því að
höfðað hafi verið sakamál fyrir
landsdómi gegn Geir H. Haarde,
fyrrverandi forsætisráherra.
Þetta eru niðurstöður nýrrar
skoðanakönnunar MMR. Fylgj-
andi málshöfðuninni voru 34,3
prósent þeirra sem tóku afstöðu
en svarhlutfall var 83,6 prósent.
Töluverður munur var á
afstöðu eftir stjórnmálaskoð-
unum. Þannig var mikill meiri-
hluti Sjálfstæðismanna á móti en
rúm 70 prósent fylgismanna VG
fylgjandi.
Þegar spurt var um stuðn-
ing við málshöfðun gegn Geir í
september 2010 voru 60 prósent
þeirra sem tóku afstöðu fylgjandi
málshöfðun. - mþl
Skoðanakönnun MMR:
Meirihluti gegn
málshöfðun
BRASILÍA Maria Gomes Valentim,
sem talin hefur verið elsta kona
í heimi, lést í Brasilíu í gær 114
ára og 347 daga
gömul.
Heimsmeta-
bók Guinnes
h a fð i s a n n -
reynt nýverið
að fæðingar-
vottorð hennar
væri ófalsað
og skráði hana
í sínar bækur í
síðasta mánuði.
María átti aðeins nokkrar vikur
í að ná 115 ára aldri en hún var
fædd árið 1896.
Nú er Besse Cooper frá
Georgíu í Bandaríkjunum elsta
kona heims samkvæmt sérfræð-
ingum Guinnes. Hún er 48 dögum
eldri en Valentim heitin.
Elsta kona heims er látin:
Varð 114 ára og
347 daga gömul
MARIA GOMES
VALENTIM
SÞ Ban Ki-moon, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna var í
fyrrakvöld endurkjörinn í emb-
ættið til fimm ára.
Þetta var ákveðið á aðalþingi
stofnunarinnar en áður hafði
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
samþykkt endurkjörið. Enginn
bauð sig fram á móti og þykir
Ban Ki-moon njóta almenns
stuðnings.
Ban Ki-moon endurkjörinn:
Nýtur almenns
stuðnings
STJÓRNSÝSLA Áfrýjunarnefnd
samkeppnismála staðfesti í gær
ákvörðun Samkeppniseftirlitsins
um að beita Seðlabankann dag-
sektum vegna vanrækslu á afhend-
ingu gagna og upplýsinga um útlán
banka.
Forsaga málsins er sú að Sam-
keppniseftirlitið óskaði eftir gögn-
um frá Seðlabankanum í tengslum
við rannsókn á samkeppnisaðstæð-
um á bankamarkaði. Seðlabankinn
hafnaði hins vegar beiðninni með
vísan til trúnaðar- og þagnarskyldu
sem hvíldi á bankanum og benti á að
eðlilegra væri að leitað væri beint
til umræddra banka. Seðlabank-
inn fær í kjölfar úrskurðarins í
gær frest til 1. júlí til að veita Sam-
keppniseftirlitinu þau gögn sem um
var beðið en ella sæta dagsektum.
Í tilkynningu sem barst eftir að
úrskurðurinn lá fyrir er hann sagð-
ur vera til skoðunar hjá Seðlabank-
anum. Þá er það sagt mat Seðla-
bankans að úrskurðurinn muni að
óbreyttum lögum hafa áhrif á þá
starfsemi bankans sem snýr að
hagskýrslugerð. „Rík trúnaðar- og
þagnarskylda hvílir á ríkisstofnun-
um sem sinna opinberri hagskýrslu-
gerð og skulu upplýsingar sem aflað
er til hagskýrslugerðar eingöngu
notaðar í slíkum tilgangi,“ segir enn
fremur í tilkynningunni en þar er
ekki útilokað að málinu verði vísað
til dómstóla. - mþl
Áfrýjunarnefnd staðfesti rétt Samkeppniseftirlitsins til að beita dagsektum:
Hafnaði rökum Seðlabankans
SEÐLABANKINN Seðlabankanum er skylt
að afhenda Samkeppniseftirlitinu upp-
lýsingar um útlán banka. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
JEMEN Tugir liðsmanna al Kaída
hryðjuverkasamtakanna flúðu
úr fangelsi í suðurhluta Jemens
í gær í kjölfar árásar á fang-
elsið. Yfirvöld segja að félagar
fanganna hafi gert árás og um
leið hafi brotist út bardagi á milli
fanganna og fangavarða.
Að minnsta kosti fjörutíu kom-
ust undan og þar á meðal eru
menn sem fengið hafa dóma fyrir
hryðjuverkastarfsemi.
Mikill órói hefur verið í Jemen
undanfarna mánuði eins og víðar
í Mið-austurlöndum.
Bardagi í jemensku fangelsi:
Tugir liðsmanna
al Kaída sluppu
GENGIÐ 22.06.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
219,6622
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
114,64 115,18
184,86 185,76
164,7 165,62
22,077 22,207
20,839 20,961
17,975 18,081
1,4281 1,4365
183,06 184,16
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Gleraugnaverslunin þínPIPA
R
\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
11
15
9
0
SÓLGLER
með styrkleika
fylgja kaupum á
gleraugum í júní
MJÓDDINNI
Álfabakka 14
Opið: virka daga 9–18
FIRÐI
Fjarðargötu 13–15
Opið: virka daga 10–18
og laugardaga 11–15
AKUREYRI
Hafnarstræti 95
Opið: virka daga 9–17.30
SELFOSS
Austurvegi 4
Opið: virka daga 10–18