Fréttablaðið - 23.06.2011, Blaðsíða 6
23. júní 2011 FIMMTUDAGUR6
SKÓLAMÁL Borgarstjórn Reykjavík-
ur samþykkti á þriðjudag tillögu
um stofnun skóla- og frístunda-
sviðs sem mun taka yfir starf-
semi menntasviðs, leikskólasviðs
og frístundahluta íþrótta- og tóm-
stundasviðs. Undir nýtt svið fell-
ur rúmlega helmingur útgjalda
borgarinnar og miðað við fjár-
hagsramma þessa árs má áætla
að reksturinn nemi um 30 millj-
örðum á ári.
Oddný Sturludóttir, formaður
menntaráðs, segir í samtali við
Fréttablaðið að þessi breyting sé
fagnaðarefni og mjög í takt við
það sem viðgengst í þessum mála-
flokkum hjá borgum í nágranna-
löndunum.
„Það eru mikil tækifæri sem fel-
ast í nánari samþættingu skóla-
og frístundastarfs til að skapa
heilstæðan vinnudag barna, sem
hefur verið kallað eftir síðasta ára-
tuginn eða svo. Frístundastarfið í
borginni er frábært og margt sem
skólastarfið getur lært af því og
það gildir líka á hinn veginn.“
Tillagan var samþykkt með
atkvæðum meirihlutans, en minni-
hlutinn greiddi atkvæði gegn
breytingunum enda hafa fulltrúar
bæði Sjálfstæðisflokks og Vinstri
grænna deilt hart á þessa tillögu.
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks,
segir að gagnrýni þeirra beinist að
óljósum markmiðum um fjárhags-
lega hagræðingu, en allra helst
að vinnubrögðum meirihlutans í
þessu máli.
„Okkur finnst að þau hafi átt
að leggja meira upp úr samráði í
þessu ferli, bæði við okkur í minni-
hlutanum og starfsfólk. Mín skoð-
un er sú að þetta sé rekið í gegn til
málamyndana í þeim tilgangi að
sefa réttmæta gagnrýni úr skóla-
umhverfinu. Þar var mjög hart
deilt á meirihlutann vegna þess að
þrátt fyrir umfangsmiklar aðgerð-
ir í skólakerfinu hafði ekki verið
tilkynnt um neinn niðurskurð í
miðlægri stjórnsýslu.“
Þorbjörg bætti því við að borgar-
stjórnarflokkur sjálfstæðismanna
sé alls ekki andsnúin stjórnkerfis-
breytingum sem slíkum og hafi í
raun kallað eftir þeim.
Fulltrúar Vinstri grænna lögð-
ust einnig gegn hugmyndunum, en
í bókun þeirra á fundinum segir að
breytingarnar séu „afar varhuga-
verðar“.
Þau setji sig ekki gegn því að
sameina menntasvið og leikskóla-
svið, en frístundastarfið eigi ekki
heima á sama stað og með þessu
sé vegið að jákvæðri þróun mála-
flokksins síðustu ár og frístunda-
mál í raun sett undir þrjú fagsvið.
„Með þessu er þannig verið að
gera lítið úr frístundafræðum
sem fagi, enda verður enginn sam-
starfs- eða þróunarvettvangur
til staðar á vettvangi Reykjavík-
urborgar“, segir í bókuninni og
klykkt út með því að segja vinnu-
brögð meirihlutans til skammar.
Oddný vísar þessari gagnrýni
á bug. Þó að tölur um ætlaða fjár-
hagslega hagræðingu liggi ekki
fyrir, hafi það sýnt sig í fyrri sam-
einingum sviða að hagræði hljót-
ist af, en ekki síst bætt þjónusta
fyrir borgarana. „Þetta mun skila
okkur skýrara og skilvirkara kerfi
og í því hljóta að felast fjárhagsleg
tækifæri.“
Stefnt er að því að innleiðingu
verði að fullu lokið í árslok og
muni nýja sviðið þá taka formlega
til starfa.
thorgils@frettabladid.is
Þetta mun skila okkur
skýrara og skilvirkara
kerfi og í því hljóta að felast
fjárhagsleg tækifæri.
ODDNÝ STURLUDÓTTIR
FORMAÐUR MENNTARÁÐS
Hefur þú lent í miklum
seinkunum í flugi með Iceland
Express?
Já 48,5%
Nei 51,5%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur eldsneytisverðið áhrif á
ferðalög þín innanlands?
Segðu þína skoðun á vísir.is.
MEÐ BÚNAÐI, MIÐSVÆÐIS Í REYKJAVÍK.
MJÖG HAGSTÆÐ KJÖR FYRIR RÉTTA AÐILA.
GOTT TÆKIFÆRI FYRIR FAGFÓLK AÐ TAKA SAMAN
HÖNDUM OG HEFJA EIGIN REKSTUR.
OPIÐ HÚS 18:00 - 20:00 Í DAG FIMMTUDAGINN 23.JÚNÍ
TIL LEIGU
HÁRGREIÐSLUSTOFA
Vinsamlega sendið fyrirspurnir á netfangið
furugerdi3@gmail.com eða í síma 693-8310
Nýtt fagsvið skólamála með
30 milljarða rekstur á ári
Nýtt fagsvið skóla- og frístundamála hefur verið samþykkt í borgarstjórn. Formaður menntaráðs segir
breytinguna fagnaðarefni. Minnihlutinn átelur vinnubrögð meirihlutans og segir meint hagræði óljóst.
Í SKÓLANUM Borgarstjórn hefur samþykkt stofnun nýs fagsviðs. Undir það heyra
málefni leikskóla, grunnskóla og frístundahluta Íþrótta- og tómstundasviðs. Á
myndinni eru börn í Hlíðaskóla að þreyta samræmt próf.
„Hið nýja svið mun annast rekstur leikskóla, grunnskóla, frístundamiðstöðva,
félagsmiðstöðva, frístundaheimila ásamt umsjón með daggæslu í heima-
húsum. Jafnframt heyrir rekstur Námsflokka Reykjavíkur, skólasafnamið-
stöðvar og skólahljómsveita undir hið nýja svið.
Sviðið mun hafa umsjón og/eða eftirlit með starfsemi sjálfstætt starf-
andi leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla og myndlistarskóla, auk annarrar
sambærilegrar starfsemi sem styrkt er af Reykjavíkurborg. Skóla- og frí-
stundasvið mun jafnframt hafa umsjón og eftirlit með þjónustusamningi við
þjónustumiðstöðvar í hverfum í tengslum við sérfræðiþjónustu til leik- og
grunnskólabarna og frístundaráðgjöf.“
(Af vef Reykjavíkur)
Viðfangsefni nýja sviðsins
BANDARÍKIN, AP Öldungadeild
Bandaríkjanna hefur fallist á að
Leon Panetta, yfirmaður leyni-
þjónustunn-
ar CIA, verði
varnarmálaráð-
herra Banda-
ríkjanna þegar
Robert Gates
lætur af emb-
ætti um næstu
mánaðamót.
Panetta fékk
mikinn stuðn-
ing meðal þing-
manna beggja flokka og segja
repúblikanar að Barack Obama
forseti hafi valið alveg réttan
mann í starfið.
Panetta er orðinn 72 ára og
fær meðal annars það verkefni
að stjórna brottflutningi Banda-
ríkjahers frá Afganistan næstu
misserin. - gb
Panetta verður ráðherra:
Tekur við af
Robert Gates
GRIKKLAND Þótt Georgios Papand-
reú, forsætisráðherra Grikklands,
hafi fengið meirihlutastuðning
þingsins til að halda áfram að ná
tökum á skuldavanda ríkisins, á
hann þó enn mikið verk óunnið því
ekki er öruggt að þingmeirihlutinn
fallist á þær skattahækkanir og
niðurskurð sem hann hefur boðað.
Á tveggja daga leiðtogafundi
ESB, sem hefst í Brussel í dag
verður bæði skuldavandi Grikk-
lands og hinn almenni vandi evru-
ríkjanna til umræðu, ekki síst
áform um nánara samstarf um
evruna.
Bæði Jean-Claude Trichet, seðla-
bankastjóri Evrópusambandsins,
og John Lipsky, sem til bráðabirgða
gegnir yfirmannsstarfi Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins, hafa hvatt
Evrópusambandið til að styrkja
umgjörðina um evrusamstarfið.
Angela Merkel Þýskalands-
kanslari hefur staðið hart gegn
því að endursamið verði um skuld-
ir Grikklands, nema á grundvelli
frjálsra samninga við skuldunaut-
ana, en hefur nú í fyrsta sinn ljáð
máls á því að greiðsluþak verði sett
svo létta megi byrðinni að hluta af
Grikkjum. - gb
Papandreú tryggði sér þingmeirihluta en á erfitt verk fyrir höndum:
Aðhaldsaðgerðir óafgreiddar
MÓTMÆLI Í AÞENU Enn er mikil and-
staða meðal Grikkja við væntanlegar
aðhaldsaðgerðir stjórnarinnar.
NORDICPHOTOS/AFP
LEON PANETTA
DÓMSMÁL Lögreglustjórinn á
Akranesi hefur ákært konu á fer-
tugsaldri fyrir fjárdrátt.
Konunni er gefið að sök að hafa
aðfaranótt mánudagsins 30.
ágúst á síðasta ári farið í pen-
ingaskáp verslunarinnar Sam-
kaupa Strax í Dalabyggð og tekið
þar tæpar 885 þúsund krónur og
sex bandaríska dollara.
Konan var verslunarstjóri
þegar þetta gerðist. Í peninga-
skápnum var afrakstur helgarsölu
verslunarinnar svo og skiptimynt.
Lögregla lagði hald á um
358 þúsund hjá konunni. Sam-
kaup krefjast þess að hún greiði
afganginn, rúm 526 þúsund með
vöxtum. - jss
Kona ákærð fyrir fjársvik:
Tók um milljón
úr peningaskáp
Samkaupa
MENNING Myndlistarmaðurinn
Magnús Pálsson var í gær útnefnd-
ur borgarlistamaður Reykjavík-
ur 2011. Útnefningin fór fram í
Höfða þar sem Jón Gnarr, borg-
arstjóri, veitti Magnúsi ágrafinn
stein, heiðursskjal og viðurkenn-
ingarfé.
Magnús fæddist á Eskifirði 25.
desember árið 1929 og nam bæði
í Birmingham og Vínarborg eftir
stúdentspróf. Fyrstu einkasýn-
inguna hélt hann í Ásmundarsal
árið 1967 og hefur síðan sýnt verk
sín reglulega á Íslandi og einnig í
nokkrum Evrópulöndum.
Magnús hefur verið í farar-
broddi íslenskra listamanna um
áratugi en auk þess að mála hefur
hann búið til skúlptúra, samið
ljóð, framkvæmt gjörninga, samið
hljóð- og leikverk auk ýmiss fleira.
Þá hefur hann verið brautryðjandi
í myndlistarkennslu á Íslandi. - mþl
Borgarstjóri útnefndi borgarlistamann ársins 2011 í Höfða í gær:
Magnús Pálsson heiðraður
HÖFÐI Borgarstjórn hélt móttöku Magnúsi til heiðurs í gær þar sem útnefningin var
tilkynnt. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
KJARAMÁL Ljósmæðrafélag
Íslands hefur lýst yfir stuðningi
við baráttu leikskólakennara
fyrir bættum kjörum.
Í tilkynningu frá félaginu segir
að kjarabarátta leikskólakennara
snúist um að störf þeirra verði
metin í samræmi við menntun og
ábyrgð og þá grunnhugmynd að
hægt sé að lifa mannsæmandi lífi
á launum sínum.
Leikskólakennarar munu boða
til verkfalls þann 22. ágúst ef
ekki tekst að ná saman um kjara-
samninga fyrir þann tíma. - mþl
Ljósmæðrafélag Íslands:
Styður við leik-
skólakennara
KJÖRKASSINN