Fréttablaðið - 23.06.2011, Síða 10
23. júní 2011 FIMMTUDAGUR10
HEILBRIGÐISMÁL Læknaskortur
Sjúkrahússins á Akureyri er við-
varandi vandamál og á sumum
deildum þess starfa svo fáir
læknar að öryggi sjúklinga kann
að vera ógnað.
Þetta er meðal niðurstaðna
stjórnsýsluúttektar Ríkisendur-
skoðunar sem hvetur Landlæknis-
embættið til að gera úttekt á
öryggi sjúklinga á sjúkrahúsinu.
Starfsemi sjúkrahússins fer nú
fram í 38 einingum og eru milli-
stjórnendur um fimmtíu en starfs-
menn samtals um 600. Að mati
Ríkisendurskoðunar er mikil-
vægt að fækka einingum með því
að sameina þær.
Í úttektinni er fjallað um skipu-
lag, stefnu og stjórnun sjúkra-
hússins. Fram kemur að sam-
kvæmt viðhorfskönnun sem
Ríkisendurskoðun gerði meðal
starfsmanna ríkir óánægja með
ýmsa þætti í skipulagi og stjórnun
þess.
Ríkisendurskoðun telur að móta
þurfi nýja stefnu og framtíðarsýn
fyrir sjúkrahúsið og leggur til að
velferðarráðuneytið ákveði fram-
tíðarskipulag heilbrigðisþjónustu
á Norðurlandi. - shá
Ríkisendurskoðun finnur að ýmsu í rekstri Sjúkrahússins á Akureyri í nýrri skýrslu:
Vilja úttekt á öryggi sjúklinga
■ Landlæknir geri úttekt á öryggi
sjúklinga vegna viðvarandi
læknaskorts
■ Starfsmenn óánægðir með
ýmsa þætti í skipulagi og
stjórnun sjúkrahússins
■ Einfalda þarf skipulagið og
styrkja framkvæmdastjórn
■ Móta þarf nýja stefnu fyrir
sjúkrahúsið
Helstu niðurstöður
Við lífrænt
án rotvarnarefna enginn viðbættur sykur
Þjóðtrúin kennir okkur að á Jónsmessu
getum við fundið töfrasteina á fjalli og læknast
af ýmsum kvillum við að velta okkur upp úr dögginni.
Laugardagskvöldið 25. júní bjóða Bláa Lónið og
Grindavíkurbær upp á árlega Jónsmessugöngu sem hefst
við Sundlaug Grindavíkur kl. 20.30.
Gakktu með okkur á fjallið Þorbjörn og njóttu þess að hlusta á Hreim Örn
Heimisson og Vigni Snæ Vigfússon úr Vinum Sjonna leika tónlist við
varðeld á fjallinu. Komdu svo með okkur í Bláa Lónið þar sem tónlistin
heldur áfram til miðnættis og þú færð Blue Lagoon kokteil í boði hússins.
Ekkert þátttökugjald er í gönguna og félagar í Vinaklúbbi Bláa Lónsins
komast í Bláa Lónið fyrir 1.950 kr. Félagar í Vinaklúbbnum geta unnið
fjölskylduárskort í Bláa Lónið, aðgang fyrir tvo í Betri stofuna eða glæsilegan
vinning frá Grindavíkurbæ.
Nánari upplýsingar um skráningu í Vinaklúbbinn, Jónsmessugönguna
og skipulagðar sætaferðir má sjá á www.bluelagoon.is
BLÁA LÓNIÐ
HÉR UPPLIFIR ÞÚ
TÖFRAMÁTT
JÓNSMESSUNNAR
HÉR LÍÐUR ÞÉR VEL
www.bluelagoon.is
Sjáðu meira með snjallsímanum þínum.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
B
L
A
5
55
09
0
6/
11
FINNLAND Jyrki Katainen hlaut í
gær stuðning 118 þingmanna gegn
72 til myndunar sex flokka ríkis-
stjórnar, sem hann boðaði í síðustu
viku að yrði mynduð.
Ásamt Þjóðstjórnarflokki Katai-
nens, sem er hægriflokkur, eiga
Sósíaldemókratar, Vinstribanda-
lagið, Græningjar, Sænski þjóðar-
flokkurinn og Kristilegir demó-
kratar aðild að stjórninni.
Stefna stjórnarflokkanna sex er
afar mismunandi, því þarna eru
innbyrðis jafnt hægri sem vinstri
flokkar. Meginforsenda stjórnar-
samstarfsins virðist hafa verið
sú helst að halda Sönnum Finnum,
hinum umdeilda stjórnmálaflokki
vinstri þjóðernissinna, utan við
stjórnina.
Sannir Finnar fengu mikið fylgi
í þingkosningunum, sem haldnar
voru fyrir tveimur mánuðum. Þeir
eru nú þriðji stærsti flokkurinn á
þingi, með 39 þingmenn af 200,
næst á eftir Þjóðstjórnarflokki
Kaitanens, sem er með 44 þing-
sæti, og Sósíaldemókrötum, sem
eru með 42 þingmenn.
Sannir Finnar hafa staðið hart
gegn því að Finnland taki þátt í
kostnaði við fjárhagslegar björg-
unaraðgerðir Evrópusambandsins
vegna skuldavanda Grikklands og
fleiri evruríkja.
Öll aðildarríki Evrópusam-
bandsins þurfa að standa sameig-
inlega að þeim björgunaraðgerð-
um, þannig að andstaða finnsku
stjórnarinnar, væru Sannir Finn-
ar innanborðs, myndi hleypa þeim
aðgerðum í uppnám.
Katainen sagði stjórnarmyndun-
arviðræðurnar hafa verið erfiðar
og viðurkenndi að líklega verði
stjórnarsamstarf flokkanna sex
ekki auðvelt.
Tveir þingmanna Vinstri-
bandalagsins greiddu atkvæði
gegn stjórninni í gær, þrátt fyrir
að flokkur þeirra eigi aðild að
stjórnarsamstarfinu.
Tarja Halonen, forseti Finn-
lands, sagði í ávarpi sínu til nýju
stjórnarinnar að hún yrði að taka
tortryggni kjósenda, sem kom
fram í þingkosningunum fyrir
tveimur mánuðum, alvarlega.
Auk Sannra Finna er Miðflokk-
urinn utan stjórnarinnar, en Mið-
flokkurinn er bændaflokkur á
miðju pólitíska litrófsins. Hann
fékk 35 þingsæti í kosningunum
og er þar með fjórði stærsti flokk-
urinn á þingi. gudsteinn@frettabladid.is
Sex flokka
stjórnin tekin
við völdum
Tveimur mánuðum eftir þingkosningar tókst Jyrki
Katainen, leiðtoga Þjóðstjórnarflokksins í Finn-
landi, að koma saman ríkisstjórn. Hinir umdeildu
Sönnu Finnar eru ekki með í stjórnarsamstarfinu.
NÝJU RÁÐHERRARNIR Jyrki Katainen forsætisráðherra ásamt nokkrum af meðráð-
herrum sínum á leið til forsetahallarinnar í Helsinki í gær. NORDICPHOTOS/AFP
er sá fjöldi
þingmanna
sem styður
hina nýju sex flokka ríkis-
stjórn Jyrki Katainen. 72 þing-
menn eru í stjórnarandstöðu.
118
TVÍBURATJARNIR Þar sem Tvíbura-
turnarnir í New York stóðu eru nú
þessar tvíburatjarnir til minningar um
hryðjuverkin 2001. NORDICPHOTOS/AFP
LÖGREGLUMÁL Karlmaður á fer-
tugsaldri sem situr nú í gæslu-
varðhaldi vegna fíkniefnasmygls
var með fjögur kíló af amfetamíni
í ferðatösku þegar hann var tekinn
við reglubundið eftirlit í Sunda-
höfn.
Maðurinn, Íslendingur á fer-
tugsaldri, sem verið hafði skip-
verji á Goðafossi, skipi Eimskipa-
félagsins, var handtekinn við
komu skipsins hingað til lands
13. júní síðastliðinn. Hann var
úrskurðaður í gæsluvarðhald til
5. júlí, að kröfu lögreglustjórans á
höfuðborgarsvæðinu. - jss
Skipverjinn á Goðafossi:
Amfetamínið
var í ferðatösku