Fréttablaðið - 23.06.2011, Page 12
23. júní 2011 FIMMTUDAGUR12
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
FRÉTTASKÝRING: Fiskveiðistjórn og byggðaþróun
Samþykkt var í
sjávarútvegs- og land-
búnaðarnefnd Alþingis á
þriðjudag að óskað yrði
eftir við sjávarútvegs-
ráðuneytið að gerð verði
úttekt á áhrifum fisk-
veiðistjórnunarkerfisins
á íslenskt samfélag allt
frá árinu 1991. Áhrif á
íbúa og byggðaþróun
verði skoðuð auk
annarra samfélagslegra
þátta.
Greinargerð sérfræðingahóps
sjávarútvegsráðuneytisins um
hagræn áhrif breytinga á fisk-
veiðistjórnuninni voru til umfjöll-
unar á fundinum. Eins og kunnugt
er gefur sérfræðingahópurinn lítið
fyrir breytingatillögurnar flestar
hverjar, sem felast í frumvörpum
Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs-
ráðherra.
Gerð úttektarinnar er runnin
undan rifjum þeirra Lilju Raf-
neyjar Magnúsdóttur, þingmanns
Vinstri grænna og formanns
nefndarinnar, og Ólínu Þorvarð-
ardóttur, þingmanns Samfylking-
arinnar og varaformanns nefndar-
innar.
En er þörf á nýrri úttekt á sam-
félagslegum og hagrænum áhrif-
um kvótakerfisins?
Með og á móti
Rök Lilju Rafneyjar og Ólínu fyrir
gerð úttektarinnar er að æskilegt
sé að fara í slíka vinnu í tengslum
við fyrirhugaðar breytingar á fisk-
veiðistjórnuninni.
Einar K. Guðfinnsson, þing- og
nefndarmaður úr röðum Sjálf-
stæðisflokksins, telur að um
örvæntingarfulla tilraun sé að
ræða til að byggja undir breyt-
ingatillögurnar og flest það sem
rannsaka skal hafi komið fram
áður. „Mikið af þessu er hægt að
finna í úttekt sérfræðihóps ráðu-
neytisins, eins var unnin góð
úttekt um stjórn fiskveiða og sam-
félagsmál fyrir Auðlindanefndina
árið 2000. Þá eru ónefndar upp-
lýsingar sem Fiskistofa hefur yfir
að ráða, rannsóknir Byggðastofn-
unar svo eitthvað sé talið.“ Einar
segir hins vegar gagnrýniverðast
að tillaga um úttektina komi fram
þegar frumvörp um breytingar
liggja fyrir en slík vinna hefði átt
að fara fram áður en breytingatil-
lögurnar voru unnar.
Lilja Rafney segir að vissu-
lega séu miklar upplýsingar til
en því mikilvægara að draga alla
þá vitneskju saman á einn stað til
að yfirsýn náist. Um niðurstöð-
ur hagfræðiúttekta á samhengi
byggðaröskunar og fiskveiði-
stjórn-unar síðustu ára, þar sem
fáir hagfræðingar sjá afdráttar-
laust samband á milli, segir Lilja
Rafney að ekki þurfi hagfræðing
til að sýna fram á það samhengi.
„Vitneskjan um afleiðingar kvóta-
kerfisins liggur fyrir. En það er
ekki sama með hvaða gleraugum
menn skoða þessi mál. Þar eru
engin ein sannindi og þeir þekkja
þetta manna best sem hafa lifað og
starfað í þessu umhverfi. Það þarf
enginn hagfræðingur að segja mér
eitt eða neitt í þessum efnum. Ég
þekki þetta á eigin skinni eins og
margir íbúar landsbyggðarinn-
ar. Tölur á blaði geta aldrei sagt
fólki til um hvaða áhrif þetta kerfi
hefur haft á líf þess.“
Flókið samspil
Sveinn Agnarsson, forstöðumað-
ur Hagfræðistofnunar Háskóla
Íslands, vann úttektina um
stjórnun fiskveiða fyrir Auðlinda-
nefndina árið 2000, sem Einar
vísar til. „Það er stjórnmálanna
að meta það hvort þörf sé á svona
úttekt,“ segir Sveinn. „Þetta hefur
verið rannsakað og töluvert verið
skrifað, ekki bara frá hendi hag-
fræðinga heldur einnig mann-
fræðinga, félagsfræðinga og
landfræðingar hafa líka komið að
þessu. Á löngum tíma verður til
mikið af efni og kannski er tilefni
til að taka það saman og gera eitt-
hvað nýtt því til viðbótar.“
Sveinn segir að samband fisk-
veiðistjórnunar og byggðarösk-
unar sé flókið. „Margir þættir
snertast þegar byggðaþróun er
skoðuð og það getur verið erfitt
að draga eitthvað eitt þar út sem
orsakavald.“
Þjóðhagsstofnun sendi frá sér
skýrslu árið 2000 sem ber heitið
Stjórnkerfi fiskveiða og byggða-
þróun. Þar segir að samband milli
búsetuþróunar og kvótakerfisins
sé afar flókið. Því sé ósvarað hver
sé þáttur kerfisins í þeirri fólks-
fækkun sem sannarlega hafði átt
sér stað í mörgum útgerðarpláss-
um til þess tíma. Enn erfiðara
sé að fullyrða nokkuð um hvort
annað stjórnkerfi fiskveiða hefði
reynst betur hvað varðar byggð-
aröskun.
Til þessarar niðurstöðu vitn-
aði Birgir Þór Runólfsson, dósent
við Hagfræðideild HÍ, í mars síð-
astliðnum á málþingi áhugahóps
háskólamanna um sjávarútvegs-
mál. Þar kynnti hann rannsóknir
sínar þar sem hann fann þess ekki
stað að kvótakerfið hefði haft bein
áhrif á byggðaþróun. Þó beindi
hann rannsóknum sínum sérstak-
lega að Vestfjörðum sem þráfald-
lega eru nefndir í umræðu um
fiskveiðistjórnun og meinta upp-
lausn byggða henni fylgjandi.
Hann sagði að Vestfirðingum
hefði fækkað stöðugt frá stríðs-
lokum, jafnt fyrir og eftir innleið-
ingu fiskveiðistjórnunarkerfisins.
Sigríður Ólafsdóttir, sérfræð-
ingur á sviði auðlindastjórnunar
haf- og strandveiða og stunda-
kennari við líf- og umhverfissvið
HÍ, gagnrýndi rannsóknir Birgis
í grein í Fréttatímanum í apríl og
véfengdi niðurstöður hans. Hún
sagði gögn Birgis hvorki sanna
né afsanna tengsl innleiðingar
kvótakerfisins og byggðaröskun-
ar. Þau sýndu einvörðungu marg-
slunginn veruleika sjávarbyggð-
anna. Hún hnykkti sérstaklega á
því að niðurstaðan hefði kannski
orðið önnur ef aðferðum ann-
arra fræðigreina en hagfræðinn-
ar hefði verið beitt, sérstaklega
félagsfræðinnar.
Skammur tími til stefnu
Lilja Rafney segir að sjávarút-
vegsráðuneytið muni bera ábyrgð
á því hvernig rannsóknarnefnd-
in verði skipuð. Það verði svo
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, sem kveði
endanlega upp úr um það hverjir
verða fengnir til að vinna verkið.
Lilja segir að hún sem formaður
nefndarinnar og varaformaður
hennar muni gera sínar tillögur
um nefndarmenn, ásamt fleirum.
Tímarammi vinnunnar er
þröngur. Lagt er út frá því að nið-
urstöður liggi fyrir áður en þing
kemur saman í október.
„Sú skoðun hefur heyrst að kvótakerfið og frjálst framsal aflaheimilda
hafi valdið hluta af byggðaröskun síðustu ára og stefnt byggð á mörgum
útgerðarstöðum, einkum hinum smærri, í verulega hættu. Fyrirliggjandi
gögn benda hins vegar ekki til þess að þessi skoðun eigi við sterk rök að
styðjast og sé að minnsta kosti mikil einföldun á því sem gerst hefur.
■ Í fyrsta lagi er ljóst af þeim gögnum er fyrir liggja að miklar sveiflur hafa
lengi einkennt sjávarútveg og meðal annars komið fram í breytilegum afla
og hag einstakra byggða. Ef á heildina er litið er ekki að sjá að tilkoma
kvótakerfisins og síðan frjáls framsals hafi markað þáttaskil í þessu efni.
■ Í öðru lagi eru engin merki þess, sé litið á landið í heild, að útgerð eða
vinnsla séu að flytjast frá landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins. Skipu-
lagsbreytingar í átt til aukinnar hagkvæmni hafa hins vegar leitt til þess að
útgerð hefur eflst sums staðar en dalað annars staðar. Óljóst er þó hvaða
þátt kvótakerfið gæti átt í þessari þróun sem getur verið hagkvæm fyrir
þjóðarbúið í heild þótt henni fylgi félagsleg röskun. Hin pólitíska spurning
er hvort eigi að hamla gegn þessum breytingum þótt allar líkur séu til
þess að þær nái fram að ganga fyrr eða síðar af hagkvæmnisástæðum.
■ Í þriðja lagi hafa átt sér stað miklar breytingar á mörgum atriðum í starfs-
umhverfi útgerðarinnar á síðustu árum sem ýtt hafa undir samþjöppun
og tilflutning aflaheimilda milli byggða. Þar má nefna tæknivæðingu og
tilkomu frystitogara, bættar samgöngur, hlutafjárvæðingu og viðleitni
fyrirtækja til að dreifa þeirri áhættu sem óhjákvæmilega fylgir ætíð fisk-
veiðum. Minni staðir eru að auki ekki færir um að bjóða alla þá þjónustu
sem fylgir nútíma útgerð.
Sveinn Agnarsson, Stjórnun fiskveiða á Íslandi, Fylgiskjal 2 með áliti
Auðlindanefndar, kafli 6.3
Ályktanir úr skýrslu Auðlindanefndar
Þörf á nýrri byggðaúttekt véfengd
Í HÖFN Vikum saman hafa þing og þjóð tekist á um tillögur um breytingar á stjórn fiskveiða. Ljóst er þó að deilurnar til þessa eru aðeins upptakturinn að því sem verður á
vetri komanda. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Bókaðu gistingu á www.hoteledda.is eða í síma 444 4000
13 HÓTEL
ALLAN HRINGINN
Veitingastaðir á öllum hótelum • Alltaf stutt í sund • Vingjarnleg þjónusta
Gistiverð frá 5.700 kr. á mann • Fimmta hver nótt frí
BROSANDI ALLAN HRINGINN