Fréttablaðið - 23.06.2011, Page 18
23. júní 2011 FIMMTUDAGUR18
Umsjón: nánar á visir.is
Talið er að kínversk stjórnvöld
hafi dregið úr kaupum á banda-
rískum ríkisskuldabréfum á
fyrstu fjórum mánuðum ársins og
séð hag sínum borgið með kaupum
á evrópskum ríkisskuldabréfum.
Breska viðskiptablaðið Financi-
al Times segir þetta í samræmi
við yfirlýsingar kínverskra ráða-
manna þess efnis að stjórnvöld
ætli að styðja fjárhagslega við þau
Evrópuríki sem glími við fjárhags-
erfiðleika.
Kínverski seðlabankinn hefur
keypt bandarísk ríkisskuldabréf
viðstöðulítið síðastliðin sex ár og
var í mars síðastliðnum stærsti
lánardrottinn Bandaríkjanna
með þrjú þúsund milljarða dala af
skuldabréfum í hirslum sínum.
Það var breski bankinn Stand-
ard Chartered sem vann mat á
fjárfestingum kínverskra stjórn-
valda upp á síðkastið. Gögn bank-
ans benda til að gjaldeyrisforði
Kínverja hafi aukist um tvö hundr-
uð milljarða Bandaríkjadala á
fyrstu fjórum mánuðum ársins.
Stephen Green, aðalhagfræðing-
ur Standard Chartered í málefnum
Kína, segir í samtali við Financial
Times ævinlega erfitt að átta sig
á fjárfestingum kínverska seðla-
bankans. Hann fjárfesti í gegnum
fjármálastofnanir utan landsteina,
svo sem í London og Hong Kong í
þeim tilgangi að fela slóð fjárfest-
inga sinna. - jab
Kínverja sagðir hættir að kaupa bandarísk skuldabréf:
Snúa sér til Evrópu
NÁÐ Í PENINGA Kínverjar hafa
síðastliðin sex ár verið iðnir við kaup á
bandarískum ríkisskuldabréfum. Sá tími
kann að vera að baki. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
ÖRYGGISVIÐVÖRUN
VEGNA UVEX FUNRIDE SKÍÐAHJÁLMA
UVEX VILL KOMA ÞVÍ Á FRAMFÆRI AÐ VIÐ REGLUBUNDIÐ
GÆÐAEFTIRLIT KOM Í LJÓS AÐ FUNRIDE-SKÍÐAHJÁLMAR
GETA VERIÐ GALLAÐIR.
Nánari upplýsingar á: www.uvex-sports.de/en/recall
NÁÐU ÁRANGRI. ÚTILÍF – HOLTAGÖRÐUM. GLÆSIBÆ. KRINGLUNNI. SMÁRALIND. WWW.UTILIF.IS
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A
.I
S
U
TI
5
54
37
0
6/
11
MIKILVÆG
Við hjá UVEX tökum slagorðið okkar „protecting people“ (til verndar fólki) alvarlega. Sem framleiðendur
gæðavöru viljum við biðjast innilega afsökunar á óþægindunum. Við þökkum aðstoðina og vonum að þú
hafir sömu trú á vörum okkar eftir sem áður.
Framleiðslugallinn getur dregið úr högg-
deyfingu og brotstyrk á lykilhlutum hjálms-
ins (við loftop, hnoð og samskeyti) sem
getur valdið alvarlegum áverkum við fall.
Vinsamlega hættu að nota hann
og skilaðu honum í Útilíf í Glæsibæ
gegn fullri endurgreiðslu á kaupverðinu.
Skíðahjálmurinn þinn er Funride-hjálmur
ef hann ber þetta merki:
Framkvæmdastjórn Evr-
ópusambandsins (ESB)
er sögð íhuga að innleiða
kynjakvóta í stjórnum
banka og fjármálafyrir-
tækja.
Breska dagblaðið The
Guardian segir 130 blað-
síðna drög frá Michel
Barnier, yfirmanni innri
markaðsmála hjá ESB,
hafa gengið manna á
milli innan breska fjár-
málageirans. Þar sé lagt til að
þriðjungur stjórnarmanna verði
konur. Barnier segir í samtali við
blaðið að kynjakvótar gætu komið
í veg fyrir hjarðhegðun í stjórnum
banka og fjármálafyrirtækja sem
hafi leitt til fjármálakreppunnar.
Guardian segir kynjakvótana
geta valdið titringi innan evr-
ópsks fjármálageira enda fáir
bankar sem uppfylli skilyrðin sem
lögð eru til í drögunum. Í Bret-
landi eru flestar konur í stjórn
HSBC, eða fjórðungur stjórnar-
manna. Ein kona er bankastjóri
í Bretlandi. Það er Ana Patricia
Botín, bankastjóri Santander.
Hún var áður stjórnarformaður
Banco Español de Crédito á Spáni.
Faðir hennar er spænski
milljarðamæringurinn
Emilio Botín, stjórnar-
formaður Santander-
bankasamstæðunnar.
Nokkrar konur eru í
æðstu stöðum í fjármála-
fyrirtækjum hér. Birna
Einarsdóttir er banka-
stjóri Íslandsbanka, og
Hanna Björk Ragnars-
dóttir bankastjóri Spari-
bankans, en verið er að
koma honum á laggirnar. Þá er
Elín Jónsdóttir forstjóri Banka-
sýslu ríkisins, sem fer með hlut
ríkisins í yfirteknum bönkum og
sparisjóðum. Þar að auki er Krist-
ín Pétursdóttir forstjóri Auðar
Capital. Halla Tómasdóttir er
stjórnarformaður fyrirtækisins.
Til viðbótar eru sjö af átján
stjórnarmönnum stóru bankanna
þriggja konur. Hæst er hlutfall-
ið í stjórn Landsbankans, þrjár
af fimm stjórnarmönnum. Þá er
Monica Caneman stjórnarfor-
maður Arion Banka og Guðrún
Johnsen varaformaður stjórnar.
Fæstar konur eru í stjórn Íslands-
banka, eða tvær af sjö stjórnar-
mönnum. - jab
ESB vill fjölga konum í stjórnum fjármálafyrirtækja:
Breskir bankamenn
óttast tillögurnar
Bandaríski seðlabankinn tilkynnti
í gær að hann muni kaupa síðasta
skammtinn af ríkisskuldabréfum
í lok mánaðar í næstu viku. Eftir
það muni ljúka þessum stuðningi
hins opinbera við banka og fjár-
málafyrirtæki þar í landi sem
varað hefur síðastliðin þrjú ár.
Bankastjórnin vísaði til þess í
tilkynningu í gær að þessi hjálpar-
lína seðlabankans hafi verið dreg-
in til baka þar sem vísbendingar
séu um að efnahagslífið sé að taka
við sér þótt gangurinn sé hægari
en áður var reiknað með. Nú er
gert ráð fyrir 2,7 til 2,9 prósenta
hagvexti á árinu í stað allt að 3,3
prósenta vaxtar. Að sama skapi
hefur dregið verulega úr vænting-
um um allt að 4,2 prósenta hagvöxt
á næsta ári.
Alþjóðlegar sveiflur hafa helst
sett strik í reikning bankastjórn-
arinnar, svo sem verðhækkun á
raforkuverði og hrávöru auk þess
sem jarðskjálftinn í Japan í mars
hefur sitt að segja en hann olli
töluverðri truflun hjá bílafram-
leiðendum. Verðlag hefur lækk-
að nokkuð frá áramótum og gerir
bandaríski seðlabankinn ráð fyrir
að verðbólga fari ekki mikið yfir
tvö prósent á árinu.
Þá gera spár bankans ráð fyrir
að draga muni út atvinnuleysi
næstu misseri þótt það hafi auk-
ist til skamms tíma. Atvinnuleysi
í Bandaríkjunum mældist 9,1 pró-
sent í síðasta mánuði. Á sama tíma
drógu fyrirtæki vestanhafs úr
ráðningum.
Þótt seðlabankinn hafi hætt
kaupum á ríkisskuldabréfum er
ekki þar með sagt að hann ætli
að sleppa hagkerfinu alveg út í
lífið. Bandarískir fjölmiðlar segja
að seðlabankinn muni enn hafa
slaka á peningamálastefnunni og
halda stýrivöxtum niðri við núll-
ið í langan tíma. Bandaríska stór-
blaðið New York Times hefur eftir
sérfræðingum á fjármálamarkaði
að ekki séu líkur á hækkun stýri-
vaxta fyrr en einhvern tíma á
næsta ári. jonab@frettabladid.is
Hjálpardekk
losað af vestra
Bandaríski seðlabankinn hefur dregið úr stuðningi
við banka og fjármálafyrirtæki. Nokkuð hefur
dregið úr væntingum um hagvöxt vestra á árinu.
SAT FYRIR SVÖRUM Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, skýrði hags-
tjórnarstefnu bankans og framtíðarhorfur í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ANA PATRICIA
BOTÍN
Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði
á 120 stöðum um land allt.
Nánari upplýsingar á
visir.is/dreifing
STIG ER VÍSITALA BYGGINGARKOSTNAÐAR um miðjan mánuðinn. Hún hefur hækkað um
2,3 prósent á milli mánaða. Hækkun launa vegna kjarasamninga Samtaka atvinnulífsins og aðildarfélaga
Alþýðusambands Íslands skýra hækkunina að miklu leyti, samkvæmt upplýsingum Hagstofu Íslands.
109,9