Fréttablaðið - 23.06.2011, Page 24
24 23. júní 2011 FIMMTUDAGUR
Það er umhugsunarefni hvers vegna ekki er gert meira af
því að koma á framfæri ein-
földum upplýsingum varðandi
það sem hefur verið að gerast
í sjávarútveginum hér á landi
á síðustu tveim áratugum. Af
sögulegum ástæðum og vegna
mikilvægis greinarinnar búa
fáar atvinnugreinar við eins
nákvæma skráningu á megin
hagstærðum sínum og sjávar-
útvegurinn. Á meðfylgjandi
mynd er sett fram hvernig
nokkrar stærðir í greininni hafa
þróast frá árinu 1991 eða frá
þeim tíma sem fiskveiðistjór-
nunarkerfið hefur verið í núver-
andi horfi. Þær tölulegu upplýs-
ingar sem hér eru settar fram
byggja allar á gögnum frá Hag-
stofu Íslands og Fiskistofu.
1. Starfandi í greininni, sjó-
mönnum og landverkafólki,
hefur fækkað um rúmlega
50% eða úr 15.600 árið 1994
og í 7.300 árið 2008 (fjölgaði
aðeins aftur 2009).
2. Á sama tíma stendur útflutn-
ingsverðmæti greinarinnar
nánast í stað eða vex örlítið í
krónum talið á verðlagi ársins
2008 eins og sýnt er á mynd-
inni. Sé þróunin hins vegar
skoðuð í erlendri mynt (SDR)
þá stendur verðmætið nánast
í stað.
3. Það vekur athygli að á þessum
árum minnkar afli úr sjó úr
því að vera 700.000 tonn, talið
í þorskígildum, í það að vera
500.000 tonn eða um 29%.
Hvaða ályktanir er hægt að draga
af þessar þróun?
• Launahlutfall í greininni
hefur lækkað mun minna en
sem nemur fækkun starfa
(1997 – 2008 fækkar starfandi
um rúmlega 48% en launahlut-
fall lækkar um tæplega 19%).
Það þýðir að raunlaun þeirra
sem vinna við greinina hafa
hækkað mikið á tímabilinu.
Það er hægt að fá það staðfest
í gögnum frá Hagstofunni sem
sýna að á tímabilinu hafa laun
í sjávarútvegi hækkað veru-
lega umfram meðaltal. Þetta
þýðir einnig að ef greinin væri
með svipaðan mannafla og var
1991-1997 væru laun á starfs-
mann í greininni 36% lægri en
þau eru í dag miðað við sama
launahlutfall og þá var en
48% miðað við launahlutfallið
2008.
• Hærra afurðaverð hefur unnið
upp samdráttinn í afla og gert
það að verkum að samdráttur-
inn hefur ekki komið fram í
lægri útflutningsverðmætum.
Þessa hækkun er ekki hægt
að skýra nema að hluta með
almennri hækkun á afurða-
verði erlendis. Verulegur
hluti hækkunarinnar er kom-
inn til vegna markaðsdrifins
þróunar starfs þar sem virðis-
keðjan er látin vinna saman
frá veiðum og til neytandans
og leitað er inn á þá markaði
sem greiða hæst verð.
Markaðsdrifinn þekkingariðnaður
Samandregið má segja að á
tímabilinu hafi orðið bylting í
sjávarútvegi á Íslandi. Greinin
hefur á tveim áratugum breyst
úr veiðadrifnum framleiðsluiðn-
aði í markaðsdrifinn þekkingar-
iðnað.
Þetta má öllum vera ljóst
sem fylgst hafa með þróun-
inni og er hægt að styðja með
margvíslegum rökum. Markaðs-
drifin vinnsla sem byggir á nýj-
ustu tækni og þekkingu þýðir að
væntanlega hefur fækkun starfa
í veiðum og vinnslu verið mætt
að einhverju leyti með fjölgun
afleiddra starfa sérfræðinga
í stuðningsgreinum atvinnu-
vegarins.
Að öllum líkindum er
um ræddur tími einnig lengsta
tíma bilið í nútíma útflutnings-
sögu sjávarafurða á Íslandi
sem greinin hefur ekki þurft á
stuðningsaðgerðum ríkisvalds-
ins að halda; þrátt fyrir allt
sem á hefur gengið. Það er til
að mynda skoðun undirritaðs að
greinin sem heild geti unnið sig
út úr þeim hremmingum sem
fylgdu bankahruninu.
Að verða við kalli tímans
Ef litið er til þess að grunn-
þættirnir í íslenskum sjávar-
útvegi séu mannafli, þekking,
fjármagn og aðgangur að hrá-
efni þá má varpa fram eftir-
farandi kenningu: Eftir 1990
hefur þekking og fjárfestingar
í tæknibúnaði og markaðsstarfi
leyst mannafla í auknum mæli
af hólmi við að skapa aukin
verðmæti úr takmarkaðri auð-
lind.
Áður hefur komið fram að
laun í greininni hafa hlut-
fallslega hækkað verulega á
tímabilinu. Það er síðan sjálf-
stætt rannsóknar efni að kanna
hvort þessi kenning stenst og
þá í hvaða hlutföllum þetta
hefur gerst ásamt því að kanna
hvaða störf hafa orðið til í stoð-
greinum; það er hvort sjávar-
útvegurinn hefur ekki brugðist
við kalli tímans og fært greinina
inn í umhverfi upplýsinga- og
þekkingarsamfélagsins.
Það væri glapræði að gera
grundvallar breytingar á
fyrirkomu lagi sjávarútvegs á
Íslandi án þess að þetta sé rann-
sakað og vonandi verður tíminn
sem vinnst við að stóra kvóta-
frumvarpið er tekið af dagskrá
Alþingis notaður vel hvað þetta
varðar.
Hærra afurðaverð hefur unnið upp sam-
dráttinn í afla og gert það að verkum að
samdrátturinn hefur ekki komið fram í
lægri útflutningsverðmætum.
1991 1994 1997 2001 2004 2008
200
160
120
80
40
0
16.000
12.000
8.000
4.000
0
Afli í þorskígildum
Útflutningstekjur; milljarðar
700.000 tonn
500.000 tonn
Fjöldi starfandi
Sjávarútvegur 1991-2008
Útflutningstekjur, fjöldi starfa og afli í þorskígildum
Þróun í sjávarútvegi – stóra myndin frá 1991-2008
Sjávarútvegsmál
Jóhannes Geir
Sigurgeirsson
sérfræðingur hjá
fyrirtækjaráðgjöf Saga
Fjárfestingarbanka
Nicotinell er samstarfsaðili
Krabbameinsfélagsins
Nicotinell nikótínlyf fást án lyfseðils og eru notuð sem hjálparefni til þess að hætta eða draga úr reykingum. Til að ná sem bestum árangri skal ávalt fylgja leiðbeiningum í fylgiseðlinum með lyfinu. Skammtar af Nicotinell lyfjatyggigúmmíi mega aldrei
vera stærri en 25 stykki á dag. Þeir sem hafa fengið ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, fengið hjartaáfall nýlega, óstöðuga eða versnandi hjartaöng, að meðtöldu Prinzmetal afbrigði hjartaangar, alvarlega hjartsláttaróreglu eða
heilablóðfall nýlega, eiga ekki að nota Nicotinell nikótínlyf. Sjúklingar með háþrýsting sem ekki hefur náðst stjórn á, stöðuga hjartaöng, sjúkdóm í heilaæðum, teppusjúkdóm í útlægum slagæðum, hjartabilun, sykursýki, ofstarfsemi skjaldkirtils eða
krómfíklaæxli, auk alvarlega skertrar nýrna- og/eða lifrarstarfsem skulu gæta varúðar við notkun á Nicotinell. Börn undir 15 ára aldri, þungaðar konur og konur með barn á brjósti skulu ekki nota lyfið nema að læknisráði.
Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhraun 12a, 210 Garðabæ.
-49%
-45%
-52%
-21%
-23%
-34%
* Meðalverð á kartoni í verslunum 10-11, Shell, N1, Olís, Hagkaup, Krónan, Samkaup og Nóatún. Könnun gerð 26. maí 2011
**Verðkönnun gerð í 14 apótekum og apótekskeðjum 5., 16.-19. og 26. maí 2011
***Í flestum tilfellum nægir að nota á bilinu 8-12 tyggjó á dag. Mest skal nota 25 stk. af 2 mg og 15 stk. af 4 mg
Verðsamanburður á Nicotinell Fruit og þremur vinsælustu tegundum sígaretta
Það er ódýrara að nota
Nicotinell Fruit heldur
en að reykja!52%SPARNAÐUR!
34%
SPARNA
ÐUR!