Fréttablaðið - 23.06.2011, Qupperneq 28
23. júní 2011 FIMMTUDAGUR2
Þetta eru aðallega nærföt, sund-
föt og samfellur,“ segir Gígja Ísis
um útskriftarlínuna sem vakti
mikla athygli á útskriftarsýningu
fatahönnunarnema LHÍ á dögun-
um. „Svo er ég líka með kjóla og
jakka að ógleymdum fylgihlut-
unum, sem eru sokkar, hanskar
og skór.“
Skór eru sérstakt áhugaefni
Gígju Ísisar og hlaut hún styrk
frá Nýsköpunarsjóði námsmanna
til að þróa hinn íslenska sauð-
skinnsskó yfir í nútímalegt form.
„Það er þriggja mánaða verkefni
sem ég ætla að vinna að í sumar,“
segir hún. „Ég hef mikinn áhuga
á að gera skó og langar að fara
út í skóhönnun. Þegar ég var að
vinna útskriftarlínuna og gera
skóna við hana fékk ég þessa
hugmynd um sauðskinnsskóna
og ákvað að sækja um styrk til að
þróa hana, sem ég svo fékk. Mér
finnst sauðskinnsskórnir kjörnir
til að rannsaka og vinna með,
þar sem þeir eru séríslenskt
fyrirbæri.“
Gígja Ísis segist eiga í við-
ræðum við framleiðanda um
framleiðslu skónna,
en það sé ekki komið
á það stig að hún
vilji gefa upp nein
nöfn. „Þetta er allt í
mótun ennþá, svo ég
vil ekki segja meira í
bili.“
Gígja Ísis stefnir á
að fara í starfsnám
erlendis og er á kafi í
umsóknavinnu þessa
dagana. „Ég ætla að
reyna að komast í
starfsnám á næstu
misserum og síðar
mun ég svo sérhæfa mig
innan fatahönnunar-
geirans og þykir líkleg-
ast að skóhönnun verði
fyrir valinu,“ segir hún, en
henni liggur ekki lífið
á, því á útskriftar-
daginn 11. júní varð
hún 22 ára. Hefur
fatahönnun alltaf
vakið áhuga henn-
ar? „Ég var alltaf
mjög skapandi sem
krakki, en fékk ekki
áhuga á fatahönn-
un fyrr en ég var
17 ára. Þá var ég
í Danmörku um
tíma og fór á nám-
skeið hjá dönsk-
um hönnuði, kol-
féll fyrir faginu
og eftir það varð
ekki aftur snúið.“
fridrikab@frettabladid.is
Jakki, samfella og sokkar
úr útskriftarlínu Gígju
Ísisar.
Hönnun Gígju Ísisar vakti mikla athygli á útskriftarsýningu fatahönnunarnema við
LHÍ. MYND/BRYNJAR SNÆR
Gígja Ísis Guðjónsdóttir fór á námskeið
hjá dönskum fatahönnuði og kolféll fyrir
faginu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þróar nýja sauðskinnsskó
Gígja Ísis Guðjónsdóttir útskrifaðist úr fatahönnunardeild LHÍ nýlega. Hún hefur mörg járn í eldinum og
vinnur nú að því að rannsaka og þróa hinn íslenska sauðskinnsskó og hanna nútímaútgáfur af honum.
Íslenskir fatahönnuðir í miðbænum hafa opið til kl. 21 í kvöld í tilefni
Jónsmessunætur. Verslanirnar Birna, Forynja, Gust, Hanna, Ígló, Kalda, Kiosk,
Kurl, Mundi, og Nostrum verða með nýjar sumarvörur og léttar veitingar.
Sumar-
útsalan
er hafin
30 - 70%
afsláttur
Lín Design Laugavegi 176 Sími 5332220 www.lindesign.is
Rýmum fyrir
nýjum vörum
30% afsláttur af öllu í verslun
sendum frítt úr vefverslun
www.lindesign.is
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460
www.belladonna.is
vertu vinur á facebook
Erum fluttar í
Skeifuna 8
Alltaf
eitthvað
nýtt og
spennandi
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki