Fréttablaðið - 23.06.2011, Síða 29
FIMMTUDAGUR 23. júní 2011 3
Marínó Þór Jakobsson
É g nota sólgleraugu þegar vel viðrar,“ segir Marínó Þór Jak-
obsson, fótboltakappi hjá Fjölni
í Grafarvogi. „Þessi Ray Ban
gleraugu keypti ég á flugvelli í
London, leist bara svo vel á þau.
Annars á ég ekki mörg. Ég nota
sólgleraugu frekar vegna þess að
ég þarf þess en fyrir útlitið, til
dæmis þegar ég er að keyra.“
Hvað ertu að gera í sumar?
„Æfa fóbolta og svo er ég véla-
maður í Gufuneskirkjugarði, en
ég mun sennilega ekki nota Ray
Ban gleraugun í vinnunni. Ef
veðrið verður áfram svona gott þá
splæsi ég í ódýrari gleraugu til að
nota í vinnunni í sumar.“
Læturðu sjá þig með sólgler-
augun innandyra? „Nei, alls ekki,“
segir hann hlæjandi. „Það þykir
ekki svalt.“
Jói Kjartans
É g fæ ofbirtu í augun af eyðslu Íslendinga, þessi sólgleraugu
fékk ég í Góða hirðinum á 50 krón-
ur,“ segir Jói Kjartans, ljósmyndari
og grafískur hönnuður hjá hönnun-
arstúdíóinu Narfa, en hann kallar
sólgleraugun „skuldagleraugun“.
„Ég set þau upp þegar kortið er
farið að ofhitna, til að minna mig
á,“ segir hann hlæjandi. „Ég á ekki
mörg sólgleraugu og er duglegur
að týna þeim. Síðustu sólgleraugu
sem mér þótti vænt um var ég með í
láni. Ég þarf því að grípa til skulda-
gleraugnanna í sumar.“
Hvað ertu að gera í sumar?
„Núna er ég að skjóta Gus Gus
myndband á Eyrarbakka og fer til
Hróarskeldu í næstu viku að vinna
verkefni fyrir Lifeproject. Sam-
hliða því verð ég að sýna í Skotinu
á Ljósmyndasafni Reykjavíkur.“
Lætur þú sjá þig með sólgeraugu
innandyra? „Nei.“
Áskell Harðarson
Þ etta eru næst-uppáhaldssól-gleraugun mín, pabbi stal
uppáhaldssólgleraugunum mínum
og tók þau með sér til Spánar,“
segir Áskell Harðarson, plötu-
snúður og búðarmaður. „Þessi
eru úr Spúútnik og súperkúl. Ég á
svona fimm, sex stykki, flest keypt
þegar ég er að ferðast, það er alltaf
gaman að kaupa sér sólgleraugu.“
Hvað ertu að gera í sumar?
„Ég er að vinna í Spúútnik og er
að plötusnúðast út um allt eins og
brjálæðingur núna,“
Notarðu sólgleraugu þegar þú
plötusnúðast? „Nei, svo gott er það
nú ekki,“ segir hann hlæjandi.
Læturðu sjá þig með sólgler-
augu innandyra? „Nei, ég er mjög
viðkvæmur fyrir því. Finnst það
svolítið hallærislegt, eins og fólk
sé að fela eitthvað. Sumir „púlla
það“ kannski, en ekki ég.“
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
Framhald af forsíðu
„Ég er blind á fræga fólkið þegar það
kemur til mín í búðina, en systir mín
fletti yfir nýjar myndir á Style.com og
tók strax eftir gúmmíblúnduarmband-
inu mínu á Julie Gilhart,“ segir textíl-
hönnuðurinn Rósa Helgadóttir hjá
Rósu Design á Skólavörðustíg.
Ein af áhrifamestu konum tísku-
heimisins bar skart hennar á Stephan
Weiss Apple-verðlaunaafhendingunni
í New York fyrr í júní, sem haldin var í
minningu eiginmanns tískuhönnuðar-
ins Donnu Karan. Meðal frægra gesta
voru Bill Clinton, Sarah Jessica Park-
er, Demi Moore, Michael Douglas og
Keith Richards.
Julie Gilhart er þekkt fyrir að hafa
auga fyrir flottum hlutum og koma á
framfæri óþekktum hönnuðum, en
hún stýrði meðal annars innkaupum
hjá Barneys New York um árabil.
- þlg
Julie Gilhart skartar armbandi Rósu
EIN ÁHRIFAMESTA KONA TÍSKUHEIMSINS BAR SKART RÓSU HELGADÓTTUR Í VEISLU
DONNU KARAN Í NEW YORK
borðapantanir í síma: 5800 101 101hotel@101hotel.is www.101hotel.is
101 gæðastund - allir drykkir á hálfvirði frá 17.00-19.00 alla daga
spænskir dagar í júní
fimm rétta spænskur matseðill með sérvöldum vínum Eistland og Lettland
Miðaldir - 16.-24. júlí
2ja landa sýn, ferðast er um bæði löndin. Við skoðum hinar fögru miðaldaborgir Tallinn og Riga, gistum
m.a. á herrasetri. Skoðum hallir, kastala, markaði, söfn og keyrum i gegnum
ægi fögur sveitahéruð svo eitthvað sé nefnt.
Beint flug frá Kef
lavík
Tallinn
Verð 148.900 kr. á mann i 2ja
manna herbergi.
Innifalið; Fararstjóri, flug og skattar, hótel,
allar skoðunarferðir
Eistlandi
Tallinn Eistlandi
- miðaldaborg frá 11. öld,16.-24. júlí
Verð einungis 44. 900 kr. (flug með skatti)
Verð 78.800 kr. á mann i 2ja manna herbergi.
Innifalið flug, skattar, hótel, fararstjóri, rúta til og frá flugvelli.
Ein fallegasta borg Evrópu og á minjaskrá Unesco. Miðaldastemning í Tallinn er engu öðru lík. Söfn,
dómkirkjur, borgarhlið, borgarveggir, klaustur, borgarturnar og stórfenglegur arkitektúr, allt á sama stað.
Má nefna Torgið í gamla bænum, St Olav´s kirkju, St. Catherine götu, Maiden turninn, Toompea kasta-
lann, Saint Mary dómkirkjuna og Ráðhúsið. Spennandi skoðunarferðir innan borgar sem utan í boði.
Trans-Atlantic sérhæfir sig i ferðum til Eistrasaltslanda
Síðustu sætin
5.000 kr. dagur í Flash
Fleiri myndir á
Facebook, vertu vinur
Síðir sumarkjólar
5000 kr.
Gallabuxur háar
í mittið
5000 kr.
Galla kvartbuxur
5000 kr.
Galla pils
5000 kr.
Mussur Frakkar Kjólar
Og margt margt fleira
á aðeins
5000 kr.
Við erum á
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
ÍÞRÓTTIR Á ÞÍNUM
HEIMAVELLI m.visir.isFáðu Vísi í símann!
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir,
meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf,
meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á Vísi.