Fréttablaðið - 23.06.2011, Qupperneq 50
23. júní 2011 FIMMTUDAGUR
folk@frettabladid.
Hollenskur fornbílaklúbbur með
Volkswagen-rúgbrauð og -bjöllur
fremst í flokki tekur þátt í Lands-
móti Fornbílaklúbbs Íslands sem
verður haldið á Selfossi í áttunda
sinn um næstu helgi.
Um fimmtíu Hollendingar komu
til landsins á 26 loftkældum bílum
með Norrænu á sunnudaginn og
hafa þeir fikrað sig áfram eftir
hringveginum síðustu daga. Klúbb-
urinn kom við í Samgönguminja-
safninu Ystafelli í Þingeyjarsveit
þar sem vel var tekið á móti þeim.
„Þetta var rosalega gaman. Þetta
er skemmtilegt fólk. Það borð-
aði hérna og þeir sem voru lengst
stoppuðu í fimm klukkustundir,“
segir Sverrir Ingólfsson á Ystafelli.
Um 3.500 gestir komu á lands-
mótið í fyrra og er búist við enn
betri þátttöku í ár enda er búist við
góðu veðri um helgina. Hópakstur
frá Reykjavík á Selfoss verður á
föstudagskvöld frá planinu við MS
og mun hluti af hollensku bílunum
taka þátt í akstrinum. - fb
Hollensk rúgbrauð á Landsmóti
HJÁ YSTAFELLI Hollensku fornbílarnir á hlaðinu hjá Samgönguminjasafninu Ystafelli í
Þingeyjarsveit. MYND/FRIÐGEIR SVERRISSON
ÞÚSUND DOLLARAR eru launin sem Jon Hamm fær
fyrir hvern þátt í næstu seríu af Mad Men. Samningurinn er
til þriggja ára en Hamm hefur farið á kostum í hlutverki hins
keðjureykjandi Dons Draper.
250
Ein vinsælasta hljómsveit
landsins, GusGus, tók upp
myndband við lag sitt Over
í gær en lagið er fyrsta
smáskífa plötunnar Arabian
Horse. Það var góður hópur
fagmanna sem stóð að gerð
myndbandsins sem tekið
var upp í blíðskaparveðri á
Suðurlandi.
Ellen Loftsdóttir og Þorbjörn Inga-
son sáu um leikstjórn og félagar
þeirra á vinnustofunni Narfa
framleiddu. Bak við linsuna sat
Karl Óskarsson en hann er reynd-
ur tökumaður og hefur gert mynd-
bönd fyrir frægar sveitir eins og
Westlife, Hurts, Aha og Björk.
Guðmundur Jörundsson fata-
hönnuður sá um að klæða þau
Daníel Ágúst, Stebba Steph, Bigga
Veiru, Högna Egilsson og Urði
Hákonardóttur. Spennandi verður
að sjá útkomuna enda lagið Over
að klifra upp vinsældalistana
þessa dagana. - áp
GUSGUS GERIR MYNDBAND
VÍGALEGIR Þeir Biggi Veira, Högni Egilsson og Stebbi Steph ganga svartklæddir um sandana. MYND/JÓIKJARTANS
STUND MILLI STRÍÐA Það eru margir
sem koma að gerð myndbandsins en
hér bíður Daníel eftir að tökur hefjist
á meðan Ellen og Guðmundur ræða
saman bakgrunni.
FÖRÐUN Harpa Káradóttir málar Daníel Ágúst á tökustað.
STÓRMYND SUMARSINS!
VINNINGAR AFHENTIR Í ELKO LINDUM. 149 KR/SKEYTIÐ.
MEÐ ÞVÍ AÐ TAKA ÞÁTT ERTU KOMINN Í SMS KLÚBB.
WWW.SENA.IS/MRPOPPERS
WWW.SENA.IS/MRPOPPERS
SENDU SMS SKEYTIÐ
ESL PEN
Á NÚMERIÐ
1900
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
FULLT AF VINNINGUM:
BÍÓMIÐAR
TÖLVULEIKIR - DVD MYNDIR - GOS OG FLEIRA!
KOMIN Í BÍÓ!
9. HVER
VINNUR!
FJÖLDI
AUKAVINNINGA
VILTU
VINNA
MIÐA?