Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.06.2011, Qupperneq 54

Fréttablaðið - 23.06.2011, Qupperneq 54
23. júní 2011 FIMMTUDAGUR42 sport@frettabladid.is GUÐJÓN ÞÓRÐARSON og lærisveinar hans í BÍ/Bolungarvík taka á móti Íslandsmeist- urum Breiðabliks í kvöld en leikurinn er liður í sextán liða úrslitum Valitor-bikarsins. KR tekur einnig á móti FH í sömu keppni í kvöld en sá leikur er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. FÓTBOLTI Ísland varð í 5.-6. sæti á EM U-21 liða í Danmörku sem nú stendur yfir. Ísland komst því ekki í undanúrslitin en Geir Þorsteins- son, formaður KSÍ, er engu að síður stoltur af árangrinum. „Það er frábært að vera í 5.-6. sæti af 53 þjóðum í Evrópu. Ég er stoltur af strákunum og af frammistöðu þeirra. Við munum svo fara yfir það innan KSÍ, bæði með þjálfara- teyminu og landsliðsnefndinni, hvernig til tókst og hvað hefði mátt betur fara,“ sagði Geir í samtali við Fréttablaðið. Lokahópur U-21 liðsins kom saman aðeins þremur dögum fyrir fyrsta leik í Danmörku og er lít- ill undirbúningur talinn eiga sinn þátt í því að liðið tapaði fyrstu tveimur leikjum sínum. Eftir mótið sagði Eyjólfur Sverrisson, þjálfari U-21 liðsins, að undirbún- ingurinn hefði verið of lítill. Íslandsmótið er líka flaggskip „Við munum fara yfir það hvort við gátum gert eitthvað betur hvað undirbúninginn varðar,“ sagði Geir en heil umferð fór fram í Pepsi-deildinni í vikunni fyrir Evrópumeistaramótið. „En það er ljóst að þessi mál eru flókn- ari en þau virðast í fyrstu. Hefð- um við sleppt þessari umferð á Íslandsmótinu hefði verið mánað- arhlé í deildinni. Það tekur enginn slíka ákvörðun auðveldlega og má ekki gleyma því að Íslandsmótið er líka flaggskip íslenskrar knatt- spyrnu.“ Hann bendir einnig á að undir- búningurinn hafi falið í sér meira en bara það að finna æfingadaga fyrir liðið. „Ég held að flestir átti sig ekki á því að landsliðið á ekki rétt á leikmönnunum sem taka þátt í þessu móti. Þessi keppni fer ekki fram á alþjóðlegum leikdög- um og því er félögum heimilt að banna sínum leikmönnum að taka þátt. Stór þáttur í okkar undirbún- ingi var að tryggja að allir okkar bestu leikmenn gætu tekið þátt í mótinu. Okkur tókst það en því var ekki að heilsa hjá öllum, eins og við vitum.“ Einstaklingsmunur á þjálfurum Eyjólfur greindi einnig frá því eftir mótið að hann hefði átt lítið sem ekkert samstarf við Ólaf Jóhannesson, A-landsliðsþjálfara, á meðan á undankeppninni stóð. Fréttablaðið spurði Geir hvort að til stæði að taka þau mál til skoð- unar innan KSÍ. „Samstarf þjálfara og viðræður þeirra á milli eru mjög æskileg- ar,“ sagði Geir. „Ég hef hins vegar á löngum ferli í knattspyrnuhreyf- ingunni séð að þetta er mjög mis- jafnt á milli þjálfara og meira ráð- ist af einstaklingunum sjálfum. Sumir hafa sína aðferðarfræði og telja hana rétta. Aðrir trúa á meiri samstarf og samskipti. Hver hefur sína leið.“ Alþjóðlegt vandamál Það sem helst hefur verið rætt um í þessu samhengi er sú togstreita sem var á milli A- og U-21 landsliðs- ins um forgang á leikmönnum. Geir bendir á að samstarf og samskipti þjálfara snúist ekki um þau mál. „Að mínu viti er það tvennt ólíkt. Vandamálið með það með hvaða liði leikmenn eiga að spila er ekki íslenskt. Þetta er að stórum hluta til komið vegna þess að leik- ir A-liðsins, U-21 og jafnvel U-19 liðanna eru allir settir á sömu dagana. Ástæðan er sú að það eru svo fáir alþjóðlegir leikdagar og það umhverfi hafa FIFA og UEFA skapað. Því hafa þessi vanda- mál komið víðar upp en á Íslandi. Þetta er flækja sem við þurfum að eiga við en það vorum ekki við sem skópum þessa flækju.“ Fylgjast með þróuninni Hins vegar neitar Geir því ekki að æski- legast væri að þjálfarar allra landsliða KSÍ myndu róa í sömu átt. „Við höfum rætt það að samræma okkar störf í landsliðum og það er allt til skoð- unar. Við höfum hins vegar haft þann háttinn á að hver þjálfari hefur sitt frjálsræði og því ætlum við ekki að breyta,“ sagði Geir og bendir á að það henti til að mynda ekki alltaf að láta öll yngri lands- liðin spila sömu leikaðferðina, til að undirbúa leikmenn fyrir það að spila með A-liðinu. „Flestir okkar þjálfarar hafa verið sammála um að það beri að móta liðið eftir þeim leik- mannahópi sem hann hefur hverju sinni. Menn verða þó að fylgjast áfram með gangi mála og hvernig við getum þróað okkar knattspyrnu. Vil ég ekkert úti- loka í þeim efnum.“ eirikur@frettabladid.is Æskilegt að þjálfarar tali saman Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, segir að ýmislegt megi læra af þátttöku Íslands á EM U-21 liða og að farið verði yfir hvað hafi gengið vel og hvað megi bæta. Meðal þess sé undirbúningurinn og samstarf þjálfara. GEIR ÞORSTEINSSON Formaður KSÍ segir að landsliðsþjálfarar hafi sitt frjálsræði til að sinna sínum störfum og því verði ekki breytt. Hins vegar væri æskilegt fyrir þá að starfa saman þegar þess er kostur. Hér er Geir með Ólafi Jóhannessyni, þjálfara A-liðs karla. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Þetta er flækja sem við þurfum að eiga við en það vorum ekki við sem skópum þessa flækju. GEIR ÞORSTEINSSON FORMAÐUR KSÍ EYJÓLFUR SVERRISSON Þjálfari U-21 liðs karla. Byrjaðu góðan dag vel – Fáðu þér létta ab mjólk á hverjum degi Nú fáanleg í handhægum ½ lítra umbúðum Létta AB mjólkin er einhver hollasti morgunverður sem völ er á. AB mjólkin inni- heldur milljarða gagnlegra mjólkursýrugerla sem valda því að óæskilegir gerlar eiga erfitt uppdráttar í meltingar- veginum. Regluleg neysla tryggir að meltingarflóran er alltaf í lagi og ónæmiskerfið starfar með hámarksafköstum. FÓTBOLTI Í gær var dregið í átta liða úrslit Valitors-bikars karla og kvenna. Drátturinn í karla- flokknum var sérstakur því enn á eftir að spila tvo leiki í sextán liða úrslitunum. Þeir leikir fara fram í kvöld. Sigurvegarinn í leik KR og FH mætir Keflavík sem verður þá stórleikur átta liða úrslita karla. Þeir leikir fara fram 3. júlí. „Við fáum að fylgjast með KR og FH í sjónvarpinu og getum byrjað að undirbúa okkur eftir þann leik,“ sagði Haraldur Freyr Guðmundsson, fyrirliði Keflavík- ur, við Fréttablaðið. „Við vitum að við fáum erfiðan leik annaðhvort í Vesturbænum eða Kaplakrika en munum mæta brattir í þá. Við teljum okkur vera með gott lið, hvort sem er fyrir deild eða bikar, og förum fullir sjálfstrausts í leikinn.“ Stórleikurinn í kvennaflokki er leikur Vals og Stjörnunnar. Leik- irnir í kvennaflokki fara fram 1. júlí. „Kannski aðeins auðveldara í heimaleik en það er gott að fá leik í Garðabænum. Það er fínt fyrir keppnina að fá stóran leik strax í 8-liða úrslitunum og verður gaman að mæta Val,” sagði Þor- lákur Árnason, þjálfari Stjörn- unnar. - hbg Dregið í bikarkeppninni: Keflavík fær KR eða FH KR OG FH Sigurvegari leiksins í kvöld mætir Keflavík. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Valitor-bikarinn 8-liða úrslit karla: BÍ/Bolungarvík eða Breiðablik - Þróttur R. Þór - Grindavík Fjölnir - ÍBV KR eða FH - Keflavík 8-liða úrslit kvenna: Fylkir - FH Stjarnan - Valur KR - Grindavík ÍBV - Afturelding HANDBOLTI Handboltaparið Einar Ingi Hrafnsson og Þórey Rósa Stefánsdóttir er að öllum líkind- um á leið til Danmerkur en þau léku bæði með þýskum liðum síð- asta vetur. Þau komu frá Danmörku í gær þar sem Einar Ingi var í viðræðum við danska úrvalsdeildarliðið Mors Thy sem hefur gert Einari Inga samningstilboð. Einar Ingi tjáði Fréttablaðinu í gær að hann væri svo gott sem búinn að ná saman við danska liðið en þó væru enn lausir endar. „Ég hef ekki enn ákveðið hvort ég vil fá tveggja ára eða einn plús einn samning. Svo á Þórey eftir að finna sér lið í nágrenninu en það eru einhverjir möguleikar þar í stöðunni,“ sagði Einar Ingi en unnusta hans ætti nú ekki lenda í vandræðum með að finna sér félag enda öflugur hornamaður sem spilar með íslenska landsliðinu. Einar Ingi er öflugur línumað- ur sem lék með HK og Fram hér heima áður en hann fór til Nord- horn í Þýskalandi. Þar stóð hann sig ágætlega í vetur. Mors Thy varð í þriðja neðsta sæti dönsku úrvalsdeildarinn- ar í vetur og þarf því eðlilega að styrkja sig í sumar til þess að geta gert enn betur á næstu leiktíð. - hbg Einar Ingi Hrafnsson og Þórey Rósa Stefánsdóttir á leið til Danmerkur: Mors Thy vill fá Einar í sínar raðir EINAR INGI HRAFNSSON Er hér í leik með HK. Hann er að öllu óbreyttu á leið til Danmerkur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.