Fréttablaðið - 23.06.2011, Qupperneq 55
FIMMTUDAGUR 23. júní 2011 43
ÓLYMPÍUDAGURINN ER Í DAG – LAUGARDALNUM
Ólympíudagskráin:
19:00 Setning við bílastæðin.
19:00–22:00 Akstursíþróttanefnd verður með
sýningu á fjórum til fimm keppnis-
bílum, allt frá kvartmílu til gókart,
á bílastæðinu hjá Þrótti/Ármanni.
19:00–21:30 Skylmingar.
19:00–22:00 Keila, borðtennis, skotíþróttir,
krakkablak og strandblak,
tennis, og rathlaup (sjá nánar
á www.rathlaup.is).
21:00–21:40 Dans – sýning og létt kennsla.
22:00 Miðnæturhlaupið.
Skráning á www.maraþon.is
Fylgstu með nýjum atriðum sem óðum bætast inn á dagskrána
á fésbókarsíðu okkar: Ólympíudagurinn 23. júní.
Komdu í Laugardalinn á Ólympíudaginn og taktu þátt í fjörugri dagskrá fyrir fólk
á öllum aldri. Taktu fjölskylduna með og prófaðu spennandi íþróttagreinar undir handleiðslu
landsliðsfólks í skylmingum, tennis, skotíþróttum, blaki, borðtennis, keilu og dansi.
Komdu og gerðu þér glaðan dag.
Gerðu þitt besta
FÓBOLTI Knattspyrnusamband
Evrópu, UEFA, tilkynnti í gær
um áframhaldandi samstarf
við 365 miðla um útsendingar á
Íslandi frá Meistaradeild Evrópu
og Evrópudeildinni. Samningur-
inn er til ársins 2015.
Stöð 2 Sport mun sem fyrr
sinna Meistaradeildinni af alúð
með fjölda útsendinga sem og
með samantektarþætti. Aukið
verður við þjónustuna enn frekar
á næstu leiktíð.
Áætlaður fjöldi útsendinga
frá þessum keppnum er um 300
talsins.
365 semur um útsendingar:
Meistaradeildin
á Stöð 2 Sport
BARCELONA Sigurvegari Meistaradeildar-
innar í ár. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
HANDBOLTI Sigurbergur Sveins-
son, áður leikmaður Hauka,
er genginn til liðs við sviss-
neska félagið RTV 1879 Basel og
gerði hann eins árs samning við
félagið.
Sigurbergur lék í þýsku úrvals-
deildinni á síðustu leiktíð, fyrst
með Rheinland og svo Hann-
over-Burgdorf. Sigurbergur fór
frá fyrrnefnda félaginu vegna
fjárhagserfiðleika þess en átti í
harðri samkeppni um stöður hjá
Hannover-Burgdorf.
Fram kemur á heimasíðu Basel
að það eru utanaðkomandi aðilar
sem munu greiða laun Sigur-
bergs en honum er ætlað að fylla
skarð svissneska landsliðsmanns-
ins Ruben Schelbert sem gekk
í sumar til liðs við Kadetten
Schaffhausen.
Björgvin Páll Gústavsson hefur
orðið meistari með Shaffhausen
síðustu tvö árin en hann er nú
genginn til liðs við Magdeburg í
Þýskalandi. Basel varð í níunda
sæti deildarinnar á síðustu leik-
tíð.
Hann á að baki 35 leiki með A-
landsliði Íslands. - esá
Sigurbergur Sveinsson:
Samdi við
Basel í Sviss
SIGURBERGUR SVEINSSON Söðlar um og
fer til Sviss. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Það varð ljóst í gær að
Spánn og Sviss mætast í úrslita-
leik EM U-21 árs landsliða í Dan-
mörku. Báðir undanúrslitaleik-
irnir í gær fóru í framlengingu.
Spánn vann Hvíta-Rússland 3-1
en Sviss dugði 1-0 sigur á Tékk-
um.
Leikur Hvít-Rússa og Spán-
verja var heldur betur drama-
tískur. Flestir spáðu því að Spánn
myndi vinna öruggan sigur. Spán-
verjar réðu lögum og lofum í
leiknum en það voru Hvít-Rússar
sem komust óvænt yfir á 37. mín-
útu er Andrei Voronkov skoraði
með laglegu skoti í teignum er
hann snéri bakinu í markið.
Rússarnir lágu í vörn í síðari
hálfleik og Spánverjum gekk ágæt-
lega að skapa sér færi. Það var svo
allt annað mál að nýta færin. Rúss-
arnir virtust vera að landa sigri er
Adrian Lopez jafnaði leikinn einni
mínútu fyrir leikslok. Hann skor-
aði þá úr þröngu færi á nærstöng.
Það varð aldrei spurning hvern-
ig leikar færu í framlengingunni.
Lopez skoraði aftur rétt fyrir lok
fyrri hálfleiks framlengingar og
Jeffren bætti þriðja markinu við
áður en yfir lauk. Spánverjar í
úrslit en Hvít-Rússar létu þá hafa
hraustlega fyrir hlutunum.
Leikur Tékka og Svisslendinga
var ekki eins skemmtilegur. Bæði
lið voru mjög varfærin í sínum leik
en sóknarlotur Sviss voru þó beitt-
ari. 0-0 í hálfleik í hrútleiðinleg-
um leik. Síðari hálfleikur var litlu
skárri og leikurinn virkaði eins og
gott svefnmeðal. Varð því að fram-
lengja.
Í framlengingunni skoraði
Admir Mehmedi glæsilegt mark
með skoti utan teigs sex mínútum
fyrir leikslok og það mark dugði til
sigurs. - hbg
Báðir undanúrslitaleikirnir á EM U-21 árs landsliða voru framlengdir í gær:
Spánn og Sviss mætast í úrslitum
HETJAN Adrian Lopez fagnar hér jöfnunarmarki sínu sem kom á elleftu stundu.
NORDIC PHOTOS/AFP