Fréttablaðið - 23.06.2011, Qupperneq 62
23. júní 2011 FIMMTUDAGUR50
BESTI BITINN Í BÆNUM
„Ég fer nú yfirleitt ekki á neina
flotta staði, svo það er örugglega
bara Subway.
Atli Sigursveinsson, gítarleikari Endless
Dark
„Ég veit ekkert hver er að gera
þetta,“ segir Páll Óli Ólason sem
hefur slegið í gegn á síðunni
Flickmylife.com að undanförnu.
Þar hefur ljósmynd af honum verið
klippt á skondinn hátt inn í ýmsar
kringumstæður. Má þar nefna
atriði úr gamanmyndinni Forr-
est Gump, nautaat, skautadans og
morðið á Lee Harvey Oswald, bana-
manni Johns F. Kennedy, fyrrum
Bandaríkjaforseta.
Páll Óli spilar fótbolta með
Árborg í 1. deildinni. Myndin af
honum var tekin þegar hann stillti
sér upp í varnarvegg í æfinga-
leik gegn Reyni Sandgerði í vor.
Á meðan félagar hans í veggn-
um voru í hinum ýmsu stelling-
um þegar spyrnan var tekin stóð
hann, að því er virtist óttalaus, og
beið eftir skotinu. Myndin birtist
fyrst á síðunni Fotbolti.net en eftir
það hefur útklippt myndin af Páli
Óla öðlast nýtt líf á Flick My Life.
„Mér er svo sem sama,“ segir hann
um birtinguna. „Ég er sem betur
fer ekki eins og fífl á myndinni.
Þetta var svo léleg aukaspyrna að
ég þurfti ekki að hreyfa mig neitt.“
Aðspurður segist hann ekki vera
að íhuga málsókn vegna myndarað-
arinnar, líkt og Ásgeir Kolbeinsson
íhugaði fyrr á árinu þegar einkalíf
hans var orðið óþægilega áberandi
á síðunni. „Hann fór upp í fimmtíu
og eitthvað. Hann var ekki par sátt-
ur skilst mér en ég hef bara gaman
af þessu. Þarna er ekkert verið að
taka líf mitt og draga mann eitt-
hvað niður,“ segir Páll Óli hress.
freyr@frettabladid.is
PÁLL ÓLI ÓLASON: SEM BETUR FER ER ÉG EKKI EINS OG FÍFL
Fótboltastrákur úr Árborg
slær í gegn á Flick My Life
Í VARNARVEGG Páll Óli, lengst til hægri, sallarólegur og svipbrigðalaus í varnarveggnum. MYND/GKS
Pétur Ben, Toggi, Svavar Knútur og Matthías Baldurs-
son ætla að frumflytja eigin lög við sálma Sigurbjörns
Einarssonar á tónleikum í Lindakirkju 30. júní. Tón-
leikarnir verða haldnir í tilefni þess að biskupinn fyrr-
verandi hefði orðið 100 ára þennan sama dag.
„Guðni Már prestur í Lindakirkju er gamall vinnu-
félagi minn og kunningi. Ég hef alltaf haldið svolítið
upp á hann og hann tékkaði hvort ég væri til í þetta,“
segir Toggi, sem var upptekinn við að reyta arfa þegar
Fréttablaðið hafði samband, enda eigandi garðyrkju-
fyrirtækis. „Það er gaman að prófa eitthvað annað
og þurfa ekki að eyða tíma í textagerð. Ég er í smá
biðstöðu með mína tónlist. Ég er eiginlega búinn með
plötu en er ekki að fara að gefa hana út strax þannig
að það er fínt að hafa eitthvað annað að dunda sér við,“
bætir hann við.
Lagið er við sálminn Hjá Guði og var Toggi, sem
samdi hið vinsæla Þú komst við hjartað í mér,
ekki lengi að hrista það fram úr erminni. „Ég
samdi það bara um kvöldið og tók það upp á
símann minn,“ segir hann. „Ég er ekkert trú-
aður sjálfur en ekkert öfgavantrúaður heldur.
Ég er meira leitandi. En mér finnst lög við sálma
mjög flott.“
Á meðal annarra sem koma fram
í Lindakirkju eru Ellen Kristjáns-
dóttir, Regína Ósk, Erna Kirstin
Blöndal og Gospeltónar. Miðaverð
er 2.000 krónur og hefst miðasala
í Kirkjuhúsinu 27. júní kl. 10. Jafn-
framt verður hægt að
kaupa miða í Linda-
kirkju 28. til 30.
júní. - fb
Samdi lag við sálm Sigurbjörns
„Ég held að það hafi verið redding
hjá leikstjóranum að fá mig í þetta
hlutverk en við þekkjumst vel eftir
tökurnar á Óróa,“ segir Atli Óskar
Fjalarsson en þegar Fréttablaðið
náði af honum tali var hann stadd-
ur á Akureyri þar sem tökur eru
nýhafnar á gamanþáttaröðinni Hæ
Gosi.
Atli Óskar vakti verðskuldaða
athygli á síðasta ári fyrir leik sinn
í unglingamyndinni Óróa en þetta
er í fyrsta sinn sem hann leikur í
sjónvarpsþáttum. Hlutverk Atla í
Hæ Gosa er frekar óvanalegt en
hann bregður sér í gervi gothar-
ans, Jasons, með tilheyrandi útlits-
breytingum.
„Ég er að fara út fyrir minn þæg-
indaramma en það er bara hress-
andi. Jason er mjög fyndin týpa
sem léttir aðeins söguþráð þátt-
anna,“ segir Atli en hann þarf að
lita hárið á sér svart, gera húðina
hvíta, naglalakka sig og hlaða á
sig skartgripum til að koma sér í
hlutverkið. „Ég hef lúmskt gaman
af því að bregða mér í búninginn
og get fullyrt að þetta er í fyrsta
skipti sem ég set sjálfviljugur á
mig naglalakk.“
Atli Óskar vinnur í sumar hjá
símafyrirtækinu Tali en segir að
það hafi verið lítið mál að fá frí í
nokkra daga. „Ég hef það mjög gott
hérna, fæ meira að segja að vera
einn í herbergi. Þar eru 50 svört
handklæði og litaflokkað M&M.
Svo er ég líka með einkabílstjóra
sem keyrir mig hvert sem ég vil.
Þetta er frábært,“ gantast Atli
Óskar. Önnur þáttaröð sjónvarps-
þáttanna Hæ Gosi fer í loftið í
haust á Skjá einum. - áp
Lúmskt gaman að vera gothari
SVARTKLÆDDUR Leikarinn Atli Óskar
Fjalarsson er óþekkjanlegur í gervi sínu.
VINSÆLL Á NETINU Útklippt mynd af Páli
Óla Ólasyni hefur verið vinsæl á síðunni
Flickmylife.com að undanförnu.
FLYTUR NÝTT LAG Toggi frum-
flytur lag við sálminn Hjá Guði
eftir Sigurbjörn Einarsson í
Lindakirkju 30. júní.
Nýtt!
Hvað ætlar þú
að hafa í matinn?
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRA SJÓNVARP
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða,
meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki