Fréttablaðið - 27.06.2011, Blaðsíða 48
DREIFING: dreifing@posthusid.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VÍSIR
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Mest lesið
FRÉTTIR AF FÓLKI
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
Liðtækur á bíl
Knattspyrnukappinn Gylfi Þór Sig-
urðsson er kominn heim til Íslands
þar sem hann hvílir lúin bein eftir
átökin á Evrópumóti U-21 árs
landsliða í Danmörku. Gylfi þykir
liðtækur kylfingur enda bróðir golf-
kennarans Ólafs Más Sigurðssonar.
Gylfi nýtti sér blíðskaparveðrið á
fimmtudaginn og fór í golf á Urr-
iðavelli. Ekki fer mörgum sögum
af því hvernig leik-
manni þýska liðsins
Hoffenheim gekk en
hitt vakti athygli að
hann keyrði um
á golfbíl. Raunar
bilaði fyrsti
bíllinn en starfs-
menn vallarins
voru fljótir að
útvega annan
fyrir Gylfa.
-fgg
Hjónin Knútur og Helena rækta tómata á Friðheimum í Reykholti.
Þau eru einu garðyrkjubændurnir sem rækta plómutómata allt árið um
kring en auk þeirra rækta þau hefðbundna tómata og konfekttómata.
Á Friðheimum gefst gestum tækifæri til að skoða gróðurhúsin
og kynna sér hvernig tómatarækt gengur fyrir sig.
Ármann Áki heitir hann
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðherra, eignaðist
sitt þriðja barn á dögunum sem
kunnugt er. Katrín og maður
hennar, Gunnar Örn Sigvaldason,
eignuðust son númer þrjú þann
10. júní síðastliðinn og hefur hann
nú fengið nafnið Ármann Áki, sem
er að öllum líkindum í höfuðið á
Ármanni Jakobssyni, bróður Katr-
ínar. Fyrir eiga hjónin synina Jakob
og Illuga. Nú þarf bara að bæta
einum dreng í safnið til viðbótar
svo hinn bróðir ráð-
herrans, Sverrir
Jakobsson, verði
heiðraður líkt
og tvíbura-
bróðir hans,
Ármann.
- sv
1 Skólabókardæmi um góðan
flóttamann - íslensk árvekni
felldi hann
2 Óánægja á meðal Eve Online
spilara
3 Unglingsstúlkur stálu
gúmmíbát - stukku í sjóinn af
ótta við eigandann
4 Braust inn til manns og er
grunaður um að hafa lamið
hann með barefli