Fréttablaðið - 29.07.2011, Síða 15
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457
T
una Dís Metya er af
úkraínskum og tyrk-
neskum ættum, fædd
og uppalin í Bordeaux í
Frakklandi en hefur verið búsett
á Íslandi í tíu ár. Hún hefur alltaf
haft mikinn áhuga á bakstri og
leyfir ímyndunaraflinu að njóta
sín til fulls í litríkum tækifæris-
kökum sem hún býr til undir
merkjum Happy Cakes Reykja-
vík.
„Kökur eru fyrir augað ekki
síður en bragðlauka,“ svarar
hún þegar forvitnast er um
kökuskreytingarnar. Hún
kveðst hafa þróað þá
tækni við nám í London
fyrir ekki löngu. „Ég
skellti mér bara í nám í
kökuhönnun. Var reynd-
ar nokkurn tíma að ná
tökum á útskurðinum og
er bara orðin ágæt,“ segir
hún kímin.
Hugðarefnið hefur með tím-
anum leitt Tunu Dís inn á fleiri
spennandi brautir, þar á meðal til
starfa hjá Daily News í Ankara í
Tyrklandi. „Þar skrifaði ég um
lífsstílstengd mál og fékk heila
matarsíðu í hverri viku sem var
mjög skemmtilegt.“ Talið beinist
aftur að kökunum sem Tuna Dís
segir hægt að nálgast á Facebook
í gegnum Happy Cakes Reykja-
vík. „Íslendingar eru sólgnir í
þær enda opnir fyrir nýjungum,“
segir Tuna Dís sem er sjálf heill-
uð af íslenskri matseld. „Já, ég
verð til dæmis að fá mína skötu
árlega, öðru heimilisfólki til lít-
illar ánægju!“ roald@frettabladid.is
Minjasafn Akureyrar býður upp á gönguferð
með leiðsögn á morgun. Fetuð verða fótspor
feðranna og gengið um elsta bæjarhluta Akureyrar,
fjöruna, gömlu Akureyri og allt norður að Torf-
unefi. Gangan hefst við Minjasafnið klukkan 14 og
endar í Sigurhæðum, húsi þjóðskáldsins Matthíasar
Jochumssonar. Gísli Sigurgeirsson leiðir gönguna.
Líka fyrir augað
FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
Kaka:
50 g kakóduft
225 ml vatn
100 g smjör (við her-
bergishita)
275 g sykur
175 g hveiti
¼ tsk. matarsódi
1 tsk. lyftiduft
Krem:
125 g smjör (við her-
bergishita)
125 g flórsykur (sigt-
aður)
70 g súkkulaði (brætt)
Sykurmassi fyrir
skreytingarnar.
Kaka: Þeytið vel
saman smjör og sykur
í skál og bætið eggj-
unum hægt og
rólega saman við
þar til blandan
verður létt og
ljós.
Sigtið saman hveiti,
matarsóda og lyftiduft
út í „blönduna“.
Blandið saman kakói
og vatni og bætið
síðast út í. Setjið í mót
og bakið við 180° í 35
mínútur.
Krem: Hrærið öllum
hráefnum mjög vel
saman og smyrjið á
kökuna.
Eftir að kremið er
komið á kökuna, kælið
hana og skreytið með
sykurmassa.
AMERÍSK SÚKKULAÐIKAKA
Að hætti Tunu Dísar Metya
Tuna Dís Metya býr til ljúffengar og fallegar kökur og smákökur fyrir öll tækifæri.
ALLA LAUGARDAGA OG SUNNUDAGA
Aðalstræti 2 | 101 Reykjavík | Sími: 517 4300
Verð
aðeins
1.895
með kaffi
eða te