Íslendingur - 19.01.1940, Page 2
2
ÍSLENDINGUR
þús. kr., og tilbúinn áburður 12,6
þús. kr.
Sú verðhækkun, sem orðið hefir,
fyrst vegna gengisbreytingar og
síðan vegna Evrópustríðsins, hlaut
að hafa í för með sér liaekkaðan
reksturkostnað ýmissa opinberra
stofnana og fyrirtækja. Og af
sömu ástæðum hefir Alþingi horfið
að þvf ráði að draga úr framlög-
um til nýbygginga og annars, er
krafðist erlends byggingarefnis, en
í þess stað varið meira fé til vega-
gerða en áður.
Prátt fyrir að íslenzka krónan
hefir fallið um 33%" síðastliðið ár,
hafa fjárlögin ekki hækkað meira
nú hlutfalislega en þau hafa áður
gert f venjulegu ári. Má af því
sjá, að allmikil átök hefir orðið að
gera við niðurskurð útgjaldaliðanna.
Virtist samkomulag all-gott um
það milli Sjálfstæðis- og Famsókn-
arþingmanna, en Alþýðuflokksmenn
spyrntu þar nokkuð við fótum,
eins og þeirra er vandi, Hin góða
sala e. s. Gullfoss í Pýzkalandi,
meðan á þingi stóð, hefir e. t. v.
glætt vonir manna um batnandi
hag, og haft nokkur áhrif á afstöðu
einstakra þingmanna til fjárlaga-
frumvarpsins. En jafnvel þótt Ijár-
lögin yrðu endanlega afgreidd með
sæmilegum rekstrarafgangi, ber á
það að líta, að á slíkum tímum
sem þessum er allt í óvissu, verð-
sveiflur snöggar o s frv., og er
því mjög vonlítið að nokkur fjár-
lög geti nákvæmlega staðist.
Konsert
Ungfrú Sigríðar Guðmundsdóttur
(frá Lómatjörn) og Róberts Abra-
ham s. 1, sunnudag var mjög vel
sóttur og undirtektir áheyrenda mjög
góðar. — Viðfangsefni voru eftir:
Haendel, Gluck, Mozart, Brahms,
Wolf, Mendelssohn, Schubert, Pál
ísólfsson og Árna Thorsteinsson,
Alls söng ungfrúin 14 lög með und-
irleik kennara síns R. Abraham, en
auk þess [lék hann sérstaklega
Fantasíu í c moll eftir Mozart og
sorgargöngulag eftir Mendelssobn.
A undan hverju sönglagi las hann
texta þess á íslenzku, Hin unga
söngkona hefir bjarta rödd og yfir-
lætislausa. og mun mega vænta
mikils af henni, ef hún heldur á-
fram á þessari braut. Var konsert-
inn þeim báðum til sóma er að
honum stóðu.
Nýir embættismenn;
Á nýafstöðnu Alþingi voru sam-
þykkt ný lög um dómsmálastörf,
lögreglustjórn, gjaldheimtu o. fl. í
Reykjavík. Samkvæmt þeim lögum
er sakadómara- og lögreglustjóra-
embættinu skipt milli tveggja manna.
Gengu lögin í gildi um áramótin.
6 þ. m -Setti Dóms- og kirkjumála-
ráöuneytið Jónatan Hallvarðsson í
sakadómaraembættið, en hann baféi
áður farið með bæði, í lögreglu-
stjóraembættið setti það sama dag
Agnar Kofoed Hansen flugmálaráðu-
naut.
Sk/pst/órafél Norðlendinga
heldur aðalfund sinn n. k. sunnud.
(21. jan) kl. 1 e. h á Hótel Gullfoss.
Minni áburður —
minni framleiðsla
Nú að undanförnu og þó einkum
síðan að ófriðurinn skall á, hafa
bæði í ræðu og riti veriö gerðar
miður sanngjarnar kröfur til íslenzku
bændastétttarinnar um aukna fram-
leiðslu á búsnfurðum.
En aftur á móti er engu loíaö
um hækkaö verð á framleiðsluvörum
bændanna.
Kröfur þessar eru í hæsta máta
ómaklegar og eiga engan rétt á
sér á þessum erfiöu tfmum.
Kjör bændanna hafa nú til margra
ára verið svo bágborin, aö fjöldinn
allur af þeim hefir orðið að hrökal-
ast frá jörðum sínum út í óvis.s-
una.
En nú þegar eríiðleika-tímar hafa
skollið yfir þjóðina og þá ekki sízt
bændastéttina, er ekki minnsta við-
leftni sýnd á því að bæta hennar
hag, en aftur á móti hefir mikið
veriö gert til að bæta hag sjávarút-
vegsins,
Allar nauðsynjavörur hækka nú
óðum f verði, en þrátt fyrir það
eiga bændurnir að selja sínar fram-
leiðsluvörur með nær sama verði
og veriö hefir, og jafnframt eru þeir
óspart eggjaðir á að auka fram-
leiðsluna. Feir eiga að framleiða
meira feitmeti, meiri mjólk, meiri
garðávexti og auka kornrækt að
miklum mun, En jafnframt þessu
var því haldið fram| aö bændur
fengju engan útlendan áburð í vor.
Lengi hefir það veriö predikaö fyrir
bændum að auka kartöfluræktina
og enn er því haldið áfram og það
eins, þó aö nú séu til svo miklar
birgðir af þessari vöru í landinu,
að óvíst er hvort markaður fæst
fyrir hana alla. Það er því auðséð,
að það stendur ekki á bændunum
að framleiða vöruna, heldur er það
sumarveðráttan sem ræður mestu
um uppskerumagniö, eins og sást
bezt sumarið 1938.
Feir sem hæst hafa galað um
aukna kartöflurækt, ættu því hér
efttr að beina kröítum sínum til
náttúruaflanna og krefjast hagstæðr-
ar sumarveðráttu.
Það ætti að vera öllum ljóst, að
ef hægt ætti að vera að framleiða
svipað vörumagn og verið hefir,
hvað þá auka það, verða bændur
að fá útlendan áburö svipað og að
undanförnu. En enn er það dregið
f efa, að nokkuð fáist af honum, en
ekki er nóg með það, heldur mun
nú á nýafstöðnu þingi hafa verið
fellt úr fjárlögunum allt framlag
ríkisins til áburðarkaupa,
Fað er auðskilið mál, að ef inn-
flutningur útlendra áburðarefna stöðv-
ast, hlýtur öll framleiösla að minnka
að miklum mun og þá einkum
mjólkurframleiðslan, því að ómögu-
legt verður að halda túnunum í
sæmilegri rækt.
Það heiir líka verið reynt að
aftra bændum fiá því að nota fóö
urbæti nú í vetur, bæði með því að
halda honum í okurverðt og að
telja þeim trú um aö heyin séu
svo góð nú eftir þetta góða sumar,
aö engan fóðurbæti þurfi að gefa.
En þeir góðu menn, sem þessu
halda fram, athuga það kannske ekki
að þaö eru ekki þeir, sem fóðra
búpeninginn í vetur, heldur eru þaö
bændurnir sjálfir sem það gera, og
það eru þeir, sem bezt geta dæmt
um, hvort þörf er á fóöurbætisgjöf
eða ekki, og þeir munu ekki kaupa
meiri fóðurbæti en þeir nauðsynlega
þurfa.
En sannleikurinn er sá, að heyin
eru vlða fremur létt og reynast
ekki eins vel og við lieföi mátt
búast. Síðastliðið ár var selt fyrir-
fram út úr landinu svo mikið af
síldarméli, að injög var óvfst, hvort
framleiðslan yrði svo mikil.
Fað gat a. m. k. farið svo, að
ekkert hefði orðið eftir til sölu inn-
anlands, llvernig hefði t. d farið,
ef sumarið hefði oröið úrkomusamt
og hey hrakist, eða þá að gras-
brestur heföi orðið, en viðskipta-
möguleikar út á við haldist ótrufl-
aðir og því orðið að láta allan lof-
aðan fóöurbæti? Hvar hefðu bænd-
ur þá verið staddir? Hver hefðu
þá orðið úrræði stjórnarvalda?
Slík ráðsmennska er ófyrirgefan-
leg og getur ekki verið gerö af
mönnum, sem hugsa um hag land-
búnaðarins.
Það er skylda stjórnarvalda að
sjá urn, að til séu á hausti hverju
nægar birgðir af innlenduin fóður-
bæti til sölu innanlands og með
sanngjörnu verði.
Margra ára reynsla bænda á síld-
armélsgjöf með beit handa sauðfé,
hefir sýnt þeim, að hún er nauð-
synleg til þess að hægt sé að búast
við sæmilegum afuröum. Reynslan
hefir líka sýnt þeím, að fóðurbætis-
gjöf handa hámjólkakúm er bráð-
nauðsynleg, og það eins þó að tað-
an sé góö. Góðar mjólkurkýr sem
komast í 15 — 20 merkur og bafa
aligóða fitu geta alls ekki umsett
svo mikið af tómu heyi, að þær
geti haldið svo hárri nyt nema því
aðeins, að þær leggi stórkostlega af,
og að lokum minnkar snögglega í
þeim að miklum mun.
Minni áburður og minni fóð-
urbætir þýðir minni framleiðslu
á búsafurðum.
Ég hef nú í þessum línum leit-
ast viö aö sýna fram á, að allar
Leiktél Akureyrar tilkynnir.
Vegna veikindaforfalla eins leikand-
ans falla sýningar niður um helgina,
Frumsýning væutanlega í næstu viku
Mjólk og riómi hækkuöu í
verði 15. þ. m, hjá Mjólkursamlagi
K. E. A. mjólkin í 34 aura lítrinn
(úr 30 aurum) og rjómi í 240 aura
(úr 220 aurum), Verð á skj’ri hefzt
óbreytt, 64 aurar.
kröfur um aukna framleiðslu eru
ekki einu sinni ósanngjarnar, held-
ur líka hreint og beint heimsku-
legar.
Bændur I Standið öflugan vörð
um hagsmunamál ykkar og vinnið
ötullega að því, að þær opinberu
stöður sem ykkar málefni eru sér-
staklega háð, séu skipaðar hæfum
mönnum, sem hafa þekkingu og á-
huga á íslenzkum landbúnaði.
Þá fyrst er hægt að vænta þess,
að unnið verði að bættum hag ykk-
ar og þið viðurkenndir jafn réttháir
og aðrar stéttir þjóöfélagsins.
Hranastööum 12. janúar 1940
Helgi Pe'tursson.
FundargerO
Fiamh.
18. liajnarbœtur. 10. dagskrármál.
A-nefnd lagði fram eftii farandi tillögu.
»Fjórðungsþing fiskideildar Norð-
lendingafjórðungs, skorar á Fiski-4
þingiö að beita sér fyrir því að hið
háa Alþingi taki upp á fjárlög sín,
svo lljótt sem kringumstæður leyfa,
framlag til byggingar hafnargarðs á
Húsavík, sem verkfræðinyur ríkisins
hefir mælt fyrir og gert kostnaöar-
áætlun um. Fingið telur þetta nauð-
synlegt vegna vaxandi útgerðar á
staðnum.
Tillagan var samþykkt með öl'um
greiddum atkvæðum
Frá fulltrúa Hríseyjar, Jóni Sig-
urðssyni, kom svohljóðandi tillaga:
»Hríseyingar fara þess á leit við
Fiskifélag íslands, að þaö hlutist til
um að hafnarverkfræðingur Ríkisins
gjöri teikningar og kostnaðaráællun
yfir væntanlegar hafnarbætur í
Hrísey*.
Tillagan var samþykkt.
19 Námsskeið. Málið var áður
rætt, en atkvæðagreiðslu var frestað.
Jón Sigurösson reifaði málið aö nýju
og gaf ýmsar upplýsingar um hið
meira próf vélstjóra.
Fá var tillaga nefndarinnar (sbr.
10. mál) borin upp { 4 liðum og
samþykkt með öllum greiddum at-
kvæðum,
Viðbótartillaga kom frá Helga
Pálssyri, svohljóðandi:
• Fjórðungsþing Norðlendingafjórð-
ungs samþykkir að koma upp á þess-
um vetri námsskeiði fyrir matsveina
(séu nokkur tök á því) og heimilar
greiðslu úr sambandssjóði til þess.
Ennfremur skorar þingið á Fiskifé-
Sparið kaffið!
Notið
Ludvig^David
Kaffibæti.