Íslendingur - 02.02.1940, Qupperneq 3
ÍSLENDINGUR
3
Þankabrot
Jóns í Grófinni.
ALÞÝÐUMAÐURINN ræðir nokk-
uð hitaveitumálið þriðjudag-
inn 23. f. m. og telur aö umræður ísl.
og Dags undanfariö, gefi til kynna að
það eigi að vera kosningamál næsta
vetur, — E. t. v. má ráða það af
»Degi« nyiega, að honum leiki
hugur i því, og mun engum þykja
ótrúlegt, sem man hinar stóru fyrir-
sagnir blaðsins um rafveitulán V. í*or
fyrir bæjarstjórnarkosningarnar síö-
ustu. Nú á Jónas frá Hriflu að vera
einskonar faöir jaröhitans, eftir því,
sem helzt er á blaðinu að skilja. —
Og það talar um að það sé »sorg-
legt, þegar ímyndaðir flokkshags-
munir spilla fyrir framgangi góðra
mála, eins og átti sér staö um hita-
veitu Reykjavíkur*. Hvort það
hefir veriö af því, að Framsóknar-
menn álitu Sjálfstæöismenn hafa
flokkslegan hag af framgangi máls-
ins, að þeir töfðu það eins og þeir
framast gátu, skal ósagt látið. En
fullrægjandi skýring á þeirri staö-
reynd hefir aldrei fengist. Hitt er
útlit fyrir, að hér á Akureyri verði
Framsóknarmenn yfirleitt með mál-
inu, eins og tekið mun hafa verið
fram hér í blaðinu áður,
Opinberan fund
héldu Sjálfstæðisfélögin hér í Sam-
komuhúsinu s. 1. þriðjudagskvöld.
Fundinn sóttu um 300 manns. Stóð
hann í fullar tvær klukkustundir,
Þessar ræöur voru fluttar: Sig.
Ein, Hlíðar: Um verzlunarmál, Sig,
Eggerz: Um Sjálfstæðismálið, Frk.
Arnfinna Björnsdóttir: Konan og
stjórnmálin, Fru jónheiður Eggerz :
Um stéttaríg, Jón Solnes: Um fjár-
mál. Jakob Ó. Pétursson: Komm-
únisminn, og Jóhann Hafstein: Stefna
Sjálfstæðisflokksins. Fundurinn fór
mjög vel fram og var mjög almenn
ánægja látin í Ijós yfir honum.
Kolafarm fékk Kolaverzlun
Ragnais Ólafssonar með e. s: Snæ-
fell s. 1. föstudag.
Itókavinir
Þjóðvinafélagið og Menning-
arsjóður hafa ákveðið að
gefa út f sameiningu þess-
ar bækur:
1. Almanak pjóðvinalélagsins.
2. Andvari.
3. Barði Guðm.: Leitinaö höl. Njálu
4. Hoxley A.: lakmörk og leiðir
5. Jóh. Sæm.; Alpýðleg heílsulræði
6. Hamsun. Sullur
7. L. Strachey: Viktoria Englands-
drotning.
Verð allra þessara 7 bóka
er a ð e i n s kr. 10 oo
Bókusufn bókavinlr!
tJeUa er einstakt bókatilboð.
Gerist áskrifendur hið fyrsta.
Áskriftalisti liggur frammi í
Bókaversl.
Þ. Thorlacius
Bolliulayurinn er á nianiKlayinn
Eins og að undanförnu fáið
þér vönduðustu og beztu
bollurnar i Brauðgerð K.E.A.
Heitar bollnr veróa til allan sunnndaginn.
Munið K' E.A, bollur eru beztar!
Brauðgerð K. E.A.
VIKAN
Gerist áskrifendur að stærsta, skemratileg-
asta og fjölbreyttasta blaði landsins. -
Útsölumenn:
Akureyrarumdæmi
Richardt Rvel.
Eyjafjarðarsýsla
Arni Bjarnarson, Skjaldborg■
Dagur og fjárlögin.
»Dagur« 15. i. m. reynir að koma
lesendum sínum í skilning um, að
ekki hafi gæfulega til tekist með
niðurskurð á fjárlögunum í þetta
sinn, þótt Sjálfstæðismenn réðu meiru
en áður um afgreiðslu þeirra. Tel-
ur hann, að fjárlagafrumvarpið, sem
Eysteinn Jónsson lagði fyrir þingið,
hafi hækkað í meðförum þess um
1,6 milj krónur, Hafi á fjárlaga
frumvarpinu upphaílega verið gert
ráð fyrir 17,8 milj. króna greiðslum
úr ríkissjóði.
En nú vill svo til, aö fjárlögin
eru einmitt samþykkt með 17,8 milj.
króna útgjöldum, svo að ekki er
þarna um hækkun að ræða. f*ó er
það vitað, að óhjákvæmilegar hækk-
anir vegna gengisfajlsins og ófriðar-
ins nema nokkuð á aðra miljón
króna og vextir og afborganir af
Esjuláninu koma nú inn á fjárlögin,
Niðurstaðan verður því sú, að þrátt
fyrir að fjárlögin hafa farið mjög
liækkandi irá ári til árs undanfarið,
hefir nú verið staðar numið á þeirri
braut, enda þótt um meira en miljón
•sé að ræða vegna gengisfafls og
styrjaldar. Heldur »Dagur«, að
Framsóknarmenn hefðu gert þetta
með Alþýðuflokknumr
Agætt herbergi
lief eg til leigu nú þegar.
Tómas Björnsson.
Barnastúkan Sakleysið heldur fund
n. k. sunnud. á venjulegum stað og
tíma. Kosning embættismanna.
mmmmammmm
Vasabók,
með litprentuðum
landabréfum af öll-
um heimiuum; nauð-
synleg öllum sem
fylgjast vilja með í
ófriðarfréltunum
f æ s t í
Bikaversl.
Þ. Thorlacius
Gúmmískdr
fást í skóvinnustofu
[. M. jónatanssonar Strandg. 15
,Geysir‘
Annað gleðikvöld félagsins
verður haldið í Samkomu-
húsi bæjarins 10. þ. m.
— Nánar auglýst síðar —
S TJÓRN/N.
Kaupum
tóm sultuglös (hrein) með skrúf-
uðu loki.
Nýja kjötbúðin.
Leikiélag Akureyrar biður
þess getið, að börnum innan 12 ára
aldurs verði ekki leyfður aðgangur
að næstu sýningum félagsins og alls
engum börnum að fruir.sýningunni.
FRÉTTIR:
Dánartregn. Nýiega er látinn
vestan hafs dr. Rtígnvaldur Péturs-
son, einn áf þekktustu og mikilhæf
ustu löndum vorum þar.
Kariakór Akureyrar minntist
10 ára afmælis síns með fjölmennu
samsæti í Samkomuhúsinn s. 1. laug-
ardag. Voru margar íæður íluttar
undir borðum, en á eftir söng kór-
inn nokkur lög. Því næst var
dansað fram undir moigun. Stofn-
andi kórsins og stjórnandi frá upp-
hafi er Áskell Snorrason tónskáld.
Sjálistæðistéiag Akureyrar
hélt fund að Hótel Gullíoss s. 1.
sunnudag. Var hann vel sóttur. —
Jóhann Hafstein erindreki Sjálfstæðis-
flokksins flutti erindi. Þá voru og
kosnir 2 menn til að mæta á lands-
fundi Sjálfstæðisflokksins. Kosnir
voru Sig. Eggerz bæjarfógeti og
Axel Kristjánsson kaupm.
DánardægurNýlega er látinn
að Götu á Árskógssti'önd Stefán
Árnason frá Steinsstöðum í Öxnadal
f. 10. júlí 1860. Verður hans nán-
ar getið síðar.
Þá er nýlega látinn í Reykjavík
frú Marsilla Kristjánsdóttir kaupkona.
Átti hún lengi heima hér á Akur-
eyri.
Brauðverð hækkaði í Reykja-
vík í morgun. Rúgbrauð um 15
aura brauðið og annað brauð í líku
hlutfalli.
Kaupum nú
góða sjóvettlinga
Verðið hækkað.
Vöruhús Akureyrar.
Beztu bdkakanpin
E’jóðvinafélagið og Menningar-
sjóður hafa ákveöið samvinnu
um bókaútgáfu og gefa í ár út
þessar bækur:
1. Almanakþjóðvinafélagsins
2. Andvari
3. T. E. Lawrence: Uppreisn-
in á eyðimörkinni.
4. A. Huxley: Takmörk og
leiðir.
5. Jóh. Sæmundsson: Alþýð-
leg heilsufræði.
6. Knut Hainsun: Sultur
7. L. Strachey: Viktoria
Englandsdrottning.
Verð allra þessara bóka er
aðeins 10 krónur fyrir A-
skrifendur. ÁskriftarlistiIJjóð-
vinafélagsins liggur frammi 1
Bökaverzl. Gunnl. Tr. Jónssonar
i