Íslendingur - 09.02.1940, Page 2
2
ISLENDINGUR
Konan mín, Ingilína /ónasdóttir, andaöist að heimili
okkar, Aðalstræti 21, 8. þ. m.
Guðlaugur Pálsson.
Pað tilkynnist vinum og vandamönnum, að móðir okkar og
tengdamóðir, Kristín Jónsdóttir frá Sigtúnum, andað-
ist að heimili sínu, helga magrastræti 13, miðvikudaginn 7.
þ. m. — Jarðarförin fer fram fimmtudag 15. febrúar frá heim-
ili hinnar látnu kl. 1 e. h.
Akureyri 8. febrúar 1940.
Börn og tengdabörn.
Á HU'GI.
Stundum heyri ég miðlungi vel
gefna menn álasa Matthíasi Jochums-
syni fyrir mælgi hans, sem þeir
kölluðu, í blöðum og tímaritum.
Slíkir menn skildu eigi það, að á-
hugaríkur andans maður er gjaf-
mildur og fús að miöla af auðlegö
sinni.
Bólu Hjáimar nefnir þessa hvöt
ljótu heiti. Hann segist »aldrei geta
kjafti þagað* og fyrir þá ástríðu
hlotiö óvinsældir.
Lífskjör Hjálmars gerðu hann
tannhvassau, En þó Matthías væri
févana löngum, kom hann samt ár
sinni þannig fyrir borð, að hann
átti þess kost, að skiptast á orðum
og bréfum við andlega úrvalsmenn
úti i víðri veröld jafnt sem innan-
anlands.
Það sálufélag hélt honum glað-
vakandi og í góðu skapi, Ágætt
andlegt mötuneyti er til þess fallið
að glæða áhuga og halda honum
velvakandi.
Matthías mun hafa vitað, aö eng-
inn er af sjálfum sér fullkominn, og
að stórmennin, jafnvel þau, eru
þiggjendur jafnt sem gefendur.
Stórskáldiö fékk stundum efni í góð
kvæði meðal fátækrar alþýðu. Þann-
ig gáfu fátæklingar auðmanninum
efnivið, og hann gaf svo aítur á
mót smíðisgripi alþjóð.
Áhugi er í rauninni náskyldur
uppsprettu, sem þarf að fá útrás og
ryður hömlum úr vegi. Skáld, sem
vantar áhuga, verður að andlegum
krypplingi, íyrri eða síðar, eða þá
að smáskáldi, þó að hæfileika hafi
hlotið í vöggugjöf.
Eitt sinn kvaddi ég Matthías í
sfma, var þá að snúa heimleiðis frá
Akureyri. Mér datt í hug að freista
öldungsins með formálalausri glettni
og sagði við hann:
»Geturðu sagt mér Sigurhæða’oúi,
hvernig ég muni geta haldið mér
andlega ungum til æfiloka?*
Matthfas svaraði samstundis.
»1*30 get ég sagt þér minn elsku-
legi. — meö því að skipta oft um
skoðanir*.
Við hálf-hlógum báöir.
Ég bað ekki um útlistun á srari
hans, En ég skildi það svo, að hann
ætti við nauðsyn þess, að eignast
ný og ný viðhorf.
Lífið er á faraldsfæti og málefni
mannlífsins breytast frá morgni til
kvölds, eftir því sem 9kin eða
skuggi falla á atriði og þætti við-
burðanna ellegar á mennina sjálfa
á taflborði lífsins.
Þorsteinsdóttir. Hlutverk hennar er
hið vandasamasta af öllum hlutverk-
um leiksins, en hún skilar því mjög
myndarlega og vekur með því von-
ir um, að hún hafi yfir talsverðum
»dramatískum« hæfileikum að ráða.
Leikur Átna Jónssonar er og góður
að vanda, en hlutverk hans er létt-
ara. Með smáhlutverk í leiknum
fara: Gústav Jónasson, Jóhann Krist-
jánsson, f’órir Guðjónsson og ung-
frú Margrét Ólafsdóttir. I.eikstjóri
er Árni Jónsson.
Frumsyningunni var mjög vel
tekið, og voru aðalleikendurnir klapp-
aðir fram á eftir.
Uppsprettueðli Matthiasar verður
eigi ger kannað í þessari smágrein.
En þess vegna drep ég nú á það,
að mér kemur það ávalt í hug,
þegar ég sé ritgerð eftir Steingrím
lækni son hans.
í5ó hann sé nú roskinn að aldri
og dvelji einmana utanlands, (þ. e.
einn síns liðs) ritar hann um lifið
og viðburði þess sem ungur væri
og þó af meira fjöri en flestir ungir
menn gera.
Fjör og fróöleikur þessa heims-
borgara leitar æ og æfinlega föður-
húsanna, þ. e. íslenzkra byggða.
Og hann er meira skáld í sundur-
lausu máli en faðir hans, svo fleyg-
ur er hann og fær, geyminn á
fornar álnir og fastheldinn um ný
verömæti.
Óvitrir menn, sem eigi eru sendi-
bréfsfærir, kalla greinar hans sund-
urlausan vaðal. En það mætti meö
sama órétti segja um greinar Grön-
dals, þess fluggáfaöa fjörkálfs.
Því fer betur, að andlegir fim-
leikamenn eru til, andspænis þurr-
brjósta rökfræðingum,
Enginn skyldi ámæla höfundi lifs-
ins fyrir fjölbreytnina. Rikidæmi
hans sézt m. a. í fjölskrúðinu.
Þess má geta, að oss sem nú
erum ofanjarðar, skortir eigi fyrst
og fremst orð, á almannafær'.
En sumir menn, sem rita af inni
hvöt, eru góðgeröamenn þjóðar
vorrar. Steingrímur Matthíasson er
einn þeirra manna.
Eg hefi ávalt lesið greinar hans
frá því fyrst er hann kom fram í
Gjallarhorni, þá og þar með ferða-
pistla, sem sögðu frá sjóferðum
hans um veraldarhöfin og feiðalög-
um um þjóðlöndin.
Nú skrifar hann ööru hverju
frá Danmörk, og enn eru fjörsporin
og vekuröin með sama hætti og
fyrrum.
Hvort sem örlaganorn hans veitir
honum byrsæld heimleiðis eða biaut-
argengi erlendis, vil ég aö hann
sjái það svart á hvítu, að hann á
ítök á ættjörðinni.
Uess er nú óskað frá minni hálfu,
að blekbytta hans hafi eigi botn-
frosið í vetrarhörkunum, sem ganga
yfii Danmörk í vetur, og að hon-
um hafi tekist aö vernda penna sinn
fyiir ryðbruna, úti þar í Borgundar-
hólmi, sem forðum fóstraði Búa
digra. —
Ouðmundur Friðjónsson.
F/ugvé/inni hlekkist á,
Það bar til s, l. laugardag, er
flugvélin T F Örn ætlaði að hefja
sig til flugs á Skerjafirði og fljúga
með Bjarna Ásgeirsson upp á Mýrar,
að vindhviða hvolfdi henni. Bjarni
synti í land um 30 metra vegalengd
en hinir héldu sér á skiðum vélar-
innar þar til hjálp barst úr landi,
Fiugvélin varð fyrir svo miklum
skemmdum, að óvíst er, að við
hana verði gert,
Ungmennastúkan Akurlilja nr. 2
heldur fund í Skjaldborg næstk.
sunnudag kl. 8.30 e. h. — Kosning
embættismanna, smáleikur o. fl.
Mndarkosningar í
bæjarstj. Akureyrar.
Á fundi bæjarstjórnar 6, þ. m.
fór fram kosning forseta og fastra
nefnda.
Forseti var kosinn Arni Jóhanns
son með 5 atkv. Brynl. Tobiasson
hlaut 4.
Varoforseti Indriði Helgason.
Skrifarar: Axel Kristjánsson og
Jóh. Jónasson.
Allsherjarnefnd: Indriði Helga-
son, Jóh Jónasson og Steingrímur
Aðalsteinsson.
Fjárha^snefnd: Jakob Karlsson,
Þorst. Stefánsson og Stgr. Aðal-
steinsson.
Vatnsveitunefnd: Axel Kristjáns-
son, Stgr. Aöalsteinsson, Erl. Frið-
jónsson.
Veganejnd: Brynl. Tobiassoiij Jóh.
Jónasson, Stgr. Aðalsteinsson.
Rafve'ltunefnd: lndriði Helgason,
Axel Kristjánsson, Jónas Éór, Þorst.
Þorsteinsson, Erl. Friðjónsson.
jarðeignanefnd; Jakob Karlsson,
Ólafur Jónsson, Arni Jóhannsson,
Magnús Gíslason, Hafsteinn Hall-
dórsson.
Sundnejnd: Axel Kristjánsson,
Jóh. Jónasson, f*orst. Uorsteinsson.
Brunamálanefnd; Brynl. Tobías-
son, Halld, Friöjónsson, Þorst. Stef-
ánsson, Magnús Gíslason, (slökkvi-
liðsstj. sjálfkjörinn).
Húseignanefnd: Brynl. Tobíasson,
Árni Jóhannsson, Elísabet Eiríks-
dóttir.
Kjörskrárnefnd: Jakob Karlsson,
Jóh. Jónasson, f*orst, f’orsteinsson.
Búfjárrœktarnefnd'. Brynl. Tobias-
son, Svanl. Jónasson, Gestur Jóhann-
esson,
Hafnarnefnd'. Jakob Karlsson,
Tómas Björnsson, Erl, Friðjónsson,
Zoph. Árnason.
Bygginganefnd: Indriði Helgason,
Ólafur Ágústsson, Jón Austfjörð,
Árni Jóhannsson.
Sóttvarnarnefnd: Steindór Stéin-
dórsson.
Heilbrigðisnefnd: Árni Jóhanns-
son.
Verðlagsnejnd'- Jóh. Jónasson.
Sjúkrasamlagsnejnd: Vald. Steff-
ensen, Árni Jóhannsson, Stgr. Jóns-
son, f*orst. Þorsteinsson.
Yfirkjörstjórn: Axel Kristjánsson,
Halldór Friðjónsson.
77/ vara: Indriöi Helgason, fór
arinn Björnsson.
Undirkjörsijórn: Friörik Magnús-
son, Ingimar Eydal, Áskell Snorra-
son.
77/ vara: Brynl. Tobiass., Guðm:
Guðlaugsson, f’orst, f’orsteinsson.
Endurskoðendur bœjarreikninga •
Páll Einarsson, Jón Hinriksson.
77/ vara: Jón Kristjánsson, Helgi
Daníelsson
Stjórn Sparisjóðs Akureyrar: Jón
Sveinsson, Fórarinn Björnsson.
Endurskoðendur Sparisjóðs Ak.;
Axel Kristjánsson, Brynjólfur Sveihs-
son.
7/7 vara: Indriði Helgason, Eirík-
ur Sigurðsson.
Sa/a happdrættismiöa tii á-
góða fyrir íþróttahús Ak. hefst á
sunnudaginn. Munirnir verða til
sýnis í glugga á Ryels verzlun næstu
viku
Dánardægur. í gær andaðist
að heimili sínu Aðalstræti 21 hér í
bæ Ingilína Jónasdóttir, kona Guð-
laugs Pálssonar smiðs. Þá er ny
látin hér í bæ Kristín Tónsdóttir
ekkja Péturs Gunnarssonar frá Sig-
túnum.
Leikté/ag Akureyrar sýnir n,
k. sunnudag leikina »Apaloppan« og
»Hin hvíta skelfingc, Ekki leikiö á
laugardaginn.
76 ára veröur á morgun Lárus
Thorarsesen Strandgötu 39.
„Verður
félag ungra Sjálfstæðismanna
heldur fund að Hótel Gullfoss
sunnud, 11. þ.m. kl. 1,30 e.h.
D AGSKRA:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Pegnskylduvinna.
3. Sambandsþingið.
4. Skrifstofumálið.
5. Framtíðarstarfsemi.
6. Önnur mál.
Stjórnin,