Íslendingur

Ataaseq assigiiaat ilaat

Íslendingur - 09.02.1940, Qupperneq 2

Íslendingur - 09.02.1940, Qupperneq 2
2 ISLENDINGUR Konan mín, Ingilína /ónasdóttir, andaöist að heimili okkar, Aðalstræti 21, 8. þ. m. Guðlaugur Pálsson. Pað tilkynnist vinum og vandamönnum, að móðir okkar og tengdamóðir, Kristín Jónsdóttir frá Sigtúnum, andað- ist að heimili sínu, helga magrastræti 13, miðvikudaginn 7. þ. m. — Jarðarförin fer fram fimmtudag 15. febrúar frá heim- ili hinnar látnu kl. 1 e. h. Akureyri 8. febrúar 1940. Börn og tengdabörn. Á HU'GI. Stundum heyri ég miðlungi vel gefna menn álasa Matthíasi Jochums- syni fyrir mælgi hans, sem þeir kölluðu, í blöðum og tímaritum. Slíkir menn skildu eigi það, að á- hugaríkur andans maður er gjaf- mildur og fús að miöla af auðlegö sinni. Bólu Hjáimar nefnir þessa hvöt ljótu heiti. Hann segist »aldrei geta kjafti þagað* og fyrir þá ástríðu hlotiö óvinsældir. Lífskjör Hjálmars gerðu hann tannhvassau, En þó Matthías væri févana löngum, kom hann samt ár sinni þannig fyrir borð, að hann átti þess kost, að skiptast á orðum og bréfum við andlega úrvalsmenn úti i víðri veröld jafnt sem innan- anlands. Það sálufélag hélt honum glað- vakandi og í góðu skapi, Ágætt andlegt mötuneyti er til þess fallið að glæða áhuga og halda honum velvakandi. Matthías mun hafa vitað, aö eng- inn er af sjálfum sér fullkominn, og að stórmennin, jafnvel þau, eru þiggjendur jafnt sem gefendur. Stórskáldiö fékk stundum efni í góð kvæði meðal fátækrar alþýðu. Þann- ig gáfu fátæklingar auðmanninum efnivið, og hann gaf svo aítur á mót smíðisgripi alþjóð. Áhugi er í rauninni náskyldur uppsprettu, sem þarf að fá útrás og ryður hömlum úr vegi. Skáld, sem vantar áhuga, verður að andlegum krypplingi, íyrri eða síðar, eða þá að smáskáldi, þó að hæfileika hafi hlotið í vöggugjöf. Eitt sinn kvaddi ég Matthías í sfma, var þá að snúa heimleiðis frá Akureyri. Mér datt í hug að freista öldungsins með formálalausri glettni og sagði við hann: »Geturðu sagt mér Sigurhæða’oúi, hvernig ég muni geta haldið mér andlega ungum til æfiloka?* Matthfas svaraði samstundis. »1*30 get ég sagt þér minn elsku- legi. — meö því að skipta oft um skoðanir*. Við hálf-hlógum báöir. Ég bað ekki um útlistun á srari hans, En ég skildi það svo, að hann ætti við nauðsyn þess, að eignast ný og ný viðhorf. Lífið er á faraldsfæti og málefni mannlífsins breytast frá morgni til kvölds, eftir því sem 9kin eða skuggi falla á atriði og þætti við- burðanna ellegar á mennina sjálfa á taflborði lífsins. Þorsteinsdóttir. Hlutverk hennar er hið vandasamasta af öllum hlutverk- um leiksins, en hún skilar því mjög myndarlega og vekur með því von- ir um, að hún hafi yfir talsverðum »dramatískum« hæfileikum að ráða. Leikur Átna Jónssonar er og góður að vanda, en hlutverk hans er létt- ara. Með smáhlutverk í leiknum fara: Gústav Jónasson, Jóhann Krist- jánsson, f’órir Guðjónsson og ung- frú Margrét Ólafsdóttir. I.eikstjóri er Árni Jónsson. Frumsyningunni var mjög vel tekið, og voru aðalleikendurnir klapp- aðir fram á eftir. Uppsprettueðli Matthiasar verður eigi ger kannað í þessari smágrein. En þess vegna drep ég nú á það, að mér kemur það ávalt í hug, þegar ég sé ritgerð eftir Steingrím lækni son hans. í5ó hann sé nú roskinn að aldri og dvelji einmana utanlands, (þ. e. einn síns liðs) ritar hann um lifið og viðburði þess sem ungur væri og þó af meira fjöri en flestir ungir menn gera. Fjör og fróöleikur þessa heims- borgara leitar æ og æfinlega föður- húsanna, þ. e. íslenzkra byggða. Og hann er meira skáld í sundur- lausu máli en faðir hans, svo fleyg- ur er hann og fær, geyminn á fornar álnir og fastheldinn um ný verömæti. Óvitrir menn, sem eigi eru sendi- bréfsfærir, kalla greinar hans sund- urlausan vaðal. En það mætti meö sama órétti segja um greinar Grön- dals, þess fluggáfaöa fjörkálfs. Því fer betur, að andlegir fim- leikamenn eru til, andspænis þurr- brjósta rökfræðingum, Enginn skyldi ámæla höfundi lifs- ins fyrir fjölbreytnina. Rikidæmi hans sézt m. a. í fjölskrúðinu. Þess má geta, að oss sem nú erum ofanjarðar, skortir eigi fyrst og fremst orð, á almannafær'. En sumir menn, sem rita af inni hvöt, eru góðgeröamenn þjóðar vorrar. Steingrímur Matthíasson er einn þeirra manna. Eg hefi ávalt lesið greinar hans frá því fyrst er hann kom fram í Gjallarhorni, þá og þar með ferða- pistla, sem sögðu frá sjóferðum hans um veraldarhöfin og feiðalög- um um þjóðlöndin. Nú skrifar hann ööru hverju frá Danmörk, og enn eru fjörsporin og vekuröin með sama hætti og fyrrum. Hvort sem örlaganorn hans veitir honum byrsæld heimleiðis eða biaut- argengi erlendis, vil ég aö hann sjái það svart á hvítu, að hann á ítök á ættjörðinni. Uess er nú óskað frá minni hálfu, að blekbytta hans hafi eigi botn- frosið í vetrarhörkunum, sem ganga yfii Danmörk í vetur, og að hon- um hafi tekist aö vernda penna sinn fyiir ryðbruna, úti þar í Borgundar- hólmi, sem forðum fóstraði Búa digra. — Ouðmundur Friðjónsson. F/ugvé/inni hlekkist á, Það bar til s, l. laugardag, er flugvélin T F Örn ætlaði að hefja sig til flugs á Skerjafirði og fljúga með Bjarna Ásgeirsson upp á Mýrar, að vindhviða hvolfdi henni. Bjarni synti í land um 30 metra vegalengd en hinir héldu sér á skiðum vélar- innar þar til hjálp barst úr landi, Fiugvélin varð fyrir svo miklum skemmdum, að óvíst er, að við hana verði gert, Ungmennastúkan Akurlilja nr. 2 heldur fund í Skjaldborg næstk. sunnudag kl. 8.30 e. h. — Kosning embættismanna, smáleikur o. fl. Mndarkosningar í bæjarstj. Akureyrar. Á fundi bæjarstjórnar 6, þ. m. fór fram kosning forseta og fastra nefnda. Forseti var kosinn Arni Jóhanns son með 5 atkv. Brynl. Tobiasson hlaut 4. Varoforseti Indriði Helgason. Skrifarar: Axel Kristjánsson og Jóh. Jónasson. Allsherjarnefnd: Indriði Helga- son, Jóh Jónasson og Steingrímur Aðalsteinsson. Fjárha^snefnd: Jakob Karlsson, Þorst. Stefánsson og Stgr. Aðal- steinsson. Vatnsveitunefnd: Axel Kristjáns- son, Stgr. Aöalsteinsson, Erl. Frið- jónsson. Veganejnd: Brynl. Tobiassoiij Jóh. Jónasson, Stgr. Aðalsteinsson. Rafve'ltunefnd: lndriði Helgason, Axel Kristjánsson, Jónas Éór, Þorst. Þorsteinsson, Erl. Friðjónsson. jarðeignanefnd; Jakob Karlsson, Ólafur Jónsson, Arni Jóhannsson, Magnús Gíslason, Hafsteinn Hall- dórsson. Sundnejnd: Axel Kristjánsson, Jóh. Jónasson, f*orst. Uorsteinsson. Brunamálanefnd; Brynl. Tobías- son, Halld, Friöjónsson, Þorst. Stef- ánsson, Magnús Gíslason, (slökkvi- liðsstj. sjálfkjörinn). Húseignanefnd: Brynl. Tobíasson, Árni Jóhannsson, Elísabet Eiríks- dóttir. Kjörskrárnefnd: Jakob Karlsson, Jóh. Jónasson, f*orst, f’orsteinsson. Búfjárrœktarnefnd'. Brynl. Tobias- son, Svanl. Jónasson, Gestur Jóhann- esson, Hafnarnefnd'. Jakob Karlsson, Tómas Björnsson, Erl, Friðjónsson, Zoph. Árnason. Bygginganefnd: Indriði Helgason, Ólafur Ágústsson, Jón Austfjörð, Árni Jóhannsson. Sóttvarnarnefnd: Steindór Stéin- dórsson. Heilbrigðisnefnd: Árni Jóhanns- son. Verðlagsnejnd'- Jóh. Jónasson. Sjúkrasamlagsnejnd: Vald. Steff- ensen, Árni Jóhannsson, Stgr. Jóns- son, f*orst. Þorsteinsson. Yfirkjörstjórn: Axel Kristjánsson, Halldór Friðjónsson. 77/ vara: Indriöi Helgason, fór arinn Björnsson. Undirkjörsijórn: Friörik Magnús- son, Ingimar Eydal, Áskell Snorra- son. 77/ vara: Brynl. Tobiass., Guðm: Guðlaugsson, f’orst, f’orsteinsson. Endurskoðendur bœjarreikninga • Páll Einarsson, Jón Hinriksson. 77/ vara: Jón Kristjánsson, Helgi Daníelsson Stjórn Sparisjóðs Akureyrar: Jón Sveinsson, Fórarinn Björnsson. Endurskoðendur Sparisjóðs Ak.; Axel Kristjánsson, Brynjólfur Sveihs- son. 7/7 vara: Indriði Helgason, Eirík- ur Sigurðsson. Sa/a happdrættismiöa tii á- góða fyrir íþróttahús Ak. hefst á sunnudaginn. Munirnir verða til sýnis í glugga á Ryels verzlun næstu viku Dánardægur. í gær andaðist að heimili sínu Aðalstræti 21 hér í bæ Ingilína Jónasdóttir, kona Guð- laugs Pálssonar smiðs. Þá er ny látin hér í bæ Kristín Tónsdóttir ekkja Péturs Gunnarssonar frá Sig- túnum. Leikté/ag Akureyrar sýnir n, k. sunnudag leikina »Apaloppan« og »Hin hvíta skelfingc, Ekki leikiö á laugardaginn. 76 ára veröur á morgun Lárus Thorarsesen Strandgötu 39. „Verður félag ungra Sjálfstæðismanna heldur fund að Hótel Gullfoss sunnud, 11. þ.m. kl. 1,30 e.h. D AGSKRA: 1. Inntaka nýrra félaga. 2. Pegnskylduvinna. 3. Sambandsþingið. 4. Skrifstofumálið. 5. Framtíðarstarfsemi. 6. Önnur mál. Stjórnin,

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.