Íslendingur

Útgáva

Íslendingur - 16.02.1940, Síða 1

Íslendingur - 16.02.1940, Síða 1
Ritstjóri og afgreiðslum.: Jakob O. Pétursson, Fjólugötu 1. Sími 375. Pósthólf 118. XXVI. árgangur.í Akureyri, 16. febrúar 1940 7. tölubl. Kosningadraumar Tímamanna Það hefir borið óvenju mikið á því undanfainar vikur, að Jónas Jónsson 0{j aðrir Tímamenn væru að ympra á því, að kosningar gætu orðið í vor. Þeir hafa þó jafnan látið það fylgja, að ef svo færi, væri það að kenna kröfum frá Sjálfstæðisflokknum, sem ó- mögulegt væri að verða við, og yrðu því samvinnuslit í stjórninni alls ekki Frarnsókn að kenna, ef til hennar kæmi. Hafa þeir jafn- framt lagt ríka áherzlu á það, að þjóðstjórnarmyndunin væri Fram- sókn að þakka, og væri mjög leitt til þess að hugsa, ef Sjálfstæðis- menn færu nú að eyðileggja þetta samstarf, sem hún hefði lagt svo mikið á sig til að bvggji upp! Það er öllum kunnugt, að þegar Sjálfstæðismenn tóku sæti í rfkis- stjórninni, var það með þeim skil- yrðum, að eitthvað yrði bæít úr stærstu misfellunum, er verið höfðu undanfarin ár á framkværnd nokk- urra niála, þar á meðal gjaldeyris- málunum, og unnið að því að koma á meira léítlæti í meðferð þeiira, Það var lika vitað, að ekkert skilyrði rnundi . Framsóknar- flokknum falla þyngra að uppfylla en einmitt þetta, — að koma gjald- eyrismáiunum í réttlátara horf, því þar hafði óiéltlætið verið honum flokkslegur styrkur, En áður en þessu skilyrði væri fullnægt skall Evrópustyijöidin yfir, og verkefni ríkisstjórnarínnar jukust og margfölduðust. Allir valdamenn hinna ábyrgu fiokka stóðu þétt saman um þær ófriðarráðstafanir, er gerðar voru og lögðu áður ó- þekktar kvaðir og hönilur á þegn- ana, Var þessum ráðstöfunum tek- ið af skilningi og þegnskap í öllum flokkum og ölium stéttum, eins og kunnugt er, En þessir viðsjár- verðu tímar leiddu í ijós, að sam starf flokkanna í ríkisstjórninni hafði verið nauðsynlegt til að koma fram ýmsurn nýmælum, er leiddi af ófriðnum og til þess að tryRgja það samstarf enn betur, lagði Sjálfstæðisflokkurinn hin ó- uppfylltu skilyrði á hiliuna og hefir ekki hreyft við þeim enn. Það væri því í hæsta máta óheið- arlegur máltlutningur að saka Sjálf- stæðisflokkinn um að gera sam- starfið erfiðara í þjóðstjórninni. Ýmsir hafa furðað sig á því, hve heiftarlega hefir verið ráðist á Sjál'stæðisftokkinn í Tímanum und- anfarna dsga. Tilefni þessara á- rása virðist vera það, að Sjálfstæð- isblöðin í Reykjavík hafa fundið að þvh aðjverðlagi á kjöti oz mjólk- urvörum skyldi vera sleppt alger- lega lausu á innlendum markaði meðan kaupgjald neylenda þessara vara er lögbundið, en í gengislög- unum var gert ráð fyrir að hvort- tveggja hækkaði í jöfnu hlutfalli. Hafa Sjáifstæðisblöðin sýnt fram á, að með því að sleppa öllum tök- um á verðlagi innlendra framleiðslu- vara hafi ríkisvaldið gefist upp við að halda í við dýitíðina. Því meira, sem innlend neyzluvara hækkar í verði, því meira hækkar kaupið, þ. e. því hærri verður verðvísitalan, sem lögð er til grund- vallar fyrir kaupinu. Tíminn hefir tekið þessum at- hugasemdum eins og hans er von og vísa. Hann hefir engu öðru svarað en þvl, að Sjálfstæðismenn sjái ofsjónum yfir því, að bænd- urnir fái bætt kjör. Hdt hefir Tíminn ekki enn sýnt með tölum, að hve miklu Ieyti verðhækkun kjölsins, sein nema mun 30 aurum á hvert kg. í Reykjavík, kemur bændum til góða. Aftur á móti hefir það upplýstst, að af 4 aura hækkun á hverjum mjólkurlítra þar hafa framleiðendurnir fengið 1 eyri. Meðan því Tíminn nefnir ekki töl- ur, sem sýna, hve mikið framleið- endur fá af þessari miklu verðhækk- uu kjötsins, hljóta menn að líta svo á, að verulegur hluti hækkun- arinnar komi öðrum til góða. Alþýðublaðið hefir borið fram samskonar athugasemdir víð verð- hækkun þessa og Sjálfstæðisblöðin, Timinn víkur vaila oiði að því. Þar mun ekki vera um að ræða ofsjónir yfir hlut bændanna! En þegar siíkar athugasemdir koma fram í Sjálfstæðisbíöðunum, þá fer kvörnin í gang. Og nú er Þórar- inn Þórarinsson ritstj látinn maia gamla róginn og níðið um Sjáif- stæðisflokkinn, sem nokkurn und- anfarinn tíma hefir aðeins sézt í rússnesku blöðunum, sem gefin eru út hér á landi. I grein hans : »Sjálfstæðisflokkurinn kru?inn», sem birtist í Tírranum 3. þ. m. eru hin gömlu stóryrði um SjáHstæðismenn tínd saman með þeim hætt;, að eigi þarf um að villast, hvað »til- stendur* fyrit Framsókn. Sjálfstæð- isilokknum er þannig lýst, að hann sé borinn uppi af mönnum, sem græði á dýrtíðinni, en það séu knupmenn, húsaleigubraskarar og peningamenn, sem láni fé sitt út með okurvöxturn. Aukin dýr- tíð þýði aukinn gróði fyrir þá. Mukmið þessara manna »sé að tryggj1 sem bezt efnahagslega af- stöðu sína og gróðamöguleika* á kostnað vinnandi stéttanna. Flokk- urinn lofar einni stéttinni því, sem annari kemur illa. Málflutningur- inn er blekkingar og lýðskrum, en aldrei yrði hirt um að efna annað af lofotðum hans en það, sem gróðamönnunum kemur ve! o, s. frv. Og »b!ekkingaskva!dur Sjálf- stæðisflokksins* hafði »nýlega bor- ið þann árangur*, að flokkurinn fékk »meirihluta I stjórnum tveggja stærstu verklýðsfélaga landsins« (!) Eftir þessu er öll greinin. Þann- ig er Sjáifstæðisflokkurinn krufinn. Þórarinn ritstjóri brettir upp fyrir olnboga, »fer innan í« Sjálfstæðis- flokkinn og kemur út með þessar niðurstöður, sem flestar eru gamal- tuggnar, — nema ein, — sú, að vegna »b!ekkingaskvaidurs Sjálfstæð- ismanna* hafa kommúnistar tapað yfirráðunum í Dagsbrún, slærsta verklýðsféiaginu á landinu! Von að manninum sárni! En Þjóðviljinn verður svo hrifinn af hinum óvænfa liðsmanni, að hann endurprentar mikið af greininni. Þeir eru margir, sem furða sig á þessu óvænta áhlaupi I Tímati- um eítir hin mörgu skrif J. J. um nauðsyn flokkasamvinnunnar. F.n aðrir skilja, hvað fyiir þeim vakir. Þegar Rússar gerðu bandalag við nazista og réðust skömmu síð- ar á Finna, var vitað, að ílokkur kommúnista hér á landi mundi gjalda hið hesta afliroð. Alþýðu- flokkurinn hafði góða von um að geta innbyrt eitthvað af flótta- rr!Önnunum úr Komnuinistafiokkn- um og náð sfnu gamla gengi. Framsóknarliokkurinn hefir öðiast samskonar von, og báða þessa flokka farið að dreyma s!óra drauma um að geta endurnýjað samvistir sínar ftá árunuin 1934 — 1938, að atstöðnum nýjum kom ingum. í sambandi við umræður um bækkun kjötverösins væri á- gætt tækifæri til að sýna bændum fram á, hveinig Sjálfstæð'smenn brygðust við öllum *kjarabótum« þeim til handa. Og með því að hafa orðbragðið eitthvað líkt því, sem kommúnistar nota venjulega. væii ekki ósennilegt að kommar myr.du hjáipa Framsókn eitthvað til í tvísýnum kjöídæmum, eins og 1937. Og ekki dygði að svara Alþýðublaðinu, þótt það héldi fram sömu kenningum og Sjálfstæðis- b öðin, því að það gæti gert örð ugra fyrir með málefnasamnínga síðar. Og ef unnt væii að hella svo miklum svívirðingum yfit Sjálf- stæðismenr, að þeir fengju r,óg af og biysti þoiinmæðin, þá vai bara eftir að finna út líklega skýringu á því, að Sjálfstæðismenn hefðu rof- ið stjórnarsamvinnuna! Þannig iiggja spilin, nú þegar NÝJA-BÍÓ Föstudags- Iaugardags- og sunnudagskvöld kl. 9: Áttunda eifl- iukona Biá- skeflfls Tal- og hljómmynd í 10 þátl- um. Aðalhlutverkin leika af frábærri snilld: Claudette Colbert og Gary Cooper ásamt skopleikaranum Edward Ever&tt Horion. — Myndin gerist að meslu í París og segir frá viðskiptum ittundu konu í hjónabandi við mann sem á sjö konur fráskilcíar, allar á 50000 dolíara 'eítirlaun- um«. — Myrtl n er atburöa skeir.mtiieg og tmdufyndin og af öllum útlendum blaðaum- mælum talin bezta skemmti- mynd ársins. Sunnudaginn kl. 5: Ast oif neyð arlending I.O.O.F, — 1212169 = Aiþingi kemur saman. Ritstjóii Tímans hefir lagt sinn skerf fram til að tryggja samsfarf flokkanna í rfkisstjórninni. Kannske hann eigi eftir að fá friðarverðlaun Nobels? Leikfélag Akureyrar sýnir leik- ina „Apaloppan“ og „Hin hvíta skelfing“ n. k. laugardag og sunnudag með lækkuðu verði. Að- göngumiðar verða seldir í leik- húsinu á föstudaginn kl. 4—7 e. h. og báða dagana sem leikið er frá kl. 1 e. h. og kosta þeir kr. 1.00, 1.50 og 2.00 fyrir fullorðna, en kr. 0.75 f. börn. Þetta verður síðasta tækifæri til að sjá þessa ágætu leiksýningu. Spar/ð kolin! Ríkisstjórnin hefir gefið ót bækling.’sem hefir að geyma leiðbeiningar um kolasparnað. Geta menn fengið hann ókeypis á úthlutunarskrifstolunni.

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.