Íslendingur - 20.03.1940, Blaðsíða 2
2
ÍSLENDlNGUR
Þvottaduftið FLIK-FLAK þvær bezt
Fáheyrt athæfi er-
lends togara.
Dagblaðið »Vísir* skýrir frá því
1. þ. m. að tveim nóttum áður hafi
togari frá Grímsby nr. 563 unniö
fáheyrð spellvirki á veiðarfærum báts
frá Sandgerði, er Hannes Hafstein
nefnist. Byggist frásögn blaösins á
viötali við formann bátsins, Finnboga
Halldórsson í Sandgerði. Segist
honum svo frá, að er þcir voru ný-
byrjaðir að draga línu þá, er þeir
höfðu skömmu áöur lagt, hafi enska
togarann borið þar að, og hafi hann
ætlað að sigla beint á línuna, en
þeir getað varnað þvf, með því að
slíta, Tók þá togarinn aö skjóta á
lóðarbelgina og hélt því áfram, unz
hann hafði eyðilagt 5 belgi og 6—7
bjóð. En er togaramenn sáu, að
bátverjar voru að skrifa númer (og
nafn?) togarans, hlupu þeir að byssu
frammi á skipinu og tóku að leysa
utanaf henni. Þó varð ekki af því,
að skotið væri á bátinn, en svo
glæfralega fóru togaramenn að í
þessum ljóta leik, að þeir skutu rétt
yfir bátinn á einn belgir.n, og var
þá allmikil kvika, svo tilviljun má
telja, að ekki varð slys að. Þessi
atburður og eins sú staðreynd, að
enginn þeirra togara, er v. b. Krist
ján rak fram hjá í hinutn eftirminni-
legu hrakningum um sama leyti,
skyldi hirða um hann (og einn
meira að segja slökkva öll ljós, cr
hinn nauðstaddi bátur nálgaðist með
logandi bál á þilfari), stinga óþægilega
í Stúf við framkomu fslenzkra strand-
búa og sjómanna, er oft hafa lagt
líf sitt í hættu við björgun skipshafna
af erlendum skipum, er strandað
hafa hér við iar.d, eða verið nauð-
stödd á hafinu umhverfis ísland.
Selma Lagerlöf látin. Hin
heimsfræga sænska skáldkona Selma
Lagerlöf lézt 16. .þ. m, 81 árs að
aldri. Mun hún jafnan verða talin
á fremsta bekk meðal skáldkvenna
lteimsins. Meðal skáldsagna her.nar,
sem birzt hafa f íslenzkri þýðingu
eru: Jerúsalem, Föðurást, Helreið-
in og Loginn helgi.
Hf ALPRÆÐISHERINN, Skírdag
kl. 4 og kl. 8,30. Föstudaginn
langa kl, 11, kl. 4 og kl. 8,30, —
Páskadag kl. 8, kl. 11, kl. 2 og
kl. 8,30, 2. páskadag kl. 4 (Jíeim-
ilasambandið) kl, 8 30. — Foringjar
og undirforingjar stjórna samkom-
unum.
Allir velkomnir !
Islensk frímerki kaupir hæsta
veröi J. S. KVARAN.
Umboðsmenn óskast út um land.
brotagull og gullpeninga
Guðjón, gullsmiður.
Sam kom u r
verða haldnar sem hér segir í
Verzlunarmannahúsinu:
Skírdag kl. 8. e. h.
Páskadag kl. 5 e. h.
Annan í páskum kl. 5 e. h.
í gamla barnaskólanum í Gler-
árþorpi Föstud. langa kl. 4 e. h.
Fyrir hönd safnaöarins
Nils Ramselius
Til leigu
Pláss í Ráðhústorgi 7 fyrsta
hæö, gólfflötur ca. 40 kvadr-
atmetrar. — Hentugt fyrir
saumastofu, hárgreiðslustofn,
skrifstofu og fl, — Veröur
innréttað samkvæmt óskum
leigutaka. Nánari uppl. hjá
Axel Kristjánsson h.f.
Sími 146.
Sjómannaljóð.
Eios og menn vafalaust rekur
minni til, efndi Sjómannadagsráðið í
Reykjavík á síðasta vetri til sam-
keppni meöal íslenskra skálda um
sjómannaljóð, og hét tvennum verð-
launum. 1. verðlaun voru kr. 150.00,
en II. verðl. lcr. 50.00. 42 skáld
tóku þátt f samkeppninni. I. verð-
laun hlaut hið góökunna skáld Magn-
ús Stefánsson (Örn Arnarson) fyrir
kvæðið »íslands Hrafnistumenn*, og
II. verðl, hlaut Jón Magnússon, skáld
fyrir kvæðið »Sjómannaljóö*.
Nú hefir Sjómannadagsráðið ákveð-
ið að gefa út öll kvæðin er bárust
í samkeppninni, og munu þau koma
á markaðinn eftir rúman mánuð.
Þar eru kvæði eftir Jóhannes úr
Kötlum. Jakob J. Smára, Rósu Blön-
dals, Sigurð Baldvinsson, Hugrúnu,
og mörg önnur skáld og hagyrðinga
Þeir, sem vildu gerast kaupendur
að bókinni geta skrifað sig á lista
lijá Jóni Hitirikssvni, Hrfseyjargötu
9. — Bókin kostar í bandi kr- 5.C0,
en óbundin kr: 3 50.
Samskot til skipv. af Krist
jáni: Gunnl. Tr. Jónsson 10.oo,
J. J. 5,oo. Fr. Jensson 20,oo. Gam-
all sjómaöur 20,oo. E, E. 5,oo.
Sigurj. Rögnvaldsson l,oo. Anna
Sigmundsd, l,oo,
Kventél. »Framtíðin« hefir
ákveðið að selja kaffi á Landsmóti
skíðamanna, sem hefst á morgun,
og verja ágóðanum til styrktar nýja
sjúkrahúsinu.
EFNI
í dragtir og pils,
ýmsir litir, nýkomin
B R AIIN S-V ERZLIJN
Páll Sigurgeirsson
Frá vatnsveitunni
Vegna minnkandi vatns í fjallinu, er alvariega
skorað á alla bæjarbúa að spara vatn, sein
framast er unnt, og alls ekki að láta vatn
renna að óþörfu. Ennfremur að gera aðvart
um vatnskrana, sem óþéttir eru.
Vatnsveitustjórinn.
Hér eftir geta þeir, sem líf-
tryggðir eru hjá Sjóvátrygging-
arfélagi íslands h. f, »Svea*
og »Thule« sparaö sér send-
ingarkostnaö af iögjöldum með
því að greiða pau til
Axel Kristjánsson h.f.
Ný geta húsmæður
sparað sykurinn, hin
margeftirspurða saft
fæst hjá
Eggert Einarssyni.
Kverkmanusúr
með festi, tapaöiít á leiöinni frá
Menntaskólanum ofan 1 Glerár-
götu. Finnandi skili því í bóka-
verzlun Gunnl. Tr, Jónssonar
gegn fundarlannum,
Qfnil» ofnfa hentug fyrir skrif-
OlUl ulUlu stofu eða sauma-
stofu, til leigu nú þegar eða 14. maí
1 Skipagötu 8.
PreDtsmiöja Rjöms Jónaaonar.
Rit Jöns Diiasonar
um Grænlaudsmáliu.
Áskriftalisti í Verzlun
Péturs H. Lárussonar
Lárus Pétursson, umboð
Pjóðverji, sem vann á
íslenzku sveitaheimili s. I.
sumar, óskar eftir atvinnu
í sveit frá 1. maí til 1. sept.
n.k. Kaupeftir samkomulagi
Utanáskrift: Berner Kíirsch
Pingholtsstr. 22 A. Reykjavík.
Qfnfa með aðg. að eld-
diUIU húsi til leigu fyrir
barnlaust fólk, Uppl, Hjalteyrarg. 1.
Kartöflur
nokkrir sekkir til sölu í
Nýja Söluturninum.
Kaupi
sjóvettlinga
hæsta verði.
EjGGERT EINARSSON.
Iþróttafólk! Drekkið Landsöl og Valencia