Íslendingur - 29.03.1940, Blaðsíða 1
ju-a**•*
Ritstjóri og afgreiðslum.: Jakob O. Péíursson, Fjólugöiu 1. Sími 375. Pósthólf 118.
XXVI. árgangur.l
Ákureyrí, 29. marz 1940
13. tölubl. A,
Víikliniíllina- MUNIÐ basar Sjálfstæðiskvennafél. Vörn sunnud.
31. niarz n.k. á vinnustofu félagsins Hafnarstræti 88.
styrknrinn.
Paö hefir vakið nokkra furöu, að
inn á fjárlögin fyrir árið 1940 og
í tillögum fjárv. nefndar f}rrir árið
1941 er bætt við nýjum lið að upp-
bæð 2000 krónur ti) »félags Vöku-
manna*. Félagsmyndun þessi er
ættuöfráLaugarvatni oginnan »hreyf-
ingarinnar« eru aðallega ungir menn
í Reykjavík og nágrenni, sem stund-
aö hafa nám á Laugarvatni eða
Santvinnuskólanum. Jónas Jónsson
mun vera hinn raunverulegi faðir
»hreyfingarinnar< og hefir að ein-
hverju leyti mótaö steínu félagsskap-
arins. Vökumenn gefa út tímaritið
»Vöku«, en aö öðru leyti er ekki
kunnugt um starfsemi þeirra. í*að
virðist næsta hæpið aö auka á beiu-
ar styrkveitingar nú, þegar draga
þarf úr útgjöldum rikissjóös til ým-
issa framkvæmda, er allir telja nyt-
samar og nauðsynlegar. Og s!íkar
styrkveitingar til félaga, sem að
meira eða minna leyti starfa pólitískt,
skapa hættulegt fordæmi. Pessi
styrkjayenja er farin að ganga of
langt eins og J. J. bendir réttilega
á í hinni frægu grein: »Spurningar
og upphaí að svörum*, er birtist í
Tímanum s. 1. haust. Par segir hann
svo: ». . , Inn í þessa þróun hefir
ormur alhliða styrkveitinga skriöið
og nagaö stofninn .... Menn fá
styrki til að eignast báta, styrki til aö
byggja hús og rækta jörðina, styrki
til að kaupa landbúnaðarvélar, sem
eru látnar liggja undir klaka og snjó
að vetrinum. Að lokum fá menn
styrki fyrir að verða gamlir, fyrir
geðveiki, kynsjúkdóma, brjóstveiki
og í kaupstöðum fyrir að nota eitt-
hvað af meðulum . . . .<
Sumir halda, að J. J., höfundur
framannefndra ummæla, hafi beitt
sér fyrir styrkveitingunni til Vöku-
mannanna. En hví skyidi ríkið frem-
ur eiga að styrkja unga menn fyrir
aö vera lærisveinar Jónasar eða
Bjarna á Laugarvatni, heldur en
ræktun landsins og byggingar eða
brjóstveik gamalmenni, er ekki geta
unnið fyrir sér?
Vísnasamkeppni. Frestur tii
að senda vísur í verðlaunakeppni
þá, er blaðið hefir stofnað til, er
veittur til 10. apríl n. k.
65 ára varð Páll Halldórsson
erindreki á páskadaginn, 24. þ. in.
BÆKUR OG RIT
Hulda;
Dalafólk II.
Reykjavlk 1939.
Pað heíir verið siður sumra skáld-
sagnaritara, að skapa sögupersónur
stnar þannig, að þær veröi mintii-
stæðar vegna skapbresta og annarra
andlegra vankanta, en síður vegna
mannvænlegra hátta eða athafna.
Svo langt heíir þetta gengið að
mörgum hefir fundist þjóðinni gerð
minnkun meö þessum samsetningi,
en það er eins og skáldsagnaritar-
arnir hafi viljað sýna afskræmismynd
af alþýðunni og með því telja henni
trú um að svona sé hún í raun og
sannleika, þegar hún sé lesin niður
í kjölinn af sálufræðingum bók-
menntalegrar snilli!
llraksöguv þessar hafa verið þýdd-
ar á erlendar tungur og þær uin-
sagnir látnar fylgja að þar íengi um-
heimurinn rétta lýsingu af háttum
íslenzkrar alþýðu.
Dalafólk er steypt í allt öðru móti,
bæði að stíl og skaphaínarlýsingum.
Til að segja sögur eins og Hulda
gerir þarf rómantízkt skáld; aðrir
ná ekki þeim áferðarmjúka æfintýra-
blæ sem er yfir sögunni.
Sá sem þannig ritar verður að
eiga bjarta og örugga trú á mi'kla
og glæsilega framtíð þess fólks sem
landið byggir, og munu menn verða
samdóma um að sú trú er nauðsyn-
leg, því án hennar verði ekki byggt
það framtíðarríki sem þjóöinni hæfi,
Verið getur aö einhverjum þyki
sem sumt í sögunni Dalajólk, sé séð
í hillingum, og eigi sér eltki almennt
stað í væruleikanum, en ástæðulaust
er að gefa höf. Dalafólks það að sök,
því það er einkenni góðs skáldskap
ar að bregða upp myndum af betri
hliöum lífsins — hinum jákvæðari
— og er sú aðferð listrænni og Hk-
legri til umbóta en hin neikvæða.
F. H. B
Baha’u’llah og nýi
tíminn.
Hólmfr. Árndóttir þýddi
Austurlönd hafa jafnan verið
vagga og gróðrarstía andlegra stefna
og kenninga sem þaöan hafa svo
bre'ðst til Vesturlanda. Bók sú er
hér er um að ræða, er boðberi
einnar þessarar austrænu stefnu.
Baha’u’llah er talið að eigi að
berast fram með áherzlu á annarri og
fjóröu samstöfu og að þýðing þess
sé: Ljómi Guðsdýrðar, Og er efni
bókarinnar eingöngu siöfræöi- og
trúarlegs eðlis.
Slysfarir.
Pað sljrs varð nýlega að Laugar-
bóli í Reykjadal, að 17 ára piltur,
Haukur að nafni, féll á höfuðið ofan
í djúpan skurð, þannig aö snjóheagja
brast undan fótum hans og bróður
hans, Eysteins, Sakaði Eystein ekki,
en Haukur lenti á kaf í snjódyngj-
una og var örendur, er hatin náðist.
Á laugardaginn fyrir páska vildi
það slys lil í Laugaskóla, að lítill
drengur, yngsta barn Þorgeirs Svein-
bjarnarsonar fimleikakennara, féll í
sundlaugina og drukknaði. Enginn
var viðstaddur, er slysið varð.
Liiveiðn '>Svfif[ir«
strandaði á innsiglingu við Vest-
mannaeyjar nú í vikunni. Var skipið
þá að koma úr Englandsför, en
þangað hafði það farið með ísfisk.
Vélbátur úr Reykjavík dró »Sverri<
út, og hafði komist leki að vélar-
rúmi, en auk þess er skrúfan talin
skemmd, Annars hefir engin fulln-
aðarrannsókn farið íram á skemmd-
unum, en búist við, að skipið verði
tekið í Slipp í Reykjavík. »Sverrirc
var leigður til Vestmannaeyja 1 vetur
til fiskflutninga.
Ferðafélag Akureyrar fer næstk.
sunnudag skíðagöngu upp Finna-
staðadal, vestur fyrir Kerlingu og
norður Glerárdal. Er skíðaland
hið bezta á allri þessari leið.
Gengið verður á Kerlingu ef
skyggni reynist gott, en þaðan
mun hið mesta víðsýni inn yfir
öræfi og austur um sveitir, sem
hægt er að fá í senn nokkurstaðar
á Norðurlandi. Ekið verður í bíl-
um að Finnastöðum.
1. O. G. T. St. „Brynja“ nr. 99
heldur fund miðvikudaginn 3.
apríl á venjulegum stað og tíma.
Auk venjulegra fundarstarfa:
Kosning þingstúku- og umdæmis-
stúkufulltrúa. Bögglauppboð o. fl.
á eftir fundi. Fjölmennið! —
Hvað eru héraðabönn?
Góðtemplarareglan á^íslandi berst
nú fyrir því, að fá hin svo nefndu
héraðabönn lögleidd.
En hvað eru héraðabönn?
í sem fæstum orðum mætti svara
spurningunni þannig:
Héraöabönn eru sjálfsákvörðunar-
réttur kosningabærra manna f héraði
hverju um það, hvort útsala áfengis
skuli leyfð eða ekki í hlutaðeigandi
héraði.
Hvað í hugtakinu »hérað* felst l
þessu sambandi yrði að vera skil-
greint í sjálfum lögunum um héraða-
bönn. Sennilegt verður að telja, að
hver kaupstaður yrði talinn hérað
fyrir sig, en að öðru leyti yrði farið
eftir kjördæmaskipun landsins. —
Fannig yrði þá Skagafjarðarsýsla
talin eitt hérað, hins vegar yröi
Siglufjöiður og Eyjaíjai ðarsýsla, sem
eru eitt kjördæmi, tvö héruð,
Samkvæmt núgildandi áfengislög-
gjöf eru raunverulega f gildi hér-
aðabönn um allt land, nema í kaup-
stöðunum Reykjavík, Hafnarfirði,
Vestmannaeyjum, Siglufirði, Akur-
eyri, Seyðisfirði og ísafirði.
Ákvæði áfengislaganna, sem að
þessu lúta, er að finna í 9. gr.
þeirra og eru þannig:
»Ríkisstjórninni er heimilt aö setja
á stofn nýja útsölustaði áfengis, en
þó aðeins í kaupstöðum og kaup-
túnum. Áður en útsalan er sett á
stofn, skal fara fram atkvæðagreiðsla
kosningabærra manna í því sýslu-
eða bæjarfélagi, sem í hlut á, og
þurfa 8/e greiddra atkv. til þess að
útsalan sé leyfð*.
Fegar nú er háð barátta fyrir
héraðabönnum, þá er krafan sú,
að kosningabærir menn í þeim
kaupstöðum, þar sem nú eru áfeng-
issölur, fái að greiða um það atkv,,
hvort útsölurnar skuli starfa áfram
eöa ekki, og sé þeim lokað, ef
meiri hl. atkv. fellur með því, og
ekki opnaður aftur, nema það sé
samþykkt með nýrri atkvæðagreiðslu.
(»Samheriinn*)
M. S.
Útklufun skömmtunarseðla
fer fram dagana 28., 29. og 30.
marz, gegti afhendingu stofnmiða.
Dánardægur Nýlega er látin
hér á sjúkrahúsinu ekkjan Guðlaug
Jónasdóttir frá Núpuíelli í Eyjafirði.
LANDS0LIÐ er öl Akureyringa.