Íslendingur - 12.04.1940, Blaðsíða 1
Ritstjóri og afgreiðslum.: Jakob O. Pétursson, Fjólugötu 1. Sími 375. Pósthólf 118.
XXVI. árgangur,
Akureyrí, 12. apríl 1940
I
16. tölubl.
Styrjöldin breiðist út.
Þjóðverjar hertaka Danmörk á einum degi
og setja her á land víðsvegar í Noregi.
Undanfarna daga hefir dregið til
stórtíðinda í Norður-Evrópu. Hófust
þau á mánudaginn með því, að
ensk og frönsk herskip tóku að
leggja tundurduflum innan norskrar
landhelgi, og gáfu ríkisstjórnir Vest-
urveldanna þá skýringu á þessu
atferli, að Vesturveldin gætu ekki
lengur þolað það, að Pjóðverjar
notuðu norska landhelgi fyrir sigl-
ingaleið með málmfarma og aðra
hernaðarbannvöru. Norska stjórn-
in mótmælti harðlega þessum að-
gerðum sem hinum freklegustu
hlutleysisbrotum, og þýzka síjórn-
in tiikynnti, að hún mundi gera
sfnar gagnráðstafanir.
Á þriðjudagsmorgurt koma svo
þýzk herskip til ýmissa hafna í
Noregi og setja herlið á land. Var
Bergen þannig hernumin í einu
vetfangi og ennfremur málmútflutn-
ingsbærinn Narvik í Norður-Noregi.
Á sama hátt skyidi taka Osló og
fieiri borgir, en norsk herskip réðu
til allögu við hin þýzku á Osló-
firðinum. Samt sem áður höfðu
Þjóðverjar náð Osló á vald sitt sfðari
hluta þriðjudags. Pýzki sendiherr-
ann í Osló bar norsku stjórninni
þann boðskap árdegis á þriðjudag,
að Þjóðverjar ætluðu að taka
Noreg undir vemd sína til að
koma í veg fyrir frekari yfirgang
Vesturveldanna þar og þaiin ásetn-
ing þeirra, að gera Norðurlönd að
orustuvelli í þessari styrjöld. Ut-
anríkisráðherra Noregs svaraði boð-
skapnum á þá leið, að norska
s<jórnin tryði þvf ekki að svo
stöddu, að Veslurveldin hefðu slíkt
I hyggju og afþökkuðu því hina
þýzku vernd. Veitti norski herinn
víða mótspyrnu gegn þýzka hernum,
Ríkisstjórnin flutti þegar á þriðju-
dagsmorgun norður að Hammer og
settist þar að.
Meðan þessu fór ftam í Noregi
gerðust þeir atburöir í Danmörku.
að þýzkur her fór inn í Suður*Jót
land og tók það herskildi. Hélt
sfðan norður Jótlandsskagann, en
danski herinn var á skipulögðu
undanhaldi. Pá var þýskur her sett-
ur á iand á Norður-Jótlandi við
Limafjörð og á dönsku eyjunum
og Kaupmannahöfn tekin á skömm-
um tíma. Mótspyrna varð lítil, en
þó mun eitthvað hafa slegið í bar
daga í byrjun innrásarinnar, segir
enskaútvaipiö hafa mátt ráðaaf ræðu,
er Stauning forsætisráðherra flutti
á þriðjudag, að danskir hermenn
þafi fallid í viöureign við þýzka her-
inn þá um morguninn. Um kvöldið
flutti konungurinn, Kristján X. ávarp
til dönsku þjóðarinnar, þar sem hann
hvatti hana til að sýna stillingu og
rósemi og sætta sig við orðinn hlut.
Bretar og Frakkar tilkynntu norsku
stjórninni, að þeir mundu koma til
liðs við Noreg og hvöttu Norð-
menn til að veita þýzka hernum við-
nám. Norska stjórnin samþykkti í
einu hljóði að halda áfram að verj-
ast. Parísarfrétt á þriðjudag hermdi,
að mikil sjóorusta stæði yfir úti
fyrir Noregsstiöndum á stóru svæði
milli herskipa Bandamanna og þýzkra
herskipa. Pá bárust fréttir um,
að þýzk herskip legðu tundurdufl.
um úti fyrir sænsku sundunum og
fram með Noregssfröndum. Hefir
Framh. á 3. síðu.
Bráðabirgðabreyting á íslenzk-
um stjórnarháttum:
Regar hinir óvæntu atburðir gerðust í Danmörku og
Noregi á þriöjudaginn, var Alþingi um það bil að ljúka
störfum. En hertaka Danmerkur hafði í för með sér ný
verkefni fyrir Alþingi og ríkisstjórn Islendinga. Voru
sameiginlegir þingmannafundir haldnir á þriðjudaginn og
þangað kvaddir allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins, Fram-
sóknarflokksins, Alþýðuflokksins og Bændaflokksins og
þingmennirnir Jón Ivarsson og Héðinn Valdimarsson.
Var þar rætt hið nýja viðhorf, er skapast hafði, og
hvernig við því skyldi snúast. Um nóttina var svo
fundur settur í sameinuðu þingi og þar lagðar fram tvær
þingsályktunartillögur. Hin fyrri var um »æðsta vald í
málefnum ríkisins«, svohljóðandi:
»Með því að ástand það, sem nú hefir skap-
ast, hefir gert konungi 1s/ands ókleift að fara
með vald það, sem honum er fengið í stjórn-
arskránni, lýsir Alþingi yfir því, að það felur
ráðuneyti Islands að svo stöddu meðferð
þessa va/ds«.
Hin tillagan var urn meðferð utanríkismála og iandhelg-
isgæzlu. Hún er á þessa leiö:
» Vegna þess ástands, er nú hefur skapast, get-
ur Danmörk ekki rækt umboð til meðferðar
utanríkismála Is/ands, samkv. 7. grein dansk-
íslenzkra sambandslaga né landhelgisgæz/u
samkv. 8. gr. téðra Iaga, og lýsir Alþingi
þess vegna ytir þvi, að Island tekur að svo
stöddu meðterð mála þessara að öllu leyti í
sínar hendur«.
Um tillögur þessar urðu litlar umræður, og voru þær
samþykktar með atkvæðum allra viðstaddra þingmanna
46 að tölu, að viðhöfðu nafnakalli. Einn þingmanna
(Finnur Jónsson) var erlendis en tveir veikir (Pétur Hall-
dórsson og Gísli Guðmundsson. — Forsætisráðherra flutti
þjóðinni þenna boðskap í hádegisútvarpinu daginn eftir
og síðar þann sama dag var skýrt frá þessum ályktunum
í útvarp á Bretlandi og Italíu.
NÝJA BÍÓl
Föstudags- laugardags- og
sunnudagskvöld kl. 9:
Konan
með örið
(En kvinnas Ansikte)
Sænsk sakamála stórmynd gerö
undir stjórn kyikmyndasnill-
ingsins
Gustaf Molander
Áðalhlutverkið leikur frægasta
og fegursta leikkona Svía
íngrid Bergman
ásamt Andreas Henrekson,
Hildu Bergström o. fl.
Þetta er ein af eítirtektarverð-
ustu myndum er Svíar hafa gert
síðustu árin, mynd sem sýnir
mikilfenglega og hrífandi sögu
með hlýjum undirstráum mann-
legra tilíinninga. — Ingrid Berg-
man er aðeins 22 ára og hefir
þegar getið sér mikla frægð og
nýtur vinsælda kvikmyrdahús-
gesta langt út fyrir Svíþjóð —
haía meira segja verið uppi
raddir um það að hún yrði
arftaki Gretu Qarbo.
I
Sunnudaginti kl. 5:
Káti r
voru kárlar
I.O.O.F,
1214129
O.
Samband imgra Sjálí-
stæðismanna 10 ára.
Árið 1930, þegar Alþingishátiðin
var haldin að Pingvöllum, komu
þar saman um 30 ungir Sjálfstæðis-
menn úr félögunum »Heimdalli<
»Verði« og nokkrum öðrum og
stofnuðu I.andssamband ungra Sjálf-
stæðismaona. Fyisti formaður þess
var Torfi Hjartarson, nú bæjarfógeti
á ísafirði.
í sumar er ákveðið að halda
Sambandsþing ungra Sjálfstæðis-
manna á Þingvöllum, um það leyti
sem Sambandið verður 10 ára og
verður því þannig hagað, að auk
hinna kjörnu fulltrúa frá félögum
ungra Sjálfstæðismanna, er ætlast til
að allir ungir Sjalfstæðismenn, sem
tök hafa á, komi á mótið. Núver-
andi formaður Sambandsins er
Kristján Guðlaugsson ritstjóri.