Íslendingur - 19.04.1940, Side 2
2
ÍSLENDINGUR
Jarðarför Páls Jónssonar
Vatnsleysu Glæsibæjarhreppi,
sem andaðist 16. þ. m. fer
fram föstudaginn 26. þ m. og
hefst með húskveðju að heimili
hins látna kl. 12 á hádegi. —
Jarðað verður að Glæsibæ.
Aðstandendur.
Slysfarir.
S. 1. föstudagskvöld voru 4 menn
úr utanverðum Glæsibæjarhreppi á
heimleið frá Akureyri á trillubát.
Vildi það slys til á leiðinni, að einn
mannanna, Kristján Kristjánsson
bóndi Gæsum, lenti með fótinn í
vélinni, svo tær og ristarbein möl-
brotnuðu. Jón Geirsson læknir fór
út að Gæsum og tók manninn með
sér í bílnum inn á sjúkrahús, þar
sem fóturinn var tekinn af honum
framan við hælbein.
A laugardaginn vildi það slys til
við Húsavíkurbryggju, að bát hvolfdi
þar í sjógangi. Maður að nafni Hall-
dór Ármannsson var 1 bátnum og
drukknaði hann. Lætur hann eftir
sig konu og barn.
M/óIkurverðið hækkar. Sam-
kvæmt auglýsingu frá Mjólkurverð-
lagsnelnd Akureyrar hækkaði útsölu-
verö á mjólk 15. þ. m. úr 34 aur-
um í 36 aura lítrinn. Ressi hækkun
er þó eingöngu miðuð viö þá mjólk,
sem flutt er heim til neytenda í
flöskum eða öðrum ílátum sem taka
minna en 10 ltr. Mjólk, sem seld
er í 10 ltr. brúsum eða stærri og
mjólk, sem neytendur sækja sjálfir
heim til framleiðenda í Akureyrarbæ
eða til Mjólkursamlagsins skal öll
seld á 34 aura lítrinn.
Neytendur eiga því ennþá kost á
að kaupa mjólkina fyrir 34 aura
lítrann, ef þeir vilja eða geta sótt
hana sjálfir. Að gefnu tilefni
skal almenningi bent á, að ákvæði
Mjólkurverðlagsnefndar eru bindandi
fyrir alla aðila, sem selja mjólk á
Akureyri.
Blátt Cheviot
Hvítt Silki
í fermingarklæðnaði
nýkomið.
Brauns Verzlun
Páll Sigurgeirsson.
Uppskipunarbátar
og setningsspil
2—3 stórir uppskipunarbátar
ca. 5—6 tonn að stærð og
tvöfalt setningsspil (handspil)
er til sölu á Sauðárkróki. —
Upplýsingar gefa:
Kristján Gfslason eða Sigurður Þör’ðarson
Sauðárkrókl.
Aðalfnndur
i Naufgriparæktarfélagi Akureyrar
verður haldinn n.k. sunnudag þ. 21. þ.m. kl. 2 siðd. i Skjaldborg.
D A G S K R Á:
1. Jóhann Porkelsson héraðslæknir, erindi.
2. Eyvindur Jónsson ráðunautur, erindi.
3. Venjuleg aðalfuDdarstört, svo sem reikningar
félagsins. um starfsemina o.íl
4. Önnur mál er fram kunna að koma.
óskað er að kúaeigendur í bænum og konur þeirra fjölsæki fund-
inn og mæti stundvíslega.
S T J ó R N I N.
Ti 1ky n nin
um útsöluverð á mjólk á Akureyri.
Mjólk, sem seld er í tilluktum flöskum eða smærri ílátum og
flutt er heim til neytenda, einnig mjólk, sem seld er á flösk-
um i mjólkurbúðum, skal kosta kt, 0,36 Itr. —
Mjólk, sem send er kaupendum í brúsum, 10 ltr. eða stærri og mjólk,
sem afhent er kaupendum í lausu máli frá mjólkurvinnslustöö eða ein-
stökum framleiöendum innan lögsagnarumdæmis Akureyrar, sem leyfi
hafa til beinnar sölu til neytenda, skal kosta kr. 0,34 ltr.
Ofangreind verðlagsákvæði skulu gilda frá 15. apríl þ. á. og
þar til öðruvísi verður ákveðið.
Akureyri 12. apríl 1940.
Mjólkurverðlagsnefnd.
Flugmðdelsýning.
Fyrir nokkrum vikum skoðaði ég
flugmódelsýningu í Þjóðleikhúsinu í
Reykjavík, og varö stórhriíinn af,
hvað hinum ungu Reykvíkingum
hafði áunnist með dugnaði og ósér-
hlífni, Nú eru nokkrir þessir Reyk-
vikingar komnir hingað til Akureyr-
ar og sýna listir sínar í Samkomu-
húsinu þessa dagana. Ég vil hvetja
bæjarbúa að skoða þessa sýningu,
sérstaklega að foreldrar gefi börnum
sínum inngangseyri, sem ég tel bet-
ur varið en til »sleikipinna* kaupa.
Kr, Rrisljdnsson.
Stórhríð af norðaustri var hér
s. 1. mánudag og um allt land var
þá hið versta veður. Hlóð niður
all miklum snjó, svo að tók fyrir
bifreiðasamgöngur, Síðan hefir veður
farið hægt batnandi. Hafísjakar sáust
í vikunni á reki norður aí Ilorni.
Fimmtugur verður á morgnn
Brynleifur Tobíasson menntaskóla-
kennari.
Dazar Og kafiisölu hefir kven-
félagiö »Hlíf« í Skjaldborg á sumar-
daginn fyrsta frá kl. 2 e. h. Ágóð-
anum varið til sumardvalar (í sveit)
fyrir veikluð börn. Bæjarbúar!
Styðjið gott málefni.
H/álpræð/sher/nn. Á sunnu-
dag. kl. 11 Helgunarsamkoma allir
velkomnir. Kl. 2 sunnudagaskóli.
Kl. 8,30 Hjálpræöissamkoma. Kl. 4
á mánudag fundur í Heimilasam-
bandinu.
Vini og velunnara viljum við
minna á hina árlegu vorsöfnun
sem byrjar nú næstu daga.
Samkomur í Zíon næstkom-
andi sunnudag kl. 10,30 f. h. barna-
samkoma, kl. 8,30 almenn sam-
koma.
Allir velkomnirl
Sumargjafir
í úrvali.
Hannyrðaverzl.
Ragnh. O. Björnsson.
Saltað
diikakjöt
f æst n ú í
Verzlun Eyjaíjðrður.
Oott herbergi
til Ieigu í nýlegu húsi við
Fjólugötu. Aðgangur að
baði og síma R. v. á.
Til sölu
(með tækifærisverði) fatn-
aðir á fermingardrengi og
fullorðna, notaðir og nýir hjá
Valtý, klæðskera.
Til leigu
stofa með suðursól.
Ritstjóri vísar á. —
Herbergi
til leigu á góðum stað í
bænum. Uppl. síma 317,
hefir tapast.
Skilist gegn góðum
fundarlaunum til
Jöns Benediktssonar
Iögregluþjóns.
PreBtsmiðja Bjönos Já’aasonas’.
FLIK'FLAK gerir þvottinn fannhvitan.