Íslendingur

Eksemplar

Íslendingur - 10.05.1940, Side 3

Íslendingur - 10.05.1940, Side 3
fSLENDINGUR 3 Leðurvflrur TöskurogYeski / hentugt til tækifærisgjafa. Smekklegt úrval — B R A U N S-V ERZLtJN Páll Sigurgeirsson Tvær flraleika- sýningar. Pann 4 þ. m, cýndi úrvalssveit ungra manna, er verið hat'a nem- endur við Alþýðuskólann á Laug- um fimleika í Samkomuhúsi bæjar- ins undir sljórn Þotgeirs Svein- bjarnarsonar íþróttakennara skólans. Sýnig þessi var allvel sótt og vakti aðdáun áhorfenda, enda duldist ekki, að kennarinn hefir skilið sitt hlutverk. Hinar kerfisbundnu æf- ingar, sem stóðu yfir 25 mín. voru mjög vel skipulagðar og útfærðar með nákvæmni, ekki sízt þær, sem teknar voru effir undiileik, er Pall h. Jónsson annaðist- Eítir kerfinu að dæma virðist hafa verið lögð jöfn áhersla á styrk, mýkt og leikni, eins og vera ber til alhliða þjálfunar. Heildarsvipur sýningarinnar bar þó meiri vott um styrk, en mýkt. Pað layndi sér ekki, að starfið hafði náð sín- um rétta tilgangi, að skapa hreysti, fegurð og gleði. — Laugamenn! Pið hafið otðið skóla ykkar til verðugs sóma. Hafið þökk fyrir komuna. Þann 5. þ. m. hafði Sundíélagið >Qretfir« á Akureyri einnig fim- leikasýningu í Samkomuhúsinu og voru bekkir nær þvf fullskipaðir. Eftir að Snoiri Sigfússon skólasijóii hafði flutt nokkur þörf ávaipsorð til Akureyringa um fþróttamál hófst sýning 9 ungra og efnilegra fim- leikamanna undir stjórn Höskuldar Steinssonar. Síðari hluti sýningar innar — stökkin — vöktu mesta athygli, enda báiu þau af. Full á- stæða er til að þakka kennaranum og öðrum, er lögðu því lið, að unt væri að æfa þessa ung’.r menn f vetur, þó við slæm skilyiði væri, með þeim árangri, sem lofar góðu um, að Akureyringar þurfi ekki að standa öðrum að baki á þessu sviði, ef unga fólkið fengi einhvers- staðar inni til íþróttaæfinga. En það er áhyggjuefni, að samlímis þvf, sem hér standa opnar vistar- verur, jafnvel fram á nætur, sem gefa tækifæri til óhollrar tómstunda- iðju, sem betur væri óunnin, þá stendur eina fimleikahúsið í bæn- um í ónothæfu ástandi og því að sjálfsögðu harðlæst fyrir öllum. Við verðum að játa með kinn- roða, að eins og sakir standa í sjálfum höfuðstað Norðurlands, þá erum við ekki færir um að endur- gjrlda heimsókn Laugamanna svo að ekki hallist á okkur. Pessar nýafstöðnu fimleikasý,,- ingar ætlu að vera Akureyringum hvatning til að heiða þá sókn, sem hafin er til að kon-a upp íþrótla húsí fyiir Akureyraibe, eins og skólastjórinn oiðaði það í ávarpi sínu- — Pó segja megi, að vængir ófrið- argamn svns yfirskyggi allt og ú - lokj flesta möguleika, þá sýna við- burðir síðustu tíina einnig að lík amlegt sem andlegt atgeifi er verð- mæli, sem vert er að fó na ein- hveiju fyrir. Ármann Dalmannsson• Enn um verð- vísitöiuna. Verkamaðurinn l. þ. m. gefur í skyn, að ritstj. þessa blaðs hafi haldið því fram, >að útreikningur kauplagsnefndar á dyrtíðarvísitölun- um sé hafinn yfir alla gagnrýni*. Pó að tæplega séu eigandi orða- skipti við menn, sem svo blákalt falsa ummæli og gera öðrum þau upp, þá skal hér gerð nokkur grein fyrir framfærslukostnaðinum, samkv. útreikningi Hagstofunnar. í október s. 1. telur Hagstofan, að 5 manna fjölskylda í Reykjavík þurfi 4723 krónur sér til framfæris. Af þessari upphæð er 1503 kr. húsaleiga, eða nálega */8 af fram- færslukostnaðinum, en ekki V5 eins og Verkam. vill vera láta. Geri maður ráö fyrir að öll matvara, að undanteknum fiski, kjöti og slátii hafi hækkað um 40% til jafnaðar og elilsneyti og fatnaður (þar í talið rafmagn) um sömu hundraöstölu, fiskur, kjöt og slátur um 10%, en húsaleiga og skattar standi í stað, þá verður heildarhækkunin 21 — 22% eða mjög nærri þv<, sem kauplags- nefnd hefir fundið. Hitt er annað mál, hvort rétt er að leggja þeuna útreikning Hag stofunnar til grundvallar, því yfir- leitt mun alþýðufólk í Reykjavik ekki búa í svo dýrum íbúöum, sem þar er gert ráð fyrir, og því síður annarsstaðar á landinu, Og því minni liður, sem húsaleigukostnað urinn er af íramfærslukostnaðinum, því meiri verður dýrtíðarhækkunin til jafnaðar. Pað eina, sem ísl. hefir lagt til þessara mála er það, að dýrtíðar- visitala kauplagsnefndar geti full- komlega staðist, samkv. sundurliðun Hagstofunnar á fi amfærslukostnaði í Reykjavík, en hann hefir hinsveg- ar ekkert ovð um það sagt, hvort sá grundvöllur, er nefndin bj'ggir útreikning sinn á, sé réttmætur eða ekki, — eins og Verkam. géfur i skyn að haldið hafi verið fram hér í blaðinu. Utigangsfé. Fyrir nokkrum dögum fannst ofan við eyðibýlið Grund í Þorvaldsdal ær með diltc, ei gengið hefir úti í vetur, Lamb- ið var grá gimbur. Bæði ær og lamb voru í góðum holdum. Óg gimbrin 37 kg. Voru mikil horna hlaup á henni og ullin farin að kraga sig á hálsinum. Eigandi þessa útigangsfjár er ]ón M. Jónsson bóndi í I.itla Dunhaga. Hjúskapur. Nýlega voru gefin saman í bjónaband í Reykjavík ungfrú Ragnheiður Sveinsdóttir, héðan úr bæ, og Bragi Eiríksson cand. phil. frá ísafiröi. og laus til íbúðar. Á ein- hveijum fallegasta stað í bæn um. Oóðir greiðsiuskilmálar. Upp'ý^ingar gefur Eggert Stefánsson Brekkugötu 12. Sími 270. Matarskammtúr minnkar. Ríkisstjórnin hefir nú, með tilliti til aukinna erfiðleika með aðflutninga, breytt reglugerðinni um matvæla- skömmtun. Verður skammturinn framvegis 5500 grömm kornvara á hvern mann (í einu lagi) og sykur 1700 grömm. Áður var kornvara 7200 grömm en sykur 2000 grömm. Kornvara mun flestum hafa reynst óþarflega mikil, en óþægileg mun minnkunin á sykurskammtinum reyn- ast þeim, sem hug hafa á að hag- nýta sér rabarbarann og berin i sumar^ En e. t. v. sér stjórnin sér fært að vejja aukaúthlutun síðar á sumrinu í því skyni eins og veitt er aukaúthlutun rúgmjöls í slátur. Hag- nýting rabarbara og berja er nauð- synleg. Ilvorttveggja fjörefnaauðug, alislenzk og ódýr fæða, og hefði því komið sér vel fyrir húsmæðurnar að sykurskammturinn yiði eigi rýrður fyrr en undir haustið, Og alltaf hlýtur að mega fá Ameríkusykur. Kaffiskammturinn mun verða ó breyttur fyrst um sinn. Úthlutað verður næst í einu lagi fyrir júní og júlí. Sjálfblekungur tapaðist á götum bæjarins fyrir nokkrum dögum. P'inn- andi beðinn að skila honum til /óhannesar /ónssonar verzl Eyjaíjörður. aftur saumastofu mína 14. maí í Hafnar- stræti 101, 2. hæð. (Ryels- verzlun) Tek á móti pöntunum í síma 344 eftir kl. 6,30 e. h. Margrét Steingrímsdóttir Flyt saumastofu mína í Gránufélagsgötu 28 Kristín Sigurbjörnsdóttir til leigu á Norðurpól frá 14 maí Konráð Vilhjálmsson. ZÍON. Hvítasunnudag almenn samkoma kl 8,30. Sæmundur G. Jóhannesson talar. 2. hvítasunaudag almenn samkoma kl. 8,30, Reyrir Hötgdal talar. Fermlngargjafir: HHH Seðlaveski v Peningabuddur Sjáitb leku nga r Skrútblýantar Bækur í úrvati Bókaverzlun Gunnl. Tr. Jónssonar Loftvarnabyssa um borð í brezkum tundurspilli, Húseign til sölu Lítil íbúð

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.